Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Sunnudagur (i. júll 1975. Veturliði Gunnarsson viö eitt verka sinna. Timamynd G.E, Veturliði sýnir Tiimnner peningar inn, þá ætti þetta að hressa upp á hlutina i bænum. — Það er tiltölulega skammt siðan þú sýndir siðast? — Já, maður er annaðhvort skammaður fyrir að vera of latur, eða of duglegur. Það er annars dálitil tilviljun að ég sýni núna — kem með sumarsýningu, en ég átti þessar myndir og salurinn var laus, svo ég slö til. Mótifin virðast „veturliðaleg” skip og bátar, vestfirzkt landslag og veðurfarið válegt. Nánar mun verða fjallað um sýningu Vetur- liða hér i blaðinu. JG PRESTASTEFNAN VARAÐI VIÐ DULTRÚ Tillögur um einfalt guðsþjónustuform og guðsþjónustur d sumarleyfisstöðum Helztu tillögur samþykktar á prestastefnu íslands fyrir skömmu eru þessar: 1. Prestastefna Islands, haldin I Skálholti visar til fyrri ályktana prestastefnu, kirkjuþings og kirkjuráðs um nauðsyn þess að ráöa blaöa- fulltrúa til kirkjunnar og að auka útgáfustarfsemi hennar. 2. Prestastefna tslands haldin i Skálholti 1975 skorar á kirkju- yfirvöld að ráða sem fyrst sjúkrahúsprest til starfa i Reykjavik. 3. Prestastefna i Skálholti 1975 beinir þeim tilmælum til viökomandi sóknarpresta og prófasta, að þeir kanni þann möguleika að koma á guðsþjónustum á helgumdögum yfir sumarmánuðina nálægt fjölmennum sumarleyfis- stöðum, eins og t.d. Munaðar- nesi, Laugarvatni og Þingvöll- um. 4. Prestastefna Islands lýsir furðu sinni áþvi,að hæstvirtur kirkjumálaráðherra skuli ekki hafa lagt embættismetnaö sinn i það að sjá til þess að frumvarpið um veitingu presta kalla fengi þinglega meðferö, og skorar enn á hann aö bæta úr þvi. Urðu umræður nokkrar um þetta mál og sýndist mönnum að prestum væri sýnd óvirðing með þessari málsmeðferö, og að afstaða manna til frumvarpsins skipti ekki meginmáli, heldur stétlar- hollusta i mótmælum gegn þessari málsmeðferð. Samþykkt með 29 atkvæðum gegn 12. 5. Prestastefna Islands haldin i Skálholti 14.-26. júni 1975 beinir þeim tilmælum til biskups og kirkjuráðs, að tekið verði saman einfalt guðsþjónustu- form til notkunar fyrir presta, sem ekki njóta aðstoðar organista og söngfólks og kunna að framkvæma alla athöfnina án undirtekta kirkju- gesta. Nokkrar umræður upphófust og voru allir á einu máli um réttmæti tillögunnar. >. a) Prestastefna íslands 1975 varar við dultrúarfyrirbrigðum af ýmsu tagi, sem á siðari tim- um hafa breiðzt út meðal þjóðarinnar og hvetur söfnuði landsins til þess að vera vel á verði gagnvart þess kyns áróðri. Kristin kirkja byggir boðun sina og lif á Jesú Kristi einum, eins og honum er borið vitni í Nýja testamentinu og brýnir fyrir öllum að láta ekki bifast af þeim grundvelli. b) Prestastefna beinir þeim tilmælum til biskups, aö af- staöa kirkjunnar til þessara mála verði formlega tekin til ýtarlegrar umræðu á presta- ráðstefnu sem fyrst. Sr. Úlfar Guðmundsson bar fram fyrri lið tillögu þessarar og lýsti áhyggjum sinum vegna vaxandi áróðurs ýmissa dul- trúarhreyfinga, ekki sizt spiritisma og nauðsyn þess, að kirkjan haldi vöku sinni I þeim málum. Taldi hann eölilegt, að prestar geri grein fyrir afstöðu sinni til þessara mála heima hjá sinum söfnuði og gefi fólki rétta leiðsögn. Að lokum beindi hann þeim tilmælum til presta- stefnunnar, að tillagan yrði rædd á málefnalegan hátt og af viðsýni og fullum skilningi. Sr. Bolli Gústavsson tók siðan til máls og lýsti yfir stuðningi við framkomna tillögu og bar fram viöaukatillögu (tillaga b.) Þá urðu nokkrar umræður og töluðu fjórir prestar utan biskups. Að lokum var samþykkt að bera báðar tillögurnar undir atkvæði. Samþykkt i einu lagi með 55 at- kvæðum. 10 sátu hjá. JG RVK. Veturliöi Gunnarsson, listmálari opnar á laugardag inálverkasýningu i Norræna hús- inu i Reykjavik. Veturliði sýnir að þessu sinni 104 verk, sbr. sýningarskrá og eru það mest olfu og pastel myndir. Viö litum inn hjá Veturliða á föstudag, þegar hann var að koma myndunum fyrir. Hann hafði þetta að ségja: — Þetta er sumarsýnmg. Þaö er sumar núna og tvö skemmti- ferðaskip á dag og þótt þetta sé ekki endilega bezti sýningartim- Hestamót Hestamót Geysis ó Rangórbökkum, verður haldið sunnudaginn 13. júlí n.k. Keppnisgreinar: Gæðingakeppni I A og B flokki. Kappreiðar, 1500 m brokk. 1. verðlaun kr. 4000.00. 250 m stökk. 1. verðlaun kr. 4000.00. 350 m stökk. 1. verðlaun kr. 6000.00 850 m stökk. 1. verðlaun kr. 10.000.00 1500 m stökk. 1. verðlaun kr. 15.000.00 250 m skeið. 1. verðlaun kr. 15.000.00 Þátttaka i kappreiðum tilkynnist Magnúsi Finnbogasyni, Lágafelli, fyrir fimmtu- dagskvöld 10. júli. Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar leikur að Hvoli laugardagskvöld og i Hellubiói sunnudagskvöld. Hestamannafélagið Geysir Mentor sláttuþyrlan er örugg og einföld i notkun. Hæöarstilling hnifs frá jörö er nákvæm, og þyrlan fylgir mishæðum landslags mjög vel. Sláttubreidd Mentor sláttuþyrlunnar er 135 cm. Tilbúnar til afgreiöslu strax. Uþplýsingar hjá sölumönnum okkar og kaupfélögunum. 32 • REYKJAVlK* SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS .Lokaðu glugganum M , » ‘ M m M « W M * I Þegar kalt er orðið í húsinu, — rigning úti eða frost og stormur, lokarðu glugganum, þá þarf glugginn að vera það þéttur að hann haldi vatni, vindi og ryki utandyra. Þannig eru gluggarnir okkar, með innfræsta TE-TU þétti- listanum og þannig eru einnig svalahurðirnar frá okkur. Við framleiðum einnig útidyra- og bilskúrshurðir af ýmsum gerðum. Þeir sem hafa reynt þær, gefa þeim einnig 1. ágætiseinkunn. Það getur borgað sig fyrir þig — ef þú ert að byggja einbýlis- hús eða fjölbýlishús, að senda teikningu eða koma og skoða framleiðsluna, athuga afgreiðslutíma og fá verðtilboð. ___J glugga og hurðaverksmiðja YTRI-NJARÐVÍK Simi 92-1601 Pósthólf 14 Keflavik

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.