Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 34
6 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
74
76
12
/2
00
5
Kira 3
Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi.
Fermingartilboð
8.990 kr.
Verð áður 10.990 kr.
Tjöld frá 5.990 kr.
„Þessi athöfn var náttúrlega merki-
leg á þeim tíma en ég fermdist bara
því allir aðrir gerðu það. Ég hef
aldrei verið sérstaklega trúaður
þannig að ég fylgdi bara flæðinu.
Ég fékk smá pening og var ánægð-
ur með það. Reyndar fengu margir
í kringum mig tvö eða þrjú hund-
ruð þúsund en ég fékk bara fimm-
tíu þúsund krónur, sem var fínt,“
segir Karl sem lagði peningana þó
ekki inn í bók og safnaði vöxtum.
Við tal um fermingardaginn rifj-
ast upp fyrir Karli hvimleið minning
sem hann vildi helst gleyma. „Dag-
inn áður en ég átti að fermast var ég
neyddur í ljós. Ég skaðbrann og gat
ekkert sofið um nóttina af því að
húðin flagnaði af mér. Ég hef líklega
ekki verið nógu sætur fyrir mömmu
og þess vegna sendi hún mig í ljós.
Ég hef ekki farið í ljós síðan og ég er
mjög feginn að það voru engar
myndir teknar af mér á fermingar-
daginn,“ segir Karl en móðir hans
sleppti því að mála hann. „Það hefði
verið frekar svalt að vera málaður
og ég held að við ættum að reyna að
koma því á að strákar séu málaðir í
fermingunni.“
„Ég fékk fullt af drasli í ferming-
argjöf eins og skrautskriftarpenna-
sett – hvað á ég að gera við það?“
spyr Karl þegar blaðamaður spyr
hann út í fermingargjafirnar. „Ég
fékk reyndar utanlandsferð frá
frænku minni sem átti heima í Lúx-
emborg á þessum tíma. Ég fór að
heimsækja hana og það var algjör
ævintýraferð.“
1. Taktu kjúklingavængina og
skerðu þá í sundur á liðamótun-
um þannig að tvö stykki verði
til úr hverjum væng.
2. Raðaðu þeim á ofngrind og
settu í 180 gráðu heitan ofn í
35-45 mínútur.
3. Taktu þá út og penslaðu
2–3svar með buffalo wings
sauce (fæst í krukkum í mat-
vöruverslunum).
4. Settu þá aftur inn í heitan
ofninn í 35-55 mínútur.
5. Rétt áður en þeir eru teknir
úr ofninum er tilvalið að láta þá
standa undir grillinu í smá
stund.
Ef þú vilt undirbúa þetta degin-
um áður er sniðugt að fara í
gegnum atriði 1-3 og láta þá
svo standa í ísskáp í sósunni
yfir nótt. Þannig að daginn eftir
er nóg að setja þá inn í ofn til
að hita þá. Það getur líka verið
ágætt að pensla svo aðeins yfir
með sósu áður en þeir eru
bornir fram.
GRÁÐAOSTASÓSA
1 dós sýrður rjómi
1 gráðaostur
Gráðaosturinn er mulinn og
blandaður saman við sýrðan
rjóma.
Berðu vængina fram með
gráðaostasósunni og sellerí-
stöngum sem gott er að dýfa í
sósuna. Settu líka stafla af
servíettum við hliðina á því
puttarnir verða klístraðir.
Karli finnst merkilegt að krakkar í Noregi fermist fjórtán ára en megi ekki skrá sig úr þjóðkirkjunni fyrr en þeir hafa náð átján ára aldri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Skaðbrann daginn fyrir fermingu
Karl Ingi Karlsson, söngvari og forritari í hljómsveitinni Dáðadrengjum, fermdist árið
1995 í Áskirkju. Hann átti ekki sjö dagana sæla fyrir ferminguna og er feginn að sá at-
burður var ekki festur á filmu.
BUFFALO KJÚKLINGAVÆNGIR
Einn af eftirlætisréttum Arons Inga.
Buffalo vængir eru sterkir kjúklingavængir
sem bornir eru fram með gráðaostasósu og sellerí.
Aron Ingi Agnarsson fermist í
Grindarvíkurkirkju á skírdag og
segist hlakka alveg rosalega til.
Hann hefur tekið virkan þátt í
undirbúningnum og tekið sjálfur
ákvarðanir um minnstu smáatriði.
„Fyrir veisluna valdi ég alla upp-
áhaldsréttina mína sem mamma býr
til,“ segir Aron Ingi og bætir við að
mestu skipti að á veisluborðinu séu
kjúklingabringur og nammi.
Hann valdi einnig servíetturnar
á borðin og litina sem verða alls-
ráðandi í veislunni, blár og límónu-
grænn. „Ég þurfti að skoða svolítið
til að sjá hvað ég vildi, mér fannst
það svo sem ekkert leiðinlegt en
ekkert gaman heldur,“ segir Aron
Ingi sem þykir það mikilvægt að
hann velji allt sjálfur, enda sé þetta
hans veisla.
„Ef mamma hefði bara ráðið
þessu þá hefði allt bara orðið
bleikt,“ segir Aron Ingi og hlær.
Aron Ingi segist ekki hafa haft
nokkrar efasemdir um að fermast
og hann sé með trúmálin á hreinu,
enda fékk hann 10 í trúarbragða-
fræði í skólanum tvisvar í röð. „Það
ætti ekki að vera neitt mál að ferm-
ast,“ segir Aron Ingi.
Hvað fermingargjafirnar varðar
segist hann helst vilja fá pening.
„Ég er að safna mér fyrir tölvu og
síma,“ segir Aron Ingi ákveðinn og
augljóslega með hlutina á hreinu.
Býður upp á kjúklinga-
bringur og nammi
Aron Ingi Agnarsson hefur valið allt sjálfur hvað
viðkemur fermingunni og veislunni.