Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 21

Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 21
20 TÍMINN Sunnudagur 6. júli 1975. Sunnudagur 6. júli 1975. TÍMINN 21 Undir beru BETUR FARIÐ EN HEIMA SETIÐ lofti FLESTUM mun tamast að lita á Utiveru bæjafólks fyrst og fremst sem hvild og hressingu, kærkomna tilbreytingu frá inni- setum og þvi erfiði, sem það óneitanlega er að vinna öll verk sin i stofuhita. Margir eru þeir lika, sem bregða sér út undir bert loft, einfaldlega til þess að vera úti, hvað sem öðru liður, þótt þeir á hinn bóginn forsmái engan veg- inn það, sem hafa má upp úr krafsinu i leiðinni: fróðleik um náttúru landsins og sögu þeirra staða, sem sóttir eru heim. t þessum hópi er Sigriður Jóns- dóttir skrifstofustúlka, sem hér verður rætt við. Hún stundar úti- veru útiverunnar vegna og hefur gert það um langt árabil! Og það er nú einu sinni svo — sem betur fer — að ferðalög og útivera byggja okkur upp og verða okkur minnisstæð, þótt hvorki undur né stórmerki, hættur né mannraunir veröi á vegi okkar. í öruggri fylgd traustra ferðafélaga — Og þá er það fyrsta spurning- in, Sigriður: Er langt siðan þú fórst að stunda útiveru að marki? — Já, það er nú orðið langt sið- an, næstum þvi siðan ég man fyrsteftir mér! Strax á unglings- árum minum iðkaði ég skiðaferð- ir á vetrum og gönguferðir um nágrennið á sumrin. Seinna, og einkum eftir að ég fór að stunda innivinnu eingöngu, hefur þetta orðið reglubundnara og nú má heita, að ég fari eitthvað út um hverja helgi. Ég ferðaðist mikið með Ferðafélaginu um tiu ára skeið og sóttist þá auövitað eftir þvi að koma á fræga og fallega staði, sem ég hafði ekki séð áður. — Hver var fyrsta langa ferðin, sem þú fórst? — Fyrsta ferðin, sem ég fór með Ferðafélaginu, var vikudvöl inni i Landmannalaugum. — Hafðir þú ekki komið þar áður? — Jú, að visu einu sinni, en ekki til þess að dveljast þar neitt að ráöi. En þótt ég væri þar ekki nema yfir eina helgi i fyrsta skiptið, sem ég kom þar, dugði sá timi til þess að opna augu min fyrirdýrð þessa staðar. Mér mun lengi verða i minni vikan, sem ég dvaldist þar á vegum Ferða- félagsins, gekk um nágrennið og skoðaði hvað eina sem á vegi minum varð. Þetta var áður en sá mikli mannagangur kom til sög- unnar, sem seinna átti eftir að yfirþyrma Landmannalaugar, þær voru miklu „ósnortnari” þá en nú. Skömmu seinna fór ég með Jöklarannsóknafélaginu á Vatna- jökul. Það var ógleymanleg reynsla. — Fylgir þvi ekki öryggis- leysistilfinning að ganga á jökli, — að jökullinn kunni að springa undir fótum manns, þegar minnst varir? — Ekki finn ég til þess, að minnsta kosti ekki þegar ég er i fylgdmeð vönum mönnum. Sama er að segja um ýmislegt annað. Ég ertil dæmis lofthrædd, en mér er alveg sama, þótt ég príli upp um fjöll, þegar traustir og örugg- ir menn eru með i förinni. Þvf má gjama skjóta hér að, að sú ánægja og lifsfylling, sem ferða- lög veita mér, stafar ekki sizt af þvi, hve ágætt fólk ég hef alltaf hlotið að förunautum. — Þessi ferð á Vatnajökul hefur þá kannski ekki orðið þfn eina jökulganga? — Nei, nei. Ég hef lika gengið á Snæfellsjökul og Eiriksjökul og Sjaldnast þurfum við tslendlngar langt að fara tll þess að hitta fyrlr eðlilegt Hf, ónosrtið af umstangi mannanna, að þvf er bezt verður séð. Þessi mynd er frá Heiömörk, álft með unga slna á Silungapolli leitár sér ætis viö bakkann. fékk I bæði skiptin gott veður. Það