Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 35

Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 35
Sunnudagur 6. júli 1975. TÍMINN 35 Nýskipaöur sendiherra Austurrlkis Dr. Hedwig Wolfram afhenti I dag forseta tslands trúnaðarbréf sitt að viöstöddum utanrikisráöherra Einari Ágústssyni. Siödegis þá sendiherrann boö forsetahjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. Sendiherra Austurrikis hefur aösetur I Kaupmannahöfn. Tímarit Hjúkrunarfélags íslands fimmtíu ára Á þessu ári, nánar tiltekiö nú i júni, á rit Hjúkrunarfélags Is- lands merkisafmæli, þar sem lið- in eru fimmtiu ár frá útgáfu fyrsta tölublaðs þess. A fundi hjúkrunarkvenna i april 1925 var útgáfa blaðsins ákveðin, og segir i formála fyrir fyrsta tölublaðinu, að markmið blaðsins sé að halda áhugamálum stéttar- innar vakandi, efla þau og út- breiða. t stórt var ráðizt af fámennum en hugdjörfum hóp, þar sem á ár- inu 1925 var aðeins 21 hjúkrunar- kona i félaginu, en með störfuðu 12 aukafélagar. Timaritið hlaut i upphafi heitið — Timarit Félags islenzkra hjúkrunarkvenna — og bar það til ársins 1935, en þá var heiti þess breytt i — Hjúkrunarkvennablað- ið — og siðan i núverandi heiti ár- ið 1960. I fyrstu ritnefnd voru kjörnar þrjár konur, þær Guðný Jónsdótt- ir, Sigriður Eiriksdóttir og Krist- jana Guðmundsdóttir. Ritstjórn skilaði einu blaði fyrsta árið, en siðan fjórum á ári, og var árgjald ákveðið 3 krónur. 1 formála fyrsta tölublaðsins segir m.a.: „Þetta úrræði okkar hefir þann kost, að það er algjör- lega undir okkur sjálfum komið að hverju liði það verður okkur. Timar. kemur til ykkar núna fá- skrúðugt og fátæklegt frá hendi okkar, sem falið var að sjá um það, það kemur aðeins sem til- kynning til ykkar um það að hér sé opin leið til þess að koma boð- um og hugsunum hver til ann- arra. Hver einasta manneskja, sem fæst við hjúkrunarstarf, verður fyrir margvislegri reynslu sem er séreign "hen'nar, reynsia sem hún getur auðgað hinar starfssystur sinar af, hugsjónum sem hún getur gefið, vandamál- um sem hún getur á sama hátt borið undir þær. Möguleikann til þessa hefur hingað til vantað. Nú kemur þetta timarit. Það getur bætt úr þessu. Við eigum að skrifa það allar. Við eigum að leggja það bezta af þekkingu okkar og reynslu, af trú á málstað okkar og framsóknar- hug. Undir þvi er lif þess komið. Þegar það kemur til þin fátæk- legt, þá áttu að minnast þess fyrst að þú hefur sjálf brugðist þvi.” Undir þessi orð fyrstu ritstjórn- ar getum við, sem nú stöndum að blaðinu, eindregið tekið, segja þær, sem skipa núverandi rit- stjórn. 1 tilefni þessara timamóta i sögu blaðsins fór ritstjórn þess á leit við frú Sigriöi Eiriksdóttur að fá að hafa stutt viðtal við hana, en hún er ein á lifi úr fyrstu ritstjórn blaðsins. Sigriður hefur, eins og kunnugt er, unnið ötullega að hjúkrunar- og heilbrigðismálum allt frá þvi hún kom heim frá námi á þriðja tug aldarinnar, og var hún m.a. formaður Hjúkrunarfélags Is- lands á árunum 1924-1960 og meö aðra höndina við blaðið allan þann tima. Þegar flett er árgöng- um blaðsins, dylst engum, að Sigriður á þar mikinn fjölda greina. 1 viðtalinu segir frú Sigriður m.a.: ,,Er blaðið hóf göngu sina var hjúkrunarstarfið á byrjunar- og mótunarstigi hér á landi og var þvi brýn nauðsyn á að fá boðbera til að halda okkar málum vakandi og til að ná til allra i stéttinni. Nokkuð var um útgáfu fagrita, t.d. iðnaðarmenn, læknar, verk- fræðingar og ljósmæður gáfu út fagrit fyrir þennan tima. Blaðið var sett upp og vélritað heima hjá mér fyrstu árin. Var þá borðstofuborðið „kontorinn” þar sem allt flaut af blöðum og bókum þar til bunkað var upp á kvöldin, en þetta þótti heldur ósjarmer- andi og óvenjulegt á þessum tima. Fjölritun á blaðinu fengum við hjá Pétri Guðmundssyni, út- gáfumanni, sem tók okkur