Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 12

Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 6. júli 1975. „Grátlegt að sú sjúkrahjálp, sem við búum við skuli ekki ráð fyrir sjúkdómaleit" Sólrún Sveinsdóttir hjúkrunarkona og Gauti Arnþórsson læknir gera Svo sem tram hefur komið hér i blaðinu eru aðstæður fyrir hendi á sjúkrahúsinu á Akureyri til aö hefja leit að krabbameini I maga á byrjunarstigi. Þau Gauti Arn- þórsson læknir og Sólrún Sveins- dóttir hjúkrunarkona skýrðu Timanum frá nýrri rannsóknar- aöferð, sem þau hafa prófað vis- indalega, og reynzt hefur mjög vel. En þau sóttu þing norrænna meltingarfræðinga hér I Reykja- vik og skýrðu frá niðurstöðum sinum þar. Vakti athugun þeirra mikla athygli, enda getur hún haft grundvallarþýðingu i með- ferð magakrabba. Þau Sólrún og Gauti hafa kynnt sér magaljós- myndun erlendis og þá sérstak- lega þessa nýju aðferð, sem upp- runnin ér i Japan. Sigurður Óla- son röntgeniæknir, Þorgeir Þor- geirsson dósent og Kristrún ólafsdóttir meinatæknir unnu að þeim rannsóknum, sem hafðar voru til samanburðar nýju að- ferðinni, ásamt þeim Gauta Arn- þórssyni og Sólrúnu Sveinsdóttur. — Magaspeglanir eru margs konar, sagði Gauti Arnþórsson læknir. — Markmið þeirra allra er að finna krabbamein i maga á læknanlegu stigi. Um þessar mundir eru einkum tvenns konar tæki notuð við magaspeglanir. 1 fyrsta lagi er svonefndur magaspegill eða gastroscope, en með honum kikir læknir beint niður I magann og sér það sem I honum er. Gegnum þau áhöld, sem magaspeglinum tilheyra, er hægt að fara niður með tengur og taka vefjasýni. Ut- an á magaspegilinn er skrúfuö venjuleg ljósmyndavél, sem tek- ur ljósmyndir af þvi, sem sést I maganum. bessar myndir eru til- tölulega grófar. Þá er nokkuð mikil fyrirhöfn að gera þessa rannsókn og hún er ekki alveg ó- þægindalaus fyrir sjúklinginn, þótt óþægindin séu litil, og auð- velt að deyfa gegn þeim. Greinir smæstu meinsemdir Hitt aðaltækið, sem nú er notað, er gastrocamera eða magaljós- myndavél, og það er hún, sem notuð hefur verið i þessari rann- sókn okkar á Akureyri. — Það er örgrönn slanga og á enda hennar er ofurlitil myndavél, sem tekur myndir niðri í maganum. I tækinu er llka örgrannur loftgangur, en i gegnum hann er lofti blásið niður i magann til þess að hægt sé að mynda hann allan innan. Einnig er þarna örgrannt knippi af gler- fiberþráðum, en gegnum það er hægtaðkikja niður i magann, svo vel sjáist til að mynda og góðar myndir fáist. Með þessu tæki er hægt að greina allra smæstu meinsemdir. Með þvl hafa fundizt krabbamein allt niður i 1/2 cm i þvermál, en þau eru örugglega læknanleg. Til samanburðar má geta þess að yf- irleitt eru krabbamein, sem finn- ast á að gizka 5-40 cm i þvermál. Þessi aðferð er algerlega sárs- aukalaus, en deyft er I vélinda til þess að koma tækjunum niður i maga. Rannsóknin tekur 4-19 minútur, en eldri magaspeglun- araðferðin tekur 15-20 minútur, og hún géfur raunverulega eins góða ef ekki betri mynd af mag- anum. Þessi aðferð var fundin upp i Japan skömmu eftir 1950 og hefur veriðnotuð geysilega mikið þar. 1 Japan hefur hún haft verulega þýðingu til að greina krabbamein i maga á læknanlegu stig. Langt yfir 90% lifa af frumkrabbamein, sem finnst með þessari aðferð. En hins vegar lifa aðeins 5% af öllum þeim sem fá magakrabba I Evrópu og Amerfku, en skýringin er sú að venjulega leitar fólk ekki læknis fyrr en það er farið að finna til verulegra óþæginda og þá er sjúkdómurinn yfirleitt kom- inn á hátt stig. Við íslendingar höfum haft þriðju hæstu krabbameinstiöni I maga allra þjóða, Japanir og Chilebúar voru lengst af einir fyr- ir ofan okkur. Nokkuð hefur dreg- ið úr tiðni magakrabba hér, en við erum enn langhæstir af Norður- löndunum, en Finnar koma næst- ir okkur. Sjúklingarnir koma of seint — Fyrir ári siðan fékk sjúkra- húsið á Akureyri japanska maga- myndavél, sagði Gauti Arnþórs- son. — Siðan höfum við Sólrún Sveinsdóttir hjúkrunarkona próf- að aðferðina á vlsindalegan hátt og greindum frá niðurstöðunum á þingi norrænna meltingarfræð- inga nú fyrir skömmu. Niður- staða okkar var