var stórkostlegt. Snæfellsjökull er sérkennilegur að þvi leyti, að þar er eiginlega haf á alla vegu, þeg- ar upp er komið. Að minnsta kosti viröist manni svo. Það vakti lika athygli mina.hve fallegar is- myndanimar voru I Þúfunum, svokölluðu. Á hreindýraslóðum Austurlands, — I stórrigningu undir Eyjafjöllum — Hefur þú svo eingöngu haldiö þig við hið gróna land, eftir að hafa kynnt þér jöklana? — Nei, ekki er það nú alveg. Ég hef líka gengið á Arnarfell I Hofsjökli. Þá ferð fór ég með Far- fuglum. Við fórum yfir Þjórsá á gúmmibáti, það er að segja yfir stærstu kvislina, en óðum hinar. Það er dálltið ævintýralegt, mað- ur veður hverja kvislina af ann- arri, enengin þeirra er háskalega djúp, að visu. í þeim dýpstu vaða menn þó ,,I keðju”, — leiðast. Ekki þýðir að ætla að ganga á Arnarfell nema hafa timann fyrir sér, svo hægt sé að velja gott veð- ur. Það er ekkert varið i að ganga á fjallið, nema veður sé ákjósan- legt, og fólk verður að láta sér lynda að bíða niðri á jafnslétt- unni, gripa fyrsta bjarta morgun- inn, sem kemur, — og leggja snemma upp. En taki ferða- maðurinn á þolinmæðinni og velji sér bezta veðrið sem kostur er á, verður hann ekki heldur fyrir vonbrigðum, þvi útsýn af Arnar- felli er stórfengleg, og Arnarfells- múlarnir eru lika mjög fallegir. Þegar Brúarjökull skreið fram hér um árið, fór ég með Jökla- rannsóknarfélaginu þangað aust- ur. Viö fórum meðfram jökulrönd inni og um nærliggjandi öræfi. I þessari ferð sáum við allt i einu stóran hóp hreindýra, sem geyst- ist fram hjá okkur á mikilli ferð. Það var glæsileg sjón, Ég hefði ekki haft neitt á móti því að skoða betur þessar tignarlegu skepnur, en til þess gafst ekki neitt tæki- færi, þau kærðu sig ekki um að láta þessi tvifættu aðskotadýr vera að forvitnast I kringum sig. — Þessar ferðir, sem við höfum verið að tala um, eru allar tals- vert langar. Þær hljóta að hafa verið farnar um hásumar? — Já, þær voru farnar I sumar- leyfum, og eru þá ótaldar hinar styttri ferðir, em farnar voru um helgar eða jafnvel á einni dag- stund. Og vist verður að viður- kenna, að ekki eru allar ferðir til fjár. Einu sinni ætlaði ég «að ganga á Eyjafjallajökul. Þetta virtist ósköp stutt ferð og auð- veld, það var tjaldað undir Eyja- fjöllunum á einkar fögrum stað, — og þar eru allir staðir fallegir. En þá tóku veðurguðirnir til sinna ráöa. Það gerði afspyrnurok með hellirigningu. Ég sat alla nóttina uppi I tjaldinu minu og studdi súl- una, svo ég fengi ekki allt saman yfir mig. Þannig lauk þeirri jökulgöngunni. Ég sagði, að ekki væru allar ferðir til fjár, og vafalaust myndu ýmsir vilja telja þessa Eyja- fjallaferð i þeim hópi. Þó skildi hún eftir endurminningar, og þær alls ekki sem verstar. Ferðalög geta verið mikil hvild og upplyft- ing, þótt þau séu ekki eintómur dans á rósum — I glaða sólskini. Hnésnjór i júli — Verða þessar ferðir ekki oft næsta erfiðar, þegar þið eruð kannski viku eða meira uppi á ör- æfum og sifellt að klifa brött fjöll eða ganga annað torleiði? — Ekki hefur mér fundizt það. Að visu fer þetta mikið eftir veðr- inu, og ég hef oftast verið svo heppin að hreppa gott veður, þótt út af þvi hafi brugðið stöku sinn- um. — Það er þá ekki hægt að segja, að rigningin og rokið hafi elt þig á ferðalögum þlnum? — Nei, engan veginn, og meira að segja eru þau skötuhjú alls ekki versta veðrið sem ég hef kynnzt. Langversta veður sem ég hef lent i á feröalagi var