Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 60

Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 60
24 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR Stundum fá fréttirnar mann til þess að hugsa. Ekki veitir af. Merkilegt þetta með kristilegu kærleiksblómin og sprettuna. Þau eiga það víst til að poppa upp hér og hvar, það var lítil stúlka í Írak sem komst á forsíðu Frétta- blaðsins uppi á Íslandi í morgun fyrir að eitt að fíla páfann. Er það kannski svona svipað og ef lítill drengur í Austurbæjarskóla kæmist á forsíðu helsta blaðs í Írak fyrir að halda því fram að Bath-flokkurinn hans Saddam Hussein væri rosa svalur fyrir að stjórna uppreisninni gegn inn- rás Bandaríkjamanna í landið sitt. Í raun var stúlkugreyið á sama sjúkrahúsi og páfinn og var að gleðjast yfir því að hann hefði mótmælt stríðinu í Írak eins og margir aðrir, meira að segja uppi á Íslandi. En í hinu rúminu við hliðina á stúlkunni lá líka ung kona með AIDS á lokastigi, henni var ekki eins hlýtt til páfans vegna þess að hann hafði lagt blátt bann við að mennirnir sem keyptu þjónustu hennar notuðu smokk. Það var ekki minnst á hana á forsíðunni. En það var líka undarleg frétt í gær í útvarpinu þess efnis að breskur herforingi hefur verið settur til þess að rannsaka um 140 mál sem upp hafa komið um pynt- ingar og hrottaskap gagnvart föngum þeirra sem kalla sig hina viljugu í Írak. Þessir frelsandi herir undir forystu Bandaríkja- manna og Halldórs Ásgrímssonar. Þetta fannst mér nokkuð skondið. Að herforingi skuli vera settur til að rannsaka glæpi sinna eigin hermanna gagnvart föngum í landi sem þeir ráðast inn í án sam- þykkis Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ég legg til að við tökum upp þennan góða sið hér, með því til dæmis að láta barnaníðinga dæma í barnaníðingamálum, það hljómar verulega kristilega eins og þetta með hinn vangann. Og þar sem komið hefur í ljós að velflest öll þau rök sem gefin voru fyrir innrásinni í Írak stand- ast ekki, fyrir nú utan það sem ekki var talað um, að þar er fullt af olíu, væri vel hugsanlegt að nota sömu aðferð og bara rölta inn í Landsbankann og ná mér í soldinn pening; ég er ekki nógu ánægður með hann Björgólf og mig langar í peningana hans. Og svo yrði ég hvort sem er bara dæmdur af bankaræningjum og vafalaust látinn laus eins og gæinn sem ætlaði bara að borga fyrir sig þegar hann skar leigubíl- stjórann á háls. Hverjir eiga að dæma hann? Kjötiðnaðarmenn? Nei, Hæstiréttur Íslands lét hann lausan og hann fær meira að segja hnífinn sinn aftur, og brýni með. Já, blessaðar fréttirnar. En stundum verður maður að lesa á milli línanna. Hvers vegna halda Bandaríkjamenn að þeir séu ekki vinsælir í þriðja heiminum? Gæti það verið vegna þess að þeir predika stefnu í heimsmálum sem skapar fátækt og örbirgð? Þegar 9/11 gerðist var mikið spurt á CNN hvernig þetta hefði getað gerst, það hafði enginn kjark í það að spyrja, hvers vegna gerðist þetta? Sjálfsgagnrýni er fyrir aumingja. Það veina allir yfir fréttum af því hvernig fjárhagsleg neyð sendir börn í þrælkun, konur í vændi og menn í dauðann en hugsar aldrei neinn til þess að þetta er tilkomið vegna þess að auði heimsins er svo gífurlega ójafnt skipt og frelsi til þess að sölsa undir sig meiri auðæfi gagn- ast bara þeim sterku sem gera það í meira og meira mæli sem breikkar alltaf þetta bil. Ef þú átt tvo kyrtla þá gefurðu fátæka manninum einn, það gerir alltaf George Bush. Nei, það virðist ekki vera mik- ið af raunverulegum náungakær- leik í kristilegu froðusnakki Bandaríkjaforseta sem virkar alltaf eins og forritaður tölvu- haus, enda prógrammeraður af kærleikselskandi ofsatrúarmönn- um eins og Billy Graham sem vill eflaust snúa hinni rasskinninni að öllum þriðja heiminum. Sam- kvæmt fréttunum eru múslimar með einkaleyfi á orðinu „ofsatrú- armenn“. Finnst okkur þetta bara allt í lagi? Erum við og vinir okkar í Ameríku virkilega að bjarga heiminum, eða er bara status quo vegna þess að við höfum nóg að éta í dag og þurfum bara að hafa áhyggjur af því hvenær sé næst útsala í Ikea? ■ Á Íslandi er rekinn útlánamarkað- ur sem kalla