sú, að þessi rann- sóknaraðferð er algerlega hættu- laus framkvæmd af hjúkrunar- konu, sem er sérþjálfuð I henni. Aðferðin sýnist vera a.m.k. eins góð til greiningar á magakrabba á frumstigi eins og magaspeglun með grófara tækinu. Ávinningurinn af nýrri aðferð- inni fyrir sjúklinginn, er, að hún tekur örfáar minútur, er alger- lega sársaukalaus og allt að þvi ó- þægindalaus. Og loks gefur hún möguleika á að rannsaka alla sem til greina koma, en það væri aldrei hægt með hinni aðferðinni, það yrði of kostnaðarsamt og fyr- irhafnarmikið. Þetta er eiria aðferðin sem til greina kemur til þess að leita að magakrabba hjá öllum, sem eiga á hættu að fá hann, og þá er ekki sizt átt við karlmenn á aldrinum 40-70 ára. Krabbamein I maga veldur yf- irleitt engum óþægindum fyrr en það er orðið ólæknandi. Þrátt fyr- ir allan þann mikla kostnað sem lagður er I að greina og reyna að lækna það, hefur árangurinn þvi miður orðið litill til þessa, vegna þess hve seint sjúklingarnir koma til meðferðar. Um 300 manns hafa verið rann- sakaðir með japönsku aðferðinni á Akureyri undanfarið ár. Sam- anburðarrannsókn þeirra Gauta Arnþórssonar og Sólrúnar Sveinsdóttur tók til 204 af þess- um hópti. Þessir 204 einstaklingar gengust lika undir tvær aðrar aðalrannsóknaraðferðir, — magaspeglunmeðeldri aðferðinni og röntgenskoðun á maga. Nið- urstaðan varð, að árangurinn af japönsku aðferðinni varð a.m.k. jafngóður og samanlagður árang- ur af hinum aðferðunum tveim. Krabbamein i maga fannst hjá niu sjúklingum. Við þessa nýju aðferð þarf læknir ekki að vera við staddur sjálfa rannsóknina á sjúklingn- um, þar sem hægt er að skoða myndirnar eins oft og lengi og þurfa þykir siðar. Eldri maga- speglunaraðferðin krefst hins vegar töluverðrar skoðunar á staðnum. A þennan hátt sparast vi fjármagn, en auk þess er ægt að gera þessa rannsókn á stöðum, þar sem ekki væri hægt að framkvæma magaspeglun með eldri aðferðinni, og senda siðan myndirnar til skoðunar hjá sérfræðingi annars staðar. Fjárhagslegur ávinn- ingur fyrir þjóðfélagið. — A sjúkrahúsinu á Akureyri verður öllum, sem vilja láta skoða I sér magann, boðin þessi rannsókn, sagði Gauti Arnþórs- son læknir, hvort sem það verður til fullvissunar um að allt sé I lagi eða ef krabbamein finnst að fá það læknað. Fjárhagslegur grundvöllur þessa starfs er ekki alveg ákveðinn. Við höfum fengið Vlsindasjóðsstyrk til að gera grein fyrir samanburðarrann- sókn okkar á visindalegan hátt, svo að aðrir geti byggt á henni, en að örðu leyti hefur ekkert verið á- kveðið enn um fjármálahliðina. Það kann að virðast hatramm- legt. Þvi að það er gifurlegur á- vinningur fyrir þjóðfélagið og einstaklinginn, að hann verði læknaður af krabbameini I maga. Maður fær kannski krabbamein fimmtugur og hefði átt 30 ár ólif- uð, ef hann hefði ekki fengið sjúk- dóminn. Deyi hann úr maga- krabba tapar hann i fyrsta lagi sinu lifi, þjóðfélagið missir full- menntaðan einstakling, fjöl- skylda missir e.t.v. fyrirvinnu og I fjórða lagi er afskaplega dýrt að leyfa fólki að deyja úr krabba. Það þykja sjálfsögð mannrétt- indi að allt sé gert til að lækna fólk sem fær krabbamein. Lyf, meðferð, læknishjálp og sjúkra- húsvera krabbameinssjúiclinga er mjög dýr. Þegar litið er á, hvi- likur fjárhagslegur ávinningur það er að greina krabbamein á frumstigi er nærri þvi grátlegt að verða að horfast i augu við að sú sjúkrahjálp, sem þjóðin býr við, gerir ekki ráð fyrir sjúkdómaleit hjá óþægindalausum einstakling- um. Þegar um krabbamein er að ræða væri miklu skynsamlegra að verja fjárveitingum hins opin- bera til þess að leita að sjúk- dómnum áður en hann fer að vera til óþæginda. Allar tegundir krabbameins eru ill- eða ólækn- anlegar að meira eða minna leyti nema á byrjunarstigi. Hér á landi eru það örugglega innan við 10% sjúklinga, sem lifa það af að fá magakrabba eins og sjúkdómur- inn hefur birzt til þessa. Framhald á bls. 36. Innan við 10% magakrabba- sjúklinga hljóta nú lækningu, hugsanlegt er að hækka þá tölu margfaldlega, en langt yfir 90% lifa, sé meinið greint á frumstigi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.