Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
SVEIFLA Í HÁSKÓLANUM Fyrstu
tónleikarnir á vegum nýstofnaðs Jazz-
klúbbs Háskóla Íslands verða í Stúdenta-
kjallaranum klukkan 16. Ragnheiður Grön-
dal söngkona kemur fram ásamt kvartett-
inum Black Coffee.
DAGURINN Í DAG
18. mars 2005 – 75. tölublað – 5. árgangur
MEÐ STJÖRNUR Í AUGUNUM
matur tíska tíðarandi krossgáta heilsa stjörnuspá tónlist
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
18
. m
ar
s –
24
. m
ar
s
Placido
Domingo
» Stemningin á tónleikunum
Kristur
» Bíómyndir um síðustu dagana
Ull & gull
» ólíku blandað saman
HILDUR
VALAVill fylgja
hjartanu
Hildur Vala:
GJALDFRJÁLS LEIKSKÓLI Reykjavík-
urborg stefnir að sjö klukkustunda gjald-
frjálsum leikskóla. Ráðstöfunartekjur hjóna
með eitt leikskólabarn koma til með að
aukast um 215.600 krónur á ári. Sjá síðu 2
ÓVÍST MEÐ TAKMARKANIR Fjöl-
miðlanefnd menntamálaráðherra hefur
ekki komist að niðurstöðu um hversu
strangar takmarkanir eigi að setja á eignar-
hald markaðsráðandi fyrirtækja á fjölmiðl-
um. Sjá síðu 2
MILLJARÐAR Í SVARTRI VELTU
Veltan í neðanjarðarhagkerfi veitinga-
geirans nemur milljörðum króna. Formaður
Matvís telur að 60-70 prósent starfsmanna
á veitingastöðum við Laugaveginn vinni
svart. Sjá síðu 4
EKKI AUKNAR SKYLDUR Ríkis-
útvarpinu eru ekki lagðar meiri skyldur á
herðar en einkafjölmiðlunum í nýju frum-
varpi, að sögn stjórnenda 365 og Skjás
eins. Sjá síðu 6
● vignir í írafári ● stjörnuspá
Kvikmyndir 36
Tónlist 38
Leikhús 38
Myndlist 38
Íþróttir 30
Sjónvarp 44
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
-Hátækni
iðnaður
á Íslandi
föstudaginn 18. mars
Sjá dagskrá á www.si.is
VEÐRIÐ Í DAG
Átröskun:
Fjármagn á
næsta leiti
HEILBRIGÐISMÁL Vonir standa til
þess að þær 16 milljónir króna fá-
ist á næstunni sem vantar til þess
að hægt sé að koma rekstri nýrrar
göngudeildar fyrir átröskunar-
sjúklinga á Landspítalanum í full-
an gang, að sögn Jóns Kristjáns-
sonar heilbrigðisráðherra. Deild-
in var opnuð fyrr í vikunni.
„Við erum að leita allra leiða til
að styrkja þá teymisvinnu sem þarf
að fara fram á nýju göngudeild-
inni,“ sagði Jón. Hann sagði að þrjú
til fjögur stöðugildi til viðbótar
þyrfti inn á deildina ef vel ætti að
vera. Kostnaðurinn væri 16 milljón-
ir á ársgrundvelli. - jss / Sjá síðu 12.
Rúnar Þór Rúnarsson:
▲
Í miðju blaðsins
Matreiðslunemi ársins
● matur ● tilboð
RIGNING EÐA SKÚRIR Í DAG
Fremur hægur vindur syðra en lægir
norðan til síðdegis eða í kvöld. Hiti 2-7
stig í dag en heldur áfram að hlýna á
morgun. Sjá síðu 4
Endurskoðun stjórnarskrár:
Öll gögn opin
almenningi
STJÓRNSKIPUNARMÁL Allir íslenskir
borgarar sem láta sig stjórnskipun
lýðveldisins varða geta nú nálgast
öll þau gögn sem nefnd sú vinnur
með, sem falið hefur verið að
semja frumvarp til breytinga á
stjórnarskránni.
Þetta tilkynnti formaður nefnd-
arinnar, Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra, á blaðamanna-
fundi í Þjóðarbókhlöðunni í gær.
Þar hefur verið innréttaður bás í
handbókasafninu, þar sem þessi
gögn verða öllum opin. Heimasíða
hefur einnig verið opnuð til að auð-
velda samráðið við almenning,
http://stjornarskra.is. - aa / Sjá síðu 20
Veislan, borðskreytingar,
tertur, athöfnin
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
FERMINGAR
LYFJAFRAMLEIÐSLA Navamedic ehf.,
dótturfélag Navamedic ASA í
Noregi, hyggst í sumar hefja
framkvæmdir við fyrri áfanga
verksmiðjuhúss á Húsavík þar
sem unnin verða efni til lyfjagerð-
ar. Undirbúningur hefur staðið í
rúm þrjú ár en kostnaður við fyrri
áfanga verksmiðjunnar er nálægt
200 milljónum kóna. Fjármögnun
er á lokastigi og segir Öyvind S.