sandbyl- ur, sem við fengum hjá Veiði- vötnum fyrir nokkrum árum. Við vorum alveg veðurteppt i tvo daga, og þeir fáu bilar, sem reyndu að halda áfram, urðu algerlega sandskúraðir, eins og málningin hefði verið urguð af með sandpappir. Þannig er hægt að hreppa næstum hvers konar veður sem er á öllum timum árs, jafnvel snj’órinn getur komið ó- boðinn i heimsókn um hásumar inni á hálendinu. Að þessu sinni höfðum við fyrst farið að Veiði- vötnum, svo yfir Sprengisand, og fengum ágætt veður við Fjórðungsvatn. Ferðinni var heitið i öskju, og siöustu klukkutimana frá húsinu i Herðubreiðarlindum að öskju óð- um við snjóinn i hné. Bilinn urð- um við að sjálfsögðu að skilja eft- ir. Þó var nú þetta i júli. Ferðir um ná- grenni Reykjavikur — Þú heldur þessum ferðum auðvitað áfram, fyrst þér finnast þær alltaf skemmtilegar og varla einu sinni erfiðar? — Ég hef gert það hingað til, og vona, að svo verði enn um stund. Að visu má segja, að ég hafi eink- um farið stuttar ferðir á siðustu árum, þótt ég reyni að fara að minnsta kosti eina langa ferð á hverju ári. Um flestar helgar fer ég eitthvað út að ganga. — Hvcrt leggur þú þá leið þina? — Það er ýmist. Stundum fer ég hérna upp með Esjunni, út á Álfs- nes eða Geldinganes, en ferðir minar þangað munu vera farnar að skipta tugum. Þar er mikið fuglalif og ágætt að’ganga þar með s jó fram. — Það er ekkert amazt við ferð- um fólks á þessar slóðir? —- Það hefur ekki nema einu sinni komið fyrir.hvað mig snert- ir. Við vorum þrjár á gangi i Korpúlfsstaðafjörunni, eins og við höfðum oft gert áður. Allt i einu vitum við ekki fyrr en maður kemur þjótandi i áttina til okkar. Fundum okkar og hans bar sam- an nálægt ósum Korpu, og mað- urinn réöst strax að okkur með hávaða og spurði, heldur svona ómjúklega, hvað við værum eiginlega að gera þarna. Við sögðum sem var, að við værum einungis á hressingar- göngu og að við vissum ekki að það gæti verið neinum til meins. Hann svaraði þvi til, að áin væri leigð sem veiðiá, hann ætti að sjá um ána, og við mættum alls ekki vera þarna. Þetta er eina dæmið, sem ég kann frá að segja af slíkri fram- komu í garð gangandi vegfar- enda, en aftur á móti gæti ég sagt margar sögur um hið gagnstæða. Þannig var það nýlega, að ég og samferðakonur minar sátum úti i Álfsnesi. Þá kom bóndinn þar til okkar og fór að ræða við okkur um gönguferðir og náttúruskoð- un. Hann sagði, að stundum væru þarna byssumenn á ferð, og þvi hefði hann þann sið að ganga um landið og fylgjast með ferðum fólks. En honum var öldungis sama þótt byssulaust og friðsamt fólk gengi um jörð hans. Leitum ekki langt yfir skammt — Þarf fólk ekki helzt að eiga bil, ef það á að geta ferðazt, þó ekki sé nema um nágrenni Reykjavikur? — Nei, ekki er það nauðsynlegt. Auðvitað ódrýgist dagurinn mik- ið,ef menn ætla að ganga alla leið að heiman frá sér, þeir sem eiga heima fjarri útjöðrum bæjarins. En þá er að nota strætisvagnana. A meðan Lækjarbotnavagninn gekk, fór ég oft með honum þang- að, gekk þaðan upp hjá Geithálsi, svo yfir Miðdalsheiði og jafnvel yfir Grimmannsfell I veg fyrir Mosfellssveitarbíl, sem ég fór með til Reykjavikur aftur. Einu sinni fór ég með Þingvallabiln- um, skildi við hann á móts við Stlflisdal og gekk þaðan yfir i Kjós, en siðan um Svinaskarð til Mosfellssveitar, þar sem ég tók áætlunarbil til Reykjavíkur. Þannig er hægt að komast heil- mikið um, þótt fólk eigi ekki bll, ef viljinn