sér- lega vel. Ég vil geta þess að bæjarbúar voru okkur hjúkrunarkonum afar góðviljaðir, enda ófá sporin okkar i bæjarhjúkrun þar sem þörfin var mikil á aðstoð og aðhlynn- ingu. Blaðið var fjölritað fram til ársins 1936, eða 42 tölublöð, en þá var ákveðið að ráðast i að láta prenta það og sýndi sig að blaðið stóð undir sinum kostnaði að ári liðnu, enda þá orðið tiltölulega auðvelt að fá auglýsingar. Hvað var helzt skrifað um fyrstu árin? Um launakjör var mikið rætt og ritað, enda laun okkar mjög léleg auk þess sem ætlast var til að hjúkrunarkona væri alltaf reiðu- búin til vinnu hvenær sem var. Ef við sáumst á götu „privatklædd- ar” mátti oft heyra: „Nei, sko, hjúkrunarkonan á fri i dag.” Um lifeyrissjóð var talsvert mikið rit- að, en honum hafði þá þegar verið komið á fyrir danskar hjúkrunar- konur. Einnig þýddum við erindi úr erlendum timaritum auk frétta af merkisatburðum á sviði hjúkrunar. Nokkrar greinar birtust frá hjúkrunarkonum erlendis þar sem þær lýsa starfi sinu á hinum ýmsu stofnunum. Allar skýrslur Samvinnu hjúkrunarkvenna á Norðurlönd- um er að finna i blaðinu. Auglýsingar um lausar stöður og stööuveitingar birtum við, en einnig var getið um utanferðir og heimkomur islenzkra hjúkrunar- kvenna, en á þessum árum var ekki hægt að læra hjúkrun til fulls hér á landi. Með tilkomu Landspitalans og siöan Hjúkrunarskóla Islands færist námið hingað heim og tek- ur þá aö fjölga hraðar i stéttinni. Ég get þess til gamans að þegar Hjúkrunarskóli Islands tók inn nemendur, 10 stúlkur, annað eða þriðja árið sem hann starfaði, kallaði einn af þremur þáverandi prófessorum á Landspitalanum á mig og innti mig eftir þvi hvort við ætluðum strax að fara að skapa atvinnuleysi i stéttinni.” Timarit Hjúkrunarfélags Is- lands er gefið út i u.þ.b. 2 þús. eintökum, og þess má geta að komið hafa út reglulega 3-4 tölu- blöð á ári hverju. Prentun annast Isafoldarprentsmiðja h.f. Núverandi ritstjórn skipa: Ingibjörg Arnadóttir, ritstjóri oe ábyrgðarm., Elisabet Ingólfs- dóttir, Stefánia Sigurjónsdóttir og Guðrún Áskelsdóttir. RANGE ROVER eigendur! Eigum fyrirliggjandi: □ Litaöar framrúöur, (öryggisgler). □ Halogen samlokur í aöalljós. □ Halogen þokuljós. □ Dráttarbeisli. □ Gúmmíhorn á stuöara. □ Höfuöpúöa. □ Farangursgrindur. □ Þurrkusett fyrir afturrúöu, meö rúöusprautu. □ Hlíföarpönnur undir bensíntank. R STEFANSSON HVERFISGÖTU103' REYKJAVÍK SÍMI 26911 P( ÞAR KOM AÐÞVÍ... Þar kom aö því, að viö gætum kynnt nýjar gerðir af hinum landsþekktu CANDY þvottavélum — tvær splunkunýjar gerðir, sem eru þegar komnar til landsins. hefur 14 grunnkerfi og hitabreytisrofa, en það þýðir að hægt er að lækka hitastigið á flestum kerfunum án þess að stytta þvottatímann. ÞETTA ÉR NÝJUNG. Sparnaðarrofa er sjálf- sagt að nefna, en með honum er hægt að breyta vélinni úr 5 kg vél í 3 kg vél. Með þessu má spara rafmagn, vatn og þvotta- efni. Margt fleira má nefna, s.s. að þvotta- tromlan er úr ryðfríu stáli, aðeitt af kerfunum fyrir mjög viðkvæm efni er fyrir uII, að Candy M 140 smákælir vatnið áður en skolun hefst og hlífir þar með þvottinum. Verðið er kr. 77.500. er fullkomnasta þvotta- vélin frá Candy verk- smiðjunum. Auk framangreindra at- riða hefur hún þessa kosti: 750 snúninga þeytivindu, 18 þvottakerfi, tímabreytirofa en með honum er hægt að lengja þvottatímann á öllum kerfunum um 4-30 mínútur. Verðið er kr. 94.500. Athyglin inun beinast að þessum vélum vegna kostanna. Þetta er árang- ur af 30 ára reynslu. Engin verksmiðja í Evrópu framieiðir jafn margar þvottavélar á dag og Candy verksmiðjan. Við bjóðum að sjálfsögðu af borgunarskilmala. Candy 250 kostar kr. 94.500,00 Candy M 140 kostarkl. 77.500,00 Verzlunin Skólavörðustíg og Bergstaöastræti — Sími 26788 AUGLÝSIÐ í TÍMANUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.