Brekke, framkvæmdastjóri Nava-
medic í Noregi, að innan við tíu
prósent vanti til að ljúka fjár-
mögnun fyrri áfangans.
Í verksmiðjunni, sem rísa mun
sunnan við rækjuvinnslu Íshafs,
verður í fyrstu unnið kítín úr
rækjuskel. Kítínið verður flutt til
Noregs þar sem því verður um-
breytt í glúkósamín, komið í töflu-
form og markaðssett sem lyf.
Í síðari áfanganum er ætlunin
að koma á fót glúkósamínverk-
smiðju og á hún að verða tilbúin
2008. Á sama tíma verður hætt að
flytja kítínið til Noregs en glúkós-
amínið verður virkt lyfjaefni í
duftformi. Duftið verður flutt til
Noregs þar sem því verður komið
í töfluform en ekki þykir hag-
kvæmt að fjárfesta í búnaði til
töfluvinnslu á Húsavík fyrir
aðeins eina afurð.
Glúkósamín virkar á bandvefi
líkamans og er til dæmis talið geta
unnið gegn slitgigt. Navamedic í
Noregi hefur selt glúkósamín sem
heilsubótarefni og hefur efnið
meðal annars verið selt sem slíkt í
verslunum á Íslandi. Undanfarin
tvö ár hefur fyrirtækið unnið að
lyfjaþróun með það að markmiði
að verða fyrsta fyrirtækið í Evr-
ópu til að koma efninu í lyfjaversl-
anir. Gangi það eftir mun verð-
mæti framleiðslunnar stóraukast
en Navamedic hefur sótt um lyfja-
leyfi í Svíþjóð og er svara að
vænta fljótlega.
Á Húsavík eru kjöraðstæður
frá náttúrunnar hendi til fram-
leiðslu glúkósamíns en fram-
leiðsluferlið kallar á mikið af
hreinu köldu vatni og 130 gráða
heita gufu. Hvort tveggja er að
finna á Húsavík á samkeppnis-
hæfu verði.
Á bilinu 18 til 20 manns munu
starfa í lyfjaverksmiðjunni eftir
að þar hefst framleiðsla á glúkós-
amíni.
- kk
Lyfjaverksmiðja
reist á Húsavík
Norskir iðjuhöldar ætla í sumar að reisa verksmiðju á Húsavík þar sem
framleiða á efni til lyfjagerðar úr sjávarfangi. Sótt hefur verið um lyfja-
leyfi í Svíþjóð og er ætlunin að koma lyfinu á markað víða í Evrópu.
REKTORSKJÖR „Mér er efst í huga
þakklæti fyrir þennan mikla
stuðning sem ég hef fengið og
þakklæti til þess fólks sem hefur
unnið með mér í aðdraganda kosn-
inganna,“ sagði Kristín Ingólfs-
dóttir prófessor, nýkjörinn rektor
Háskóla Íslands, í samtali við
Fréttablaðið í gærkvöld. Í úrslita-
umferð rektorskosninganna hlaut
hún 53,1% gildra atkvæða, að
teknu tilliti til mismunandi vægis
þeirra, en Ágúst Einarsson 46,9%.
Meðframbjóðendum sínum vildi
Kristín þakka sérstaklega. Þeir
hefðu allir lagt mjög mikið af
mörkum til umræðu um framtíð
Háskóla Íslands og kosningabar-
áttan farið fram af heilindum og
drengskap.
„Það er mikið verk fram
undan,“ sagði Kristín spurð um
hvað biði hennar í hinu nýja starfi,
en hún er fyrsta konan í tæplega
aldarlangri sögu Háskólans sem
gegnir stöðu rektors. „Skólinn er
geysilega sterkur og mjög merki-
legt starf þar unnið,“ sagði hún.
„Það þarf að vinna áfram að því að
tryggja fjárhagsgrundvöll skól-
ans til framtíðar og styrkja hann
enn frekar.“
- aa
Kristín Ingólfsdóttir kjörin rektor Háskóla Íslands:
Mikið verk fram undan
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Jón Kristjánsson vinnur að fjármögnun
þjónustu fyrir átröskunarsjúklinga.
REKTORSKJÖRI FAGNAÐ
Kristín Ingólfsdóttir prófessor fagnar sigrinum í rektorskosningunum í faðmi fjölskyldu og stuðningsfólks á heimili sínu í gærkvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI