Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 12

Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 12
Í LÓFA LAGIÐ Michael Jackson veifaði aðdáendum sín- um fyrir utan dómsalinn í Santa Maria. Réttarhöldin eru í fullum gangi og hefur meint fórnarlamb popparans borið vitni í vikunni. 12 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR IÐNAÐUR Tilboð Slippstöðarinnar á Akureyri í endurbætur á varð- skipunum Ægi og Tý var metið þriðja hæsta tilboðið. Slippstöðin var metin jöfn pólska fyrirtækinu Morska, sem var hlutskarpast í útboðinu, í reynslu. Þá var Slipp- stöðin metin tveimur stigum neð- ar en Morska í verði. Þar hlaut Slippstöðin 68 stig, en Morska 70 stig. Pólska skipasmíðastöðin Nauta var talin vera með annað besta tilboðið, fékk átta sigum minna en Slippstöðin fyrir verð og tveimur stigum minna fyrir reynslu. Það sem skipti mestu máli var að Slippstöðin hlaut ekkert stig fyrir ISO-vottun, en Morska hlaut 20 stig, sem og Nauta. Í tilkynningu frá Landhelgis- gæslunni segir að hlutur ISO-vott- unar í stigagjöf hafi verið ræki- lega kynntur í útboðsgögnum og Gæslunni sé ekki kunnugt um að bjóðendur hafi gert athugasemdir við það. Þá segir í tilkynningu að Land- helgisgæslan taki ekki sjálfstæð- ar ákvarðanir um við hvern sé rætt eða samið, hún sé skyldug að skipta við Ríkiskaup og bjóða út svo stór verkefni á Evrópska efnahagssvæðinu. - ss Auglýsingar ýta undir átraskanir Sterk ímynd auglýsingaiðnaðarins stuðlar að því skelfilega og vaxandi vanda- máli sem átröskun er, að mati landlæknis. Hann leggur áherslu á að nýta beri það sóknarfæri sem opnun nýrrar göngudeildar á Landspítala býður upp á. HEILBRIGÐISMÁL Auglýsingaiðnaður- inn ýtir undir átraskanir, að mati Sigurðar Guðmundssonar land- læknis. Embættið hefur starfað að úrlausnum þessa vaxandi vanda ásamt starfsfólki Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) og fleirum á heilbrigðissviði. Fram hefur komið að um 60 nýj- ar beiðnir vegna átröskunar hafa borist til geðsviðs LSH á undan- förnum árum. Á síðasta ári tvöfald- aðist tala þeirra barna sem greindust með þennan sjúkdóm á Barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut. Fjöldi þeirra fór þá úr tíu til fimmtán í 30. Þetta þýðir að á síðasta ári bættust að minnsta kosti 90 átröskunarsjúklingar í þann hóp sem fyrir var á geðdeildum LSH. Gera má ráð fyrir að hópur fólks hafi einnig leitað til heilsugæslu- stöðva, sálfræðinga og annarra fagaðila vegna átraskana. Í vikunni var ný göngudeild fyr- ir þennan sjúklingahóp tekin í notkun á geðsviði LSH. Samkvæmt upplýsingum frá Eydísi Svein- bjarnardóttur vantar 16 til 18 millj- ónir króna til að hægt sé að keyra þjónustuna þar eins og hægt er með því sérmenntaða fagfólki sem er á spítalanum. „Það er enginn vafi á því að það skelfilega og vaxandi vandamál sem átröskun er tengist samfélags- breytingum nútímans,“ segir landlæknir. „Ég er sannfærð- ur um að hluti af vandanum er þessi sterka ímynd auglýsingaiðn- aðarins, snyrtivöruiðnaðarins og skemmtiiðnaðarins á ungar stúlkur sérstaklega, en einnig á einstaka drengi. Séu ákveðin geðlagsein- kenni fyrir hendi er fólk móttæki- legra fyrir sterkum áhrifum eins og eru látin dynja yfir okkur allan daginn. Sumir einstaklingar í sam- félaginu hafa minni varnir en fjöld- inn og fara yfir í átröskun. Þetta er ekki sjálfskaparvíti eins eða neins. Þetta er geðröskun.“ Sigurður segir að byggja þurfi upp þverfaglega þjónustu. Hún þurfi að beinast fyrst og fremst að fræðslu til umhverfisins, aðstand- enda, sjúklinga, meðferð á göngu- deild og dagdeild. Jafnframt þurfi að vera fyrir hendi aðgangur að sjúkrahúslegu, annað hvort á geð- deild eða jafnvel lyfjadeild. Þörf á því að leggja átröskunar- sjúklinga inn á sjúkrahús sé yfirleitt lítil. Langflestum sé hægt að sinna á göngudeildum og dag- deildum. Efla þurfi þjónustuna við þá á Landspítala – háskólasjúkra- húsi. Nú sé sóknarfæri eftir opnun nýju göngudeildarinnar. jss@frettabladid.is – hefur þú séð DV í dag? MÓÐIR HARMI SLEGIN Þeir slepptu manninum sem nauðgaði níu ára dóttur minni FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FRÁ SLIPPSTÖÐINNI Á AKUREYRI Fékk ekki endurbætur á varðskipum því að alþjóðlega staðalvottun vantaði. Slippstöðin á Akureyri: Vantaði ISO-vottun FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K R IS TJ ÁN EINKENNI ÁTRÖSKUNAR Eitt einkenna átröskunar er ef farið er fljótlega í sturtu eftir hverja máltíð. Það getur bent til þess að viðkomandi láti vatnið fossa á meðan hann losar sig við matinn í klósettið. Myndin er sviðsett. SVEITARSTJÓRNARMÁL Margrét Sverr- isdóttir lýsti því yfir í gær að hún sæktist eftir öðru sæti á lista Frjálslyndra fyrir næstu borgar- stjórnarkosningar. Á sama tíma lýsti hún yfir stuðningi við Ólaf F. Magnússon í fyrsta sætið og sagði það fagnaðarefni að hafa jafn reyndan mann í fyrsta sæti. Þau skipa nú fyrsta og annað sæti F-list- ans. Margrét sagðist vonast til að verða kjörin. Ef það gengi eftir yrði Frjálslyndi flokkurinn væntanlega í oddastöðu í borgarstjórn og hefði mikla burði til að sækja fram. „Við erum ekki sjálfkjörin,“ sagði Ólafur en miðstjórn flokksins tekur ákvörðun um uppröðun á lista. Hvorugt þeirra á von á því að prófkjör verði haldið. Borgarstjórnarflokkur Frjáls- lyndra hefur opnað nýja heimasíðu: www.f-listinn.is. Með því má segja að kosningabarátta flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem verða í maí á næsta ári sé hafin. Frjálslyndi flokkurinn hyggst á næstu dögum dreifa veggspjöldum sem gerð voru vegna baráttunnar fyrir varðveislu götumyndar og elstu byggðarinnar við Laugaveg. - ss Borgarstjórnarflokkur F-lista: Kosningabaráttan hafin HEIMASÍÐAN OPNUÐ Ólafur F. Magnússon og Margrét Sverris- dóttir hafa gefið kost á sér í fyrsta og annað sæti á lista Frjálslyndra í næstu borgarstjórnarkosningum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.