Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 10
SÖGUNNI EYTT Í gær var síðasta styttan af einræðisherran- um Francisco Franco fjarlægð úr Madríd, höfuðborg Spánar. 10 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR Veitingamaður gagnrýnir Skattrannsóknarstjóra: Íþróttafélagið Gaukur á Stöng? SKATTRANNSÓKN „Þeir mættu gera leit hjá íþróttafélögunum sem halda böll fyrir þrjú til fjögur þús- und manns og svo fer bókhaldið beint í skókassa,“ segir Sigurður Hólm Jóhannsson, eigandi veit- ingahússins Gauks á Stöng. Hann furðar sig á því að Skattrannsókn- arstjóri hafi gert húsleit hjá veit- ingahúsum en geri minna til að athuga skemmtanahald íþrótta- félaga. Gaukur á Stöng var einn rúm- lega tuttugu staða þar sem Skatt- rannsóknarstjóri gerði húsleit fyrir nokkru. Sigurður segist ekk- ert hafa út á það að setja. Sigurður segir íþróttafélögin borga 5.000 krónur fyrir leyfi til að halda stóra dansleiki en þau greiði ekki virðisaukaskatt auk þess sem þau geri ekki grein fyrir því hver sjái um öryggisgæslu. Því geti íþróttafélögin greitt hljómsveitum himinháar upphæð- ir fyrir að spila. „Þetta er sam- keppnin sem við þurfum að búa við og hún er styrkt af hinu opin- bera. Maður ætti kannski að breyta Gauknum í íþróttafélag,“ segir Sigurður. Skúli Eggert Þórðarson skatt- rannsóknarstjóri vísar gagnrýn- inni á burg og segir að ákaflega margir sem verði fyrir aðgerðum skattayfirvalda telji að aðgerðirn- ar ættu að beinast að öðrum en þeim sjálfum. – jse Félag íslenskra bifreiðaeigenda: Gagnrýnir auglýsingar Olís VERSLUN „Mér þykja þetta heldur einkennileg vinnubrögð hjá Olís að básúna slíkt þegar um gamla könnun er að ræða,“ segir Run- ólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann gagnrýnir auglýsingaherferð Olís þar sem fram kemur að mikil almenn ánægja sé hjá við- skiptavinum fyrirtækisins sam- kvæmt könnun Gallup. Runólfur bendir á að könnun sú er Olís notast við í auglýsing- um hafi verið tekin áður en fyrstu fregnir bárust af samráði olíufélaganna og segist ekki í vafa um að staðan sé allt önnur í dag. „Svona vinnubrögð eru vafasöm þar sem almenningur gerir sér ekki grein fyrir að könnunin fór fram í júlí og októ- ber í fyrra og þess utan eru að- eins um 25 fyrirtæki sem taka þátt í henni. Að mínu viti er verið að slá ryki í augu neytenda enda staðan eflaust önnur í dag.“ - aöe Mannréttindi á Íslandi gagnrýnd Mannréttindaskýrsla Íslands var lögð fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. Breytingar á refsirétti og óljós skilgreining á hryðjuverkum er gagnrýnd. Lýst er yfir áhyggjum vegna þess hve fáar nauðgunarkærur leiða til dóma. MANNRÉTTINDI Á fundi mannrétt- indanefndar Sameinuðu þjóðanna á miðvikudaginn var skýrsla Íslands rædd. Sérfræðingar nefndarinnar gagnrýndu breytingar á refsirétti sem beinast að hryðjuverkaógninni og sögðu að skilgreiningin á hryðju- verkum væri of óljós og gæti ógnað mannréttindum hér á landi. Hætta væri á að mótmæli, sem væru eðli- leg í lýðræðislegu þjóðfélagi, væru skilgreind sem hryðjuverkaógn. Því er mælt með því að hryðjuverk verði frekar skilgreind í lögum. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra segir skilgreininguna vera álitamál sem rædd sé af löggjafar- og framkvæmdarvaldi alls staðar í heiminum. Hann er nú staddur í Varsjá, þar sem hann situr fundi dóms- og innanríkisráðherra Evr- ópuráðsríkja, þar sem skilgreining á hryðjuverkum hefur meðal ann- ars verið rædd. „Á vegum Evrópuráðsins er nú verið að leggja lokahönd á nýjan samning um varnir gegn hryðju- verkum, þar sem kjarnaatriði er einmitt að skilgreina mörkin á milli málfrelsis, fundafrelsis og trúfrels- is annars vegar og ólögmætra at- hafna hins vegar. Ég er viss um að samþykkt þessa samnings mun hafa mótandi áhrif á íslenska löggjöf eins og löggjöf annarra ríkja og ég skil athugasemdir mannréttinda- nefndarinnar sem hvatningu til okk- ar til að taka mið af þessari þróun,“ sagði Björn í tölvupósti til blaðsins. Eitt þeirra mála sem nefndin hafði sérstakar áhyggjur af var hversu