mætti dýrustu banka- þjónustu í heimi. Hér er almenn- ingi gert að borga margfalt hærri vexti og fjármagnskostnað en þjóð- félagsleg rök mæla fyrir og marg- falt hærri en tíðkast í nágranna- löndum okkar. Kverkatak banka og fjármagnseigenda á almenningi er það mikið að það er farið að valda meiriháttar breytingum til hins verra á samfélaginu og kjörum launafólks og þá sérstaklega hjá láglaunafólki sem fer verst út úr þessu mammonskapphlaupi. Í okk- ar gósenlandi, þar sem hvert mannsbarn ætti að geta lifað góðu lífi, hefur fátækt fest rætur og herjar nú sífellt á fleiri einstak- linga í samfélaginu. Í þeirri hrinu, sem nú gengur yfir á fasteigna- markaðinum, snarhækka fasteign- ir í verði og greiðslubyrði íbúða- kaupenda eykst að sama skapi með þeim afleiðingum að húsaleiga mun hækka verulega og festa í sessi ört vaxandi fátækt. Allt venjulegt launafólk tapar en bank- arnir græða. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Vegna fákeppni á fjármála- markaði hafa lánastofnanir hér á landi komist upp með það að verð- tryggja mest alla þá peninga sem þær lána til lengri tíma en 5 ára. Þetta þýðir að lægstu raunvextir á íbúðalánum í dag eru um 9%. Á sama tíma greiða danskir launþeg- ar 4% raunvexti af sínum íbúðar- lánum. Því miður virðist sem ís- lenskir bankar og sparisjóðir ákveði einhliða og í samráði hver við annan hvað háir vextirnir skuli vera og bæta síðan verðtrygging- unni ofan á allt saman. Að minnsta kosti er nokkurn veginn sama vaxtaprósentan hjá þeim öllum. Þegar þeir svo lána óverðtryggð lán þá eru vextirnir miðaðir við verðtryggðu lánin og eru sjaldnast undir tveggja stafa tölu. Nú í tæplega 5% verðbólgu eru raunvextir hérlendis meira en tvö- falt hærri en tíðkast í nágranna- löndum okkar og gleymum því ekki að þessu til viðbótar taka íslenskir bankar og sparisjóðir mjög há þjónustugjöld, hærri en víðast hvar annars staðar. Þessi okurlána- starfsemi er hægt og bítandi að draga íslensk alþýðuheimili út í skuldafen, sem getur ekki endað öðruvísi en með gjaldþroti, nema leikreglum verði breytt og það hið fyrsta. Það á ekki að koma neinum á óvart, sem til þekkir, þó stórar hagnaðartölur komi frá bönkum og sparisjóðum og öðrum lánastofn- unum hérlendis. Sem dæmi má nefna að hagnaður KB banka það sem af er ársins skiptir tugum milljarða. Á sama tíma hækka skuldir heimilanna jafnt og þétt, en talið er að þær meira en tvöfaldist á hverju 5 ára tímabili. Þökk sé verðtryggingunni. Því miður finnst stjórnvöldum þetta eðlilegt ástand og reyna ekki að sporna við þessari öfugþróun, heldur hæla sér af ástandinu og telja það gott. Það má segja að ríkisstjórnir Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar hafi gefið stórum fjármagnseigendum veiði- leyfi á íslenskan almenning, bæði með einkavinasölu á ríkisbönkun- um og afskiptaleysi sínu varðandi þá okurvexti, sem almenningi er gert að borga. Verðtryggingarákvæði „Ólafs- laganna“ illræmdu og algjört frelsi íslenskra lánastofnana til að ákveða vexti og verðbætur hefur gert verkafólk að ánauðugum þrælum, sem mega prísa sig sæla ef þeir sleppa við að horfa á heim- ili sín verða gjaldþrota. Þessari illu ánauð bankaveldisins verður ís- lenskt launafólk að hrinda af sér, því það er ekkert sem mælir með því að hér eigi allt að vera verð- tryggt nema launin. Ég hef á annan áratug, bæði í blaðagreinum og í ályktunum sem ég hef flutt á þingum ASÍ, VMSÍ og SGS, mótmælt verðtryggingu út- lána og bent á að tekjur almenns launafólks dugi hvergi nærri til að borga slíka okurvexti af húsnæðis- lánum sínum. Ég mun halda þess- ari baráttu minni áfram svo lengi sem íslensku launafólki er boðið upp á margfalt verri lánakjör en tíðkast í nágrannalöndum okkar. Því miður hefur forusta Alþýðu- sambands Íslands alveg brugðist í baráttunni gegn verðtryggingu lána og þegir þunnu hljóði um mál- ið, þó greiðslubyrðin sé að sliga stóran hóp innan samtakanna. Mín skoðun er sú að miðað við þjóð- hagslegar forsendur á Íslandi og eðlilega samkeppni, en ekki sam- ráð og eftirhermur, ættu óverð- tryggðir vextir á íbúðalánum að vera um 4%. Annað er óeðlilegt. ■ Offita og sjónvarpsgláp