Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 39
Vegna mistaka sem
urðu í innslætti á
uppskrift að Rice
krispies kransaköku í
síðasta fermingarblaði
birtist hún hér aftur
leiðrétt.
2x240 g Petit ekta
suðusúkkulaði
(eða hjúpsúkkulaði)
1 lítil dós síróp
(þessar grænu)
150 g smjör
230 g Rice krispies
Súkkulaðið, smjörið og
sírópið er brætt saman við
vægan hita. Rice krispies er
hrært út í. Síðan er þetta
sett í kransakökuform þar
sem hver hringur fyrir sig
hefur verið fóðraður með
plastfilmu. Setja þarf form-
in meira en sléttfull og
þrýsta deginu vel saman
þannig að hringirnir verði
sem þéttastir. Síðan eru
hringirnir látnir kólna, til
dæmis yfir nótt, og síðan
límdir saman með doppum
af bræddu súkkulaði. Kök-
urnar eru skreyttar að vild.
RICE KRISPIES
KRANSAKAKA
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { FERMINGAR } ■■■ 11
SÍGILDUR RÆKJURÉTTUR
Kaldir brauðréttir
eru alltaf vinsælir
á hlaðborð, hvort
sem um er að
ræða kaffiveislu
eða kalt matar-
borð.
200 g rækjur
4 sneiðar skinka
3 harðsoðin egg
1 dós sýrður rjómi 5 msk.
majones
3 msk. franskt sinnep
2 tsk. karrí
6 brauðsneiðar (heilhveiti- eða
franskbrauð)
1/2 dós kurlaður ananas
Grænmeti til skrauts og jafnvel
harðsoðin egg
Eggin eru skorin smátt og
hrærð út í sýrða rjómann,
majonesið, sinnepið og karríið.
Hluti af hrærunni er settur í
botninn á formi eða fati.
Brauðsneiðarnar lagðar ofan á.
Ananasinum, ásamt safanum,
dreift yfir. Skinkan sem skorin
hefur verið í smábita kemur
næst. Þar ofan á afgangurinn af
hrærunni sem fyrst var búin til.
Þá loks er komið að rækjunum.
Þeim er raðað fallega yfir allt
saman og fatið skreytt með til-
tæku grænmeti og jafnvel
eggjabátum.