Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 48

Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 48
4 eggjahvítur sítróna 16 msk. sykur 1 tsk. hvítvínsedik 2 tsk. maísenamjöl nokkrir vanilludropar Smyrjið skál að innan með sítrónusafa. Þeytið eggjahvíturnar í skálinni þar til þær eru nærri því stífþeyttar. Hrærið svo sykrinum varlega saman við og bætið edik- inu og maísmjölinu út í. Að lokum bætið þið vanilludropunum var- lega við með skeið . Setjið smjörpappír á bökunarplötu, gerið rúmlega 20 cm hring og hellið deiginu innan hans. Passið að dreifa ekki of mikið úr deiginu svo að marengsinn verði ekki þunnur og stökkur. Forhitið ofninn í 180˚C en stillið niður í 150˚C þegar þið setjið marengsinn inn í ofninn og bakið í 45-50 mínútur. Látið hann kólna inni í ofninum. Smyrjið þeyttum rjóma yfir mar- engsbotninn. Setjið svo ávexti eða ber, til dæmis ástaraldin, bláber, rifsber eða brómber, ofan á rjó- mann. Helst súra ávexti til að vega upp á móti sykrinum í mar- engsnum. 20 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ GJÖF SEM GAGNAST ÖÐRUM > ABC-barnahjálp starfrækir skrifstofur hér á landi en samtökin eru starfandi um allan heim. Á heimasíðu samtakanna er hægt að gefa fé til styrktar starfsem- inni, bæði almennt en einnig er hægt að styrkja ein- stök verkefni um einstaka hluti og húsmuni. Það er til dæmis hægt að gefa fermingarbarninu borð og stól í skólastofu í Úganda fyrir 2.000 krónur, dýnu til að sofa á fyrir 1.500 krónur eða hálfan fermetra á El Shaddai barnaheimilinu í Indlandi sem kostar 8.500 krónur. Einnig er hægt að veita barni skólagöngu og læknishjálp í tvo mánuði fyrir u.þ.b. 7.000 krónur. Þannig fær fermingarbarnið á tilfinninguna að það hafi lagt eitthvað af mörkum til heimsins alls og að ferming þess hafi komið einhverjum öðrum en bara því sjálfu til góða. Starfsfólk ABC-barnahjálparinnar útbýr skjal þar sem tiltekið er hve há upphæð er gefin og í nafni hvers. Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðu samtakanna: www.abc.is. < URÐ OG GRJÓT UPP Í MÓT Ef þig grunar, eða rekur minni til, að fermingarbarnið hafi gaman af því að klifra er klifurnámskeið örugg- lega vel þegin gjöf. Í Klifurhúsinu í Skútuvogi er hægt að komast í klifurvegg og einnig verða haldin skemmtileg námskeið fyrir unglinga í sumar þar sem klifrað verður bæði inni og úti. Í klifur þarf engan út- búnað nema skó og þeir eru til leigu í húsinu þannig að það þarf ekkert nema áræði og dug til að klifra frá sér allt vit. Sumarnámskeiðin kosta 10.000 krónur og standa yfir í viku en einnig er hægt að gefa æfinga- kort sem kostar 4.100 krónur fyrir einn mánuð. Allar upplýsingar eru veittar í Klifurhúsinu og á vefnum www.klifurhusid.is og þar eru einnig útbúin gjafakort. VARAÐU ÞIG, TIGER WOODS > Golf er góð íþrótt sem öll fjölskyld- an getur stundað saman og ekki ónýtt að gefa fermingarbarninu byrjendanámskeið í golfi. Golf- akademía Reykjavíkur stendur í sumar fyrir tveggja vikna nám- skeiðum sem standa frá 9-13 virka daga og kosta 16.000 krónur. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Golf- sambandi Reykjavíkur. IDOL STJÖRNUGJÖF > Hvern langar ekki til að verða poppstjarna? Hægt er að fá staka tíma hjá færum kennurum, bæði í söng og hljóðfæraleik, og einfald- ast að leita í gulu síðunum að kennurum á því sviði sem áhugi barnsins beinist að. Í Söngskóla Maríu og Siggu er hægt að fá allt á einum stað og þar er til dæmis boð- ið upp á kennslu á gítar, hljómborð og svo auðvitað í söng. Námskeið- in kosta í kringum 35.000 krónur, sem er frekar dýrt fyrir eina fjöl- skyldu en ef nokkrar taka sig sam- an er þetta sniðug gjöf. < GÖNGUM UPP Í GILIÐ Fátt er stórkostlegra en að skoða landið sitt á fæti og því fyrr sem börn eru kynnt fyrir undrum þess, því betra. Ferðafélag Íslands og Útivist bjóða upp á allar mögulegar gönguferðir, bæði langar og stuttar, erfiðar og auðveldar. Það er góð hugmynd að gefa einnig fé- lagsskap sinn eða einhvers fullorðins í ferðina þar sem börn yngri en 15 ára ættu að vera í fylgd með full- orðnum. Fermingarbarnið fær hluta af Íslandi að gjöf sem geymist með því alla ævi. ÖÐRUVÍSI FERMINGARGJAFIR Sum börn og unglingar eiga svo mikið af hlutum að þau hafa ekkert að gera við meira. Hér eru nokkrar hugmyndir að öðruvísi gjöfum sem fermingarbarnið býr að lengi. > Ljúffeng og litrík Pavlova er marengsterta sem jafnan fellur í góðan jarð- veg hjá sælkerum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.