Rannsóknir í Bandaríkjunum sýna að ein megin ástæða offitu þar í landi er sjónvarpsgláp á matmáls- tímum. Ef fólk horfir á sjónvarp á sama tíma og það borðar, borðar það meira (reyndar auðvelt að sanna). Fólk talar minna saman og borðsið- ir fara fyrir ofan garð og neðan. Í stað þess að fjölskyldan safnist saman í lok dags og ræði atburði dagsins, er horft á sjónvarp. Börnin eru jafnvel með eigin sjónvörp á sínum herbergjum og horfa á þau meðan þau borða (oftar en ekki skyndifæði). Í Bandaríkjunum er talað um að ný kynslóð barna sé að vaxa úr grasi, hin svokallaða „TV Dinner Toddlers“, eða sjónvarps- matarbörn. Þessi börn eru ekki að- eins feitari og kunna ekki borðsiði (borða að „hætti víkinga“), heldur hafa komið fram hjá þeim ýmis félagsleg hegðunarvandamál, svo sem að kunna ekki að tjá sig. Árlega deyja um 300.000 Bandaríkjamenn vegna sjúkdóma sem rekja má til offitu eða rúmlega þrefalt fleiri en láta lífið í slysum. Offita og tóbaksreykingar eru einnig alvarlegustu heilbrigðis- vandamál Íslendinga. Samkvæmt Landlæknisembættinu eru nú a.m.k. 20% íslenskra barna of þung og um 5% of feit. Landlæknir segir að aðeins eftir nokkur ár muni hlut- fallslega jafnmargir vera of feitir á Íslandi og í Bandaríkjunum. Á Íþróttaþingi ÍSÍ í fyrra voru kynnt- ar niðurstöður rannsókna sem gerð- ar voru á lífstíl 9 og 15 ára Íslend- ingum. Niðurstaðan var í stuttu máli að íslensk börn eru meðal feit- ustu barna í Evrópu. Kvöldmatarfréttatímar Ríkis- útvarpsins (RÚV) hafa í gegnum tíðina verið afar mikilvægur hluti af lífi fólks. Áhrif þess á líf okkar eru margvísleg. Fréttir eru eitt vinsælasta efni sjónvarpsstöðv- anna. Sjónvarpsfréttir eru klukkan hálf sjö á Stöð 2 og hálftíma síðar á RÚV – eða á kvöldmatartíma. Fyrir daga samkeppni í sjónvarpsrekstri voru aðeins sjónvarpsfréttir klukk- an átta – þá var fólk búið að borða, vaska upp og jafnvel koma yngstu börnunum í rúmið. Síðan fréttir voru færðar er fólk að reyna að horfa á þær á yfir kvöldmatnum. Ein helsta röksemdin fyrir færslu fréttatímanna var að breytingar væru að verða á lífsháttum, vinnu- tíminn að styttast þannig að fólk væri búið að borða fyrir fréttir. Í dag vitum við betur. Tölur benda til að foreldrar eyði minni tíma með börnum sínum en áður. Dvalartími barna á leikskólum hérlendis er til dæmis að lengjast. Til þess að stuðla að heilbrigðari fjölskyldu- háttum og bættri heilsu lands- manna ætti RÚV að færa sína aðal- fréttaútsendingu til klukkan níu (og sleppa tíu fréttum). Það gerist ekki það mikið á okkar litla landi að fréttir megi ekki bíða í tvo tíma. Fjölskyldur í Danmörku og Svíþjóð geta t.d. rólegar borðað sinn kvöld- mat því dönsku og sænsku ríkis- sjónvarpsfréttirnar eru klukkan níu, þó svo að vinnutími fólks þar sé mun styttri en hér. Einnig við getum lært það af frændum okkar að leyfa ekki auglýsingar (láta einkaljósvakana bítast um þá köku), þannig að stöðin okkar sé laus við auglýsingar, auglýsingar sem oft á tíðum hvetja til neyslu á óhollustu. ■ SIGURÐUR T. SIGURÐSSON STARFSMAÐUR HJÁ VERKALÝÐSF. HLÍF SKRIFAR UM VEXTI OG LÁNAMARKAÐ AF NETINU Fréttatimburmenn helgarinnar Þeir ríku verða ríkari Ótrúleg ákvörðun Ákvörðun útvarpsstjóra um ráðningu í starf fréttastjóra útvarps er ótrúleg. Hið sama má segja um þá umsögn útvarps- ráðs sem ákvörðunin byggist á. Það sér það hver maður að sá sem ráðinn var er ekki sá sem líklegastur er til að vera hæf- asti maðurinn. Hann hefur miklu minni reynslu af störfum á fréttastofu en þeir umsækjendur sem forstöðumaður fréttasviðs lagði til að ráðnir yrðu og hefur aðeins unnið fullt starf á slíkum vinnustað í nokkra mánuði, samanborið við upp í áratugareynslu annarra um- sækjenda. Þórður Sveinsson á mir.is SIGTRYGGUR BALDURSSON TÓNLISTARMAÐUR UMRÆÐAN FRÉTTIRNAR BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON VERKFRÆÐINGUR UMRÆÐAN ORSAKIR OFFITU Því miður hefur forusta Alþýðusam- bands Íslands alveg brugð- ist í baráttunni gegn verð- tryggingu lána og þegir þunnu hljóði um málið, þó greiðslubyrðin sé að sliga stóran hóp innan samtak- anna. ,,

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.