Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 58
Dílaskarfurinn er frjálslegur fugl sem er meðal þeirra fyrstu sem huga að hreiðurgerð á vorin. Hvort þetta par sem tyllti sér niður við Reykjavíkurhöfn var í þeim hugleiðingum skal ósagt látið. / Ljósmynd: Vilhelm
SJÓNARHORN
18. mars 2005 FÖSTUDAGUR 12
Vissir þú ...
...að mesta fjarlægð sem svifið
hefur verið í vélknúinni fallhlíf er
644 kílómetrar?
...að Connie Kissling frá Sviss hefur
unnið flesta heimsbikartitla
kvenna í skíðafimi?
...að Tony Canzoneri frá Bandaríkj-
unum var heimsmeistari í léttvelti-
vigt í 33 daga frá 21. maí til 23.
júní árið 1933, sem er stysti tími
sem hnefaleikamaður hefur haldið
titlinum?
...að Iolanda Balas frá Rúmeníu
sigraði 150 sinnum í röð í hástökki
frá 1956 til 1967?
...að Tracey Austin frá Bandaríkjun-
um var yngsta kona til að sigra í
einliðaleik á opna bandaríska mót-
inu en hún var aðeins 16 ára og
271 dags?
...að lengst starfandi fótboltadóm-
ari í heimi er Jozef Magyar frá
Ungverjalandi? Hann dæmdi í
fimmtíu ár en hann dæmdi sinn
síðasta leik 9. mars árið 2003.
...að hin breska Charlotte Church
var tólf ára og níu mánaða þegar
hún komst í efsta sæti breska vin-
sældalistans yfir sígilda tónlist og
var þar með yngst til að ná fyrsta
sæti sígilda listans í heiminum?
...að 210 tónlistarmenn söfnuðust
saman til að leika á didgeridoo í
tuttugu mínútur í Helitherme Bad
Waltersdorf í Austurríki 19. apríl
árið 2003?
...að mest selda lag frá því breski
vinsældalistinn hóf göngu sína
1952 er lag Eltons John „Candle in
the Wind 1997/Something About
the Way You Look Tonight“ sem
seldist í 33 milljónum eintaka?
...að Elvis Presley hafði átt 135
smelli á breska vinsældalistanum í
apríl árið 2004?
...að fyrsta sjónvarpsauglýsingin,
sem kynnti gæði Bulova-úrs, var
sýnd á stöð NBC, WNBT í New
York, 27. júní árið 1941?
...að dýrasta tölvuteiknaða mynd í
heimi er Monsters Inc. frá Walt
Disney og Pixar Animation Studio
sem kostaði 8.280 milljónir ís-
lenskra króna?
...að fatafellan Krystyne Korful frá
Kanada er húðflúraðsta kona
heims en það tók hana tíu ár að
láta húðflúra 95 prósent af líkama
sínum?
...að diskur minnsta harða drifsins
er aðeins 2,16 sentímetrar í þver-
mál?
... að kaupsýslumaðurinn Marc
Ostrofsky í Bandaríkjunum seldi
netfangið business.com hinn 1.
desember árið 1999 fyrir 7,5 millj-
ónir dollara?
...að stærsta parafoil-fallhlíf sög-
unnar spannaði 43,6 metra og var
yfirborð hennar sjö hundruð fer-
metrar?