Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 25

Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 25
3FÖSTUDAGUR 18. mars 2005 Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR EFTIRRÉTT Eplakurl hamingjunnar Sagt er að fátt sé hlýlegra í húsi en ilmur af kanil og bökuðum eplum. Að sama skapi er haft fyrir satt að þessi eftirréttur, bragð hans og angan, útlit, áferð og hollusta, tendri hamingjuneista í hjört- um fólks, í það minnsta í brjóstum sem að geta fundið til. Byrjið á því að kjarnhreinsa eplin og skera niður í frekar litla bita. Eplahýðið getur verið á eða ekki, allt eftir smekk hvers og eins. Smyrjið botninn á ofnföstu fati og dreifið svo eplunum yfir botn fatsins og stráið yfir þau kanil. Blandið höfrum, eplakökuraspi og sykri saman í skál og vinnið mjúkt smjörið saman við með höndun- um. Þessari blöndu er svo dreift yfir eplin og allt bakað í 200 gráðu ofni í 25 til 30 mínútur. Ef hafrarnir dökkna um of, setjið þá álpapp- ír yfir bökuna síðustu mínúturnar. Berið fram með bólstrum af drif- hvítum rjóma. 3 græn epli (kjarnhreinsuð og skorin í litla bita) 2 dl grófar hafraflögur 2 dl eplakökurasp 2 dl púðursykur 1 tsk. kanill 100 g smjör SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* Ertu með í mjólkurferð? Kátt er nú hjá öllum mjólkursvelgjum enda mjólkin víða seld á spottprís. Sumir gætu farið að dæmi Kleópötru og baðað sig upp úr mjólkinni en aðrir kjósa hana frekar innvortis. Mjólk má drekka á ýmsan hátt og hér eru nokkur tilbrigði. KANADÍSK MJÓLK 1 bolli mjólk eða léttmjólk 1/2 bolli litlir sykurpúðar 1/2 teskeið vanilludropar 1 matskeið hlynsíróp Hitið mjólkina í litlum potti. Setjið sykurpúða, vanilludropa og síróp í hitabrúsa og hellið heitri mjólkinni varlega yfir. Setjið lokið á og hristið brúsann í svona 20 sekúndur eða þar til blandan er farin að freyða og sykurpúðarnir eru bráðnaðir. Opnið varlega, hellið í krús og berið fram. INDVERSKT MJÓLKURTE 4 bollar vatn 8 negulnaglar 4 heilar kardimommur 1 teskeið fenníkufræ 1 kanilstöng 5 cm sneið af ferskum engifer 3 pokar af Darjeeling-te eða 3 matskeiðar af Darjeeling-telaufum 1 bolli léttmjólk eða fjörmjólk 1/4 bolli sykur Blandið saman kryddi og vatni í meðal- stóran pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann, setjið lokið á og látið malla í tíu mínútur. Bætið tepokunum út í og takið pottinn af hellunni. Lokið aftur og mallið í hálftíma. Síið svo vökvann ofan í annan pott og bætið sykri og mjólk í. Sjóðið aftur þar til sykurinn leys- ist alveg upp. Hellið í fjórar könnur eða há kaffiglös og skreytið með kanilstöng- um og appelsínuberki. HNETUHRISTINGUR 1 bolli kekkjalaust hnetusmjör 1/4 bolli súkkulaðisíróp 1 1/4 bolli mjólk 12 ísmolar Blandið saman hnetusmjöri, súkkulað- isírópi, mjólk og ísmolum í matvinnslu- vél. Hellið í há glös og skreytið með súkkulaðispænum. HOLLUR MORGUNHRISTINGUR 3 bollar undanrenna 1/4 bolli All Bran 1/4 teskeið kanill 1/2 teskeið vanilludropar 1 meðalstórt epli í sneiðum Frystið 2 1/2 bolla af undanrennu í ísmolabakka yfir nótt. Setjið All Bran, kanil, vanilludropa og epli í matvinnslu- vél og blandið saman við 1/2 bolla af undanrennu. Blandið saman í 20 sek- úndur. Bætið frosnu undanrennumolun- um einum af öðrum út í hristinginn þar til ákjósanlegri áferð er náð, en hún fer eftir smekk hvers og eins. Geymið af- ganginn frosinn til seinni nota. Í staðinn fyrir epli má nota hvaða ávexti sem er. Vín frá vínhúsi ársins á Spáni á kynningarverði Íberískir dagar sem staðið hafa yfir í Vínbúðunum frá miðjum febrúar lýkur nú um helgina og fer því hver að verða síðastur að tryggja sér gæðavín á kynningar- verði. Eitt athyglisverðasta vínið á íberísku dögunum er Baron de Ley Reserva, frábært matarvín sem á vel við flest rautt kjöt og grillmat. The International Wine and Spirit Competit- ion í London útnefndi nýlega spænska vínhúsið Baron de Ley besta spænska vínframleiðand- ann fyrir árið sem var að líða. Baron de Ley var stofnað 1985 og hefur á þessum skamma tíma unnið sér inn orðstír sem nútímalegt vín- fyrirtæki sem framleiðir gæðavín á góðu verði. Mikið gæðaeftirlit er með vínuppskerunni og eru allar þrúgur handtíndar til þess að auka á gæðin. Vínið er svo sett yfir á eikartunnur þar sem amerísk eik er notuð í meirihluta en í bland við franska eik. Kynningarverð 1.390 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.