er nægur. Að visu er þetta orðið miklu erfiðara núna, síðan Lækjarbotnavagninn hætti ferðum sinum. Ég er sa tt að segja hissa á þvl, að þeim ferðum skuli ekki hafa verið haldið uppi, að minnsta kosti i ágúst og septem- ber, þvl að margir vilja leggja leið sina þangaðuppeftir til berja, og Heiðmörk er nú einu sinni frið- land Reykvikinga. — Er ekki heldur lltið að sjá, þegar ekki er farið lengra en þetta? — Nei, engan veginn. I ná- grenni Reykjavikur eru margir undrafagrir staðir, og náttúran auðug að tilbreytingu, hvort sem hugað er að sérkennilegu grjóti eða gróðri. Fuglalif er mikið, eins og allir vita, og seli hef ég oft séð, meira að segja alla leið inni i Elliðaárvogi, snemma morguns, — og það er einmitt bezt að fara þessar ferðir að morgni til. Það hættir mörgum til að láta sér sjást yfir þá fegurð, sem liggur fyrirfótum hans, og þannig grun- ar mig að mörgum Reykvikingi hafi farið á undan förnum árum og áratugum. Menn verða oft margs vísari með því að veita þvi athygli, sem næst þeim er. Hversu margir Reykvíkingar skyldu þekkja að ráði tunguna á milli Elliðaánna? „Þar ris Drangey úr djúpi.......” — Er þá orðið dálitið langt slð- an þú hefur farið eitthvað sem heitið getur langferð? — Nei, reyndar ekki. Það kem- ur stundum fyrir, þegar ég lit yfir áætlanir Ferðafélags Islands, að ég segi við sjálfa mig: Þessa ferð verð ég að fara.Langoftast verð- ur þó reyndin sú, að ég sit heima. Þó gerðist það núna um daginn, að ég fór norður i land og út i Drangey, en þangað hafði ég aldrei komið. Við vitum öll, hvernig þetta blessað vor hefur verið, ekki sizt fyrir norðan. Tíðin var köld, fáir pöntuðu far i Drangey, og um tima leit helzt út fyrir að sú ferö yrði ekki farin á þessari Jóns- messu. Þó fór nú svo, að lagt var á stað á laugardagsmorgni i veðri, sem hvorki gat heitið vont né gott, eins og skáldið sagði forðum. Við ók- um norður á Sauðárkrók og tjöld- uðum þar skammt frá bænum. Um nóttina versnaði veðrið, gerði bæði storm og rigningu, svo likurnar á Drangeyjarferð minnkuðu með hverjum klukku- tlmanum sem leið. Undir morguninn sljákkaði þó nokkuð i veðurguðunum, við ókum niöur i bæinn um klukkan niu, og þar beið okkar fimm tonna bátur, sem flytja skyldi okkur út i eyj- una. Þangað er um það til tveggja tima ferð, og á meðan við vorum á leiðinni, — smá-létti til, þannig að heita mátti ljósmyndunarfært veður, þegar að eyjunni kom. Síð- an hjálpaði hver öðrum að klifa Drangey.sem ekki er mikið þrek- virki með aðstoð festar og stiga, og þegar við stóðum loks uppi á þessum fornfræga stað, var kom- ið sólskin. Við stönzuðum i Drangey i tvo klukkutima, en héldum svo til lands. Þá var veð- ur að byrja að spilast aftur, og gaf nokkuð á bátinn á heimleiðinni. Þannig var þessi ferð, og þannig finnst mér að sé um flest- ar eða allar ferðir sem ég hef far- ið. Jafnvel þótt ekki liti mjög vel út i byrjun, og þótt sumar ferðir takist ekki alveg eins og til var ætlazt í upphafi, þá finnst mér þó alltaf, þegar ég lit um öxl, að bet- ur hafi verið farið en heima setið. — VS. Þeir sem lagt hafa leiö sfna frá Reykjavlk austur yfir Hellisheiði, munu flestlr hafa veitt Lyklafellinu athygli, hvort sem þeim hefur veriö kunnugt nafn þess eöa ekki. Þvi miöur er umgengni okkar ekki alltaf eins góö og skyldi. Jarntunnan sd arna og ruslið I krlngum hana mættu veröa okkur viti til varnaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.