fáir dómar falla vegna nauð- gana með hliðsjón af fjölda kæra. Einn sérfræðinga nefndarinnar lagði það til að dómarar og lögreglu- menn fái sérstaka þjálfun vegna nauðgunarmála, auk þess sem sál- fræðingar verði betur nýttir til að komast að sannleikanum í nauðgun- arkærum. Að sögn Björns er verið að endurskoða lög um meðferð op- inberra mála, starfi sem á að vera lokið í haust, en þar er komið inn á endurskoðun réttarfarsreglna. Þær snúa meðal annars að nauðgunar- málum. svanborg@frettabladid.is Ráðning fréttastjóra: Trúverðug- leiki er í hættu RÍKISÚTVARPIÐ Miðstjórn Bandalags háskólamanna lýsir yfir áhyggjum af því að trúverðugleiki Útvarpsins bíði hnekki vegna ráðningar Auðuns Georgs Ólafssonar í starf frétta- stjóra. Miðstjórnin ræddi málið á fundi sínum í fyrrakvöld. Í ályktun henn- ar segir, að hún mótmæli harðlega að gengið hafi verið fram hjá fag- legum kröfum við ráðninguna. Ljóst er að misræmi er milli aug- lýsinga um starfið og þeirra þátta sem réðu niðurstöðu, segir í sam- þykktinni. „Miðstjórn BHM tekur undir áhyggjur af því að trúverðug- leiki útvarpsins bíði hnekki vegna ráðningarinnar og meðferðar máls- ins.“ - jss Robert Blake: Sýknaður af ákærum LOS ANGELES, AP Bandaríski leikar- inn Robert Blake var í fyrradag sýknaður af ákærum um að hafa myrt eiginkonu sína, Bonny Lee Bakley, árið 2001 og að hafa reynt að fá leigumorðingja til verksins. Blake var mjög hrærður eftir að dómurinn var kveðinn upp og kjökraði hástöfum. Það fyrsta sem hann gerði þegar hann kom út úr dómssalnum var að kveikja sér í sígarettu og skera af sér staðsetningararmband sitt. Frægðarsól Blakes reis hæst á áttunda áratugnum þegar hann lét í sjónvarsþáttunum Baretta. ■ 899 kr m vsk M ANNLÍF Mars 2005 3. tbl. 22. árg . 899 kr. m.vsk. SKILNAÐUR ALLTAF SÁR SÉRBLAÐ UM FERÐIR EYÞÓR ARNALDS HEFU R NÁÐ HÆSTU TINDUM Í TÓNLIST OG VIÐSKI PTUM EN VERIÐ ÓFEIM INN VIÐ AÐ SÖÐLA UM. Í E INLÆGU VIÐTALI VIÐ M ANNLÍF SEGIR HANN F RÁ SKILNAÐINUM VIÐ MÓEIÐI JÚNÍUSDÓTTUR OG TU GMILLJÓNATAPI VEGN A VIÐSKIPTA VIÐ FYRR UM EIGENDUR SKJÁSE INS FJÖLSKYLDUSAGA FORSÆ TISRÁÐHERRA NÆRMYND AF HALLDÓRI ÁSGRÍMSSY NI METRÓMAÐURINN OG TÍSKAN 4. . :273 2005 14:06 VERTU UPPLÝSTUR SPENNANDI BORGARFERÐIR • TYRKLAND LAÐAR • ÖRYGGI Á HÁLENDINU • ÆVINTÝRI Í EYJAHAFINU • Á SKÍÐUM Í ASPEN M AN N LÍF FERÐ ABLAÐ vor 2005 KÍNAHVERFIÐ ÍNEW YORK HRIKALEGA GRÆNLAND Á SÝRLENSKUM MARKAÐI VERSLAÐ Í GLASGOW SPÆNSKUNÁM Í PERÚ Sérblað um ferðalög fylgir með Er Halldór Ásgrímsson kvóta kóngur? Fráskilinn Eyþór segir sögu sína. ■ BANDARÍKIN FEGURÐARDROTTNING SÝKNUÐ Sharron Nicole Redmond, ungfrú Savannah í Georgíuríki, var í gær sýknuð af því að hafa skotið unnusta sinn árið 2003. Hjóna- leysin höfðu deilt og hélt Red- mond að unnustinn væri að teygja sig í byssu og því skaut hún hann. Kviðdómur taldi að um sjálfsvörn hefði verið að ræða. Raforkunotkun Íslendinga: Sú mesta í heiminum IÐNAÐUR Raforkunotkun Íslendinga er sú mesta í heiminum og notaði hver íbúi að meðaltali 29.500 kílóvattstundir af raforku á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum frá Orkuspánefnd. Þá var aukning á al- mennri forgangsnotkun sú mesta í 20 ár eða frá 1987. Raforkunotkun hefur aukist mikið síðustu ár, aðallega vegna eflingar orkufreks iðnaðar. Raf- orkunotkun stóriðju stóð í stað á síðasta ári eftir mikla aukningu á árunum 1996-2003. - sgi GAUKUR Á STÖNG Eigandi Gauks á Stöng segist ekkert hafa að fela fyrir skattayfirvöldum. Hann telur að skatta- yfirvöld ættu að athuga íþróttafélögin og þá sem halda dansleiki í nafni slíkra félaga. VAFASAMUR HEIÐUR Könnun sú er sýnir mikla ánægju almennings með viðskipti sín hjá Olís er tekin áður en fregnir bárust af samráði olíufélaganna. Það kemur hvergi fram í auglýsingum olíufélagsins. DÓMSMÁLARÁÐHERRA ER Í VARSJÁ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er nú staddur á fundi í Varsjá þar sem skilgreining á hryðjuverkum var á dagskrá. MIKILL LÉTTIR Leikaranum létti mikið eftir að dómur var kveðinn upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.