Tíminn - 22.07.1975, Page 3
Þriðjudagur 22. júli 1975.
TÍMINN
3
Fundur framkvæmdastjórnar SUF
Frekarí veiðar
útlendinga innan
50 mílna koma
ekki til greina
Fundur framkvæmda-
stjórnar S.U.F. var haldinn i
Skiðaskálanum i Hveradölum
laugardaginn 19. júli sl. Rætt
var um starfið fram undan og
kosnar nefndir á vegum
S.U.F. Steingrimur Her-
mannsson, ritari Fram-
sóknarflokksins, mætti á fund-
inum og svaraði fyrirspurn-
um.
Samþykkt var eftirfarandi
ályktun:
S.U.F. fagnar ákvörðun
rikisstjórnarinnar um út-
færslu landhelginnar i 200 mil-
ur siðar á þessu ári og Itrekar
sérstaklega samþykkt 15.
þings S.U.F., sem haldið var á
Húsavlk 6.-8. júni sl. S. U.F.
leggur á það mikla áherzlu að
frekara samkomulag um
veiðar útlendinga innan 50
milna fiskveiðilandhelginnar
komi ekki til greina.
fréttatilkynning frá S.U.F.
3800 laxar komnir
Kollafjarðarstöðina
i
gébé Rvik — 1 gær höfðu hvorki
meira né minna en 3.800 laxar
fengizt úr kistunni i laxeldistöð-
inni i Kollafirði, en i Timanum 11.
júli, var sagt frá mikilli laxa-
gengd, en þá höfðu „aðeins” tæp-
lega 1200 laxar fengizt, en þetta er
margfalt fleira en á sama tima i
fyrra. Að sögn Þórs Guðjónssonar
veiðimálastjóra, má gera ráð
fyrii-j að um 20—25% af þessum
laxi sé merktur. Mest hefur kom-
ið i kistuna I laxeldistöðinni 370
laxar á einum degi. Nú eru niður-
stöður merkinganna unnar i töivu
og er það mjög mikill munur frá
þvi sem áður var og mikill sparn-
aður á vinnukrafti.
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri sagði, að sem dæmi mætti
nefna, að á fimmtudag i s.l. viku,
hefðu 265 laxar komið i kistuna i
laxeldistöðinni i Kollafirði, og þar
af hefðu 59 laxar verið merktir
hinni nýju segulmerkingu, eða ör-
merki (stytting á „örlitlu
merki”). — Þrir menn vinna nú
að staðaldri við að týna merkin úr
löxunum og lesa úr þeim, sagði
Þór, en það er Arni ísaksson
fiskifræðingur auk tveggja
starfsmanna Veiðimálastofnun-
ar.
Tölvan raðar þessum merking-
um svo niður, þetta eru mismun-
andi hópar laxa, sem hafa hver
fyrir sig verið merktir á sérstak-
an hátt, þ.e.a.s. örlitill mismunur
á örmerkjunum gefur til kynna
hvar og hvenær laxinn var merkt-
ur. Tölvan sparar okkur mikinn
vinnukraft og fáum við nú svo að
segja niðurstöður jafnóðum, sem
er mikill munur frá þvi sem áður
var, sagði veiðimálastjóri.
Þá sagði veiðimálastjóri, að
ALOGÐ GJOLD HÆKKA ALLT AÐ 92%
í NORÐURLANDSUMDÆMI EYSTRA
H.V. Reykjavik Skattskrár hafa
nú verið lagðar fram I þrem
skattumdæmum á landinu,
Norðurlandsumdæmi eystra,
Vestfjarðaumdæmi og Suður-
landsumdæmi. t Vestfjarðaum-
dæmi var hún lögð fram siðastlið-
inn föstudag, en i hinum i gær-
morgun.
í Norðurlandsumdæmi eystra
nemur heildarfjárhæð álagðra
gjalda 1.847.652.394 krónum, sem
lagt er á samtals 11.344 einstak-
linga og 625 félög. Hækkun á-
lagðra gjalda frá þvl sem var á
siðastliðnu ári, er 76,5%.
Alagður tekjuskattur I umdæm-
inu nemur samtals 739.954.823
krónum, sem leggst á 5.568 gjald-
endur og er meðaltalshækkun á-
lagðs tekjuskatts 58,3% frá sið-
asta ári.
Álagður eignaskattur er
38.424.673 krónur, sem leggst á
2.840 gjaldendur og er meðaltals-
hækkun hans 29,8%.
Aðstöðugjald i umdæminu
nemur samtals 146.580.400 krón-
um, sem leggst á 1.863 gjaldendur
og er meðaltalshækkun þess
Níu ára drengur beið
bana í umferðarslysi
H.V. Reykjavik. Niu ára gamall
drengur, Pálmar Erling Magnús-
son, til heimilis að irabakka 20 i
Reykjavik, lézt af völdum um-
ferðarslyss I Reykjavik á sunnu-
dagskvöld siðasúiðið.
Slysið varð með þeim hætti, að
Bronco bifreið var ekið norður
húsagötu, sem liggur frá Fells-
múla að blokkum þeim, sem telj-
ast til götunnar, og mun Pálmar
heitinn hafa hlaupið út á götuna,
milli kyrrstæðra bifreiða, sem
staðsettar voru við austurbrún
hennar, I veg fyrir Bronco bif-
reiðina.
Ökumaður Bronco bif-
reiðarinnar ber, að hann hafi
ekki orðið Pálmars var, fyrr en
hann lenti á hægra framhorni bif-
reiðarinnar og þegar hann hafði
stöðvað bifreiðina, lá Pálmar i
götunni við hana aftanverða.
Slysið varð um klukkan 19.00 á
sunnudagskvöld og lézt Pálmar
skömmu siðar á Borgarspitalan-
um.
Rannsóknarlögreglan i Reykja-
vik vill beina þeim eindregnu til-
mælum til sjónarvotta, sem
kunna að hafa verið að slysi
þessu, að gefa sig þegar fram við
hana.
gjalds 92,4% frá árinu áður.
Alagt útsvar i 4 kaupstöðum og
13 hreppum nemur 708.748.300
krónum, sem leggst á 9.349 gjald-
endur og er hækkun þess um
79,1%.
Atvinnurekstrargjöld og fleira
nemur samtals 213.944.198 krón-
um og er hækkun þeirra um
73,6%.
Skyldusparnaður, sem er nýr
skattur, nemur samtals
16.054.000 krónum.
Söluskattur og sölugjöld námu
á árinu 1974 samtals 927.658.474
krónum i Norðurlandsumdæmi
eystra.
Hæstu gjaldendur i umdæminu
voru þessir:
Af einstaklingum:
1. Snorri Friðriksson, bygg-
ingameistari, Kaldbaksbyggð 8,
Akureyri, sem greiðir 1.641.290
krónur i tekjuskatt og 518.800
krónur I útsvar. Samtals gjöld:
2.160.090 krónur.
2. Gunnar Tryggvi Óskarsson,
byggingameistari Asvegi 30,
Akureyri, sem lagt er á 1.492.254
krónur i tekjuskatt og 503.200
krónur i útsvar. Samtals gjöld:
1.995.454 krónur.
3. Baldur Jónsson læknir,
Goðabyggð 9. Akureyri, sem á er
lagt 1.384.952 krónur i tekjuskatt
og 543.400 krónur i útsvar. Sam-
tals gjöld: 1.928.352 krónur.
4. Tryggvi Helgason flugmað-
ur, Alfabyggð 4. Akureyri, sem á
er lagt 1.459.450 krónur i tekju-
skatt og 457.300 krónur i útsvar.
Samtals gjöld: 1.916.750 krónur.
5. Loftur Magnússon augn-
læknir, Hamragerði 25, Akureyri,
sem á er lagt 1.325.362 krónur i
tekjuskatt og 526.200 krónur i út-
svar. Samtals gjöld: 1.851.562
krónur.
Af kaupfélögum voru eftirtalin
hæst:
1. Kaupfélag Eyfirðinga Akur-
eyri, sem á er lagt samtals
53.550.951 króna i opinber gjöld.
2. John Manville, Húsavik, sem
á er lagt samtals 31.235.650 krón-
ur.
3. S.Í.S., Akureyri, sem á er
lagt samtals 12.153.794 krónur.
4. Slippstöðin Akureyri, sem á
er lagt samtals 11.549.039 krónur.
5. Útgerðarfélag Akureyringa,
sem á er lagt samtals 9.857.232
krónur.
Skattskrá Suðurlandsumdæmis
var einnig lögð fram i gærmorg-
un, en þar er lagt á sam t als 6.897
aðila.
Alagður tekjuskattur i umdæm-
inu nemur samtals 454.145.743
krónur, sem leggst á 3.427 gjald-
endur, og er meðaltalshækkun
um 68% frá þvi siðastliðið ár.
Alagður eignaákattur nemur
samtals 30.495.641 krónu, sem
leggst á 2.025 gjaldendur og er
hækkun hans rétt um 50% frá þvi i
fyrra, þegar álagður eignaskatt-
ur i umdæminu nam rétt liðlega
20 milljónum króna.
Veiðimálastofnunin hefði látið
endurskoða veiðiskýrslur til hag-
ræðingar fyrir tölvunotkun og
mun hin nýja tölva þeirra vinna
úr slikum skýrslum á mun styttri
tima en áður var, auk þess sem
hún verður notuð til að vinna úr
ýmsum rannsóknum og fleira i
sambandi við fiskveiðimál.
AAikill samdráttur
í bílainnflutningi
Gsal-Reykjavik — Mikill sam-
dráttur hefur orðið I bifreiðainn-
flutningi landsmanna fyrstu 6
mánuði þessa árs, ef miðað er við
sama timabil árið á undan.
Fyrstu sex mánuði þessa árs voru
fluttar inn til landsins alls 1850
nýjar og notaðar bifreiðar, en á
sama tima árið 1974 voru fluttar
inn til landsins 7356 bifreiðar.
Samdrátturinn virðist vera
nokkuð jafn yfir alla flokka bif-
reiða. 1503 nýjar fólksbifreiðar
voru fluttar inn fyrstu sex mánúði
þessa árs, en voru 6.301 á sama
timabili i fyrra, 164 notaðar fólks-
bifreiðar voru fluttar inn nú, en
voru 490 I fyrra, 66 nýjar vö'rubif-
reiðar voru fluttar inn nú, en voru
267 i fyrra á sama tima.
Fannst látinn við
Svarfaðardalsá
ASK-Akureyri — 41 árs gamall
bóndi, Agnar Auðunn Þorsteins-
son, frá Hofi i Svarfaðardal,
fannst látinn við Svarfaðardalsá
skammt sunnan Dalvikur sl.
laugardag. Til Agnars sást siðast
aðfaranótt föstudagsins, en opin-
ber leit var ekki hafin fyrr en á
laugardag. Agnar Auðunn var
kvæntur og átti þrjú börn og
einnig móður á lifi.
Fannst látinn eft-
ir fall í stiga
H.V. Reykjavlk. Á laugardags-
kvöld, eða á aðfaranótt sunnu-
dags, féll maður niður stiga i húsi
við Ránargötu i Reykjavik og
fannst hann látinn fyrir neðan
stigann um klukkan 2.30 þá um
nóttina.
Hefur maðurinn lent á rúðu i
fallinu, farið I gegnum hana með
annan handlegg sinn og hlotið við
það töluverðan áverka. Ekki var i
gær ljóst, hvort áverki þessi hefur
leitt til dauða mannsins, en niður-
stöður um dánarorsök munu
liggja fyrir að lokinni krufningu
liksins.
Fernt slasaðist í bílveltu í Kömbunum
Læddist inn um svefn
herbergið og stal 12
þúsund kr. án þess
að hjónin rumskuðu
H.V. Reykjavvik Laust fyrir
klukkan 15.00 á sunnudag lenti
fölksbifreið út af veginum i
Kömbunum, með þeim afleiðing-
um að hún valt og skemmdist
töluvert.
Bifreiðin var á leið niður
Kamba og missti bifreiðarstjór-
inn vald á henni, með fyrrgreind-
um afleiðingum. Fernt var i bif-
reiðinni og voru þau öll flutt á
Slysadeild til rannsóknar, en
reyndust ekki alvarlega meidd.
Nýlega hefur verið sett mal-
bikslag á veginn i Kömbunum og
talið er, að hálka, sem getur
myndazt á nýju malbiki i rign-
ingu og vætu,.geti hafa orsakað
óhapp þetta.
Helgin var annars nokkuð
annasöm hjá lögreglunni á Sel-
fossi, þvi að auk þessa óhapps
urðu einir fjórir árekstrar I um-
dæmi hennar. Slys urðu ekki á
fólki I þeim, en nokkrar skemmd-
ir á ökutækjum.
Mestar skemmdir urðu i
árekstri á sunnudag, þegar tveir
bilar óku saman á þjóðvegi,
skammt frá Selfossi. Bilarnir óku
I gagnstæðar áttir og þegar þeir
mættust, missti annar bilst jórinn,
sem ekið mun hafa nokkuð greitt,
stjórn á ökutæki sinu, með
þeim afleiðingum að árekstur
varð áf.
H.V. Reykjavik. Aðfaranótt
fimmtudags i siðastliðinni viku
var brotizt inn I ibúðarhús i Kópa-
vogi og stolið þaðan 12.000 krón-
um i peningum. Innbrotsþjófur-
inn brauzt inn um baðherbergis-
glugga i húsinu, læddist gegnum
svefnherbergi, þar sem hjón
sváfu, inn i stofu, þar sem hann
náði peningunum úr veski kon-
unnar.
Ekki varð vart við ferðir þjófs-
ins, meðan á innbrotinu stóð, og
uppgötvaðist það ekki fyrr en
morguninn eftir.
, Sömu nótt stöðvaði lögreglan i
Kópavogi þrjá menn, sem voru
drukknir á bifreið skammt frá
efnagerðinni Val i Kópavogi, og
var þeim komið fyrir I fanga-
geymslu lögreglunnar yfir nótt-
ina. A einum mannanna fundust
12.000 krónur og við yfirheyrslur
morguninn eftir, játaði hann að
hafa staðiðað innbrotinu i ibúðar-
húsið.
Hinir mennirnir tveir, sem i
bifreiðinni voru með honum, ját-
uðu þá við yfirheyrslu, að hafa
farið inn i fyrirtækið Helluval i
Kópavogi þá um nóttina, en þar
er unnið allan sólarhringinn nú,
og brotið þar upp peningakassa.
Hirtu þeir úr honum skiptimynt.
Mennirnir þrir játuðu ennfrem-
ur að hafa gert tilraun til að kom-
ast inn i ibúðarhús i Garðahreppi
þessa sömu nótt, en þar mun hafa
orðið vart við ferðir þeirra og þeir
þess vegna horfið frá.
Tveir mannanna hafa komið
mikið við sögu lögreglunnar
áður, og er annar þeirra nýbúinn
að afplána dóm á Litla-Hrauni, en
sá þriðji hefur ekki brotið af sér
áður, svo vitað sé.
Fjórir voru I bifreiðinni, sem vait I Kömbunurn. Þessa Tímamynd tók PÞ þegar hinir slösuðu voru
fluttir af slysstaðnum.