Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 61

Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 61
MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.903 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 289 Velta: 1.436 milljónir +0,06% MESTA LÆKKUN vidskipti@frettabladid.is Actavis 40,30 -0,49% ... Atorka 6,10 – ... Bakkavör 31,90 – ... Burðarás 13,95 +0,72% ... Flaga 5,50 +0, 36% ... Flugleiðir 14,30 – ... Íslandsbanki 12,10 +0,83% ... KB banki 534,00 – ... Kögun 59,20 +0,34% ... Landsbankinn 14,80 -0,67% ... Marel 57,00 +2,15% ... Og fjarskipti 4,13 -0,48% ... Samherji 12,00 -0,83% ... Straumur 10,15 – ... Össur 81,50 -0,61% Marel 2,15% Austurbakki 1,33% Íslandsbanki 0,83% Tryggingamiðstöðin -1,68% Samherji -0,83% Landsbankinn -0,67% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is 25FÖSTUDAGUR 18. mars 2005 Fiskmarkaður Íslands áminntur Skilaði ekki uppgjöri til Kauphallar á réttum tíma. Stjórn Kauphallar Íslands ákvað í gær að áminna Fiskmarkað Íslands fyrir brot á upplýsingaskyldu út- gefenda hlutabréfa. Fiskmarkaðurinn birti ekki árs- uppgjör sitt fyrir árið 2004 fyrr en 3. mars þrátt fyrir að stjórn félags- ins hafi samþykkt uppgjörið á stjórnarfundi 26. febrúar sl. Sam- kvæmt reglum Kauphallar Íslands skulu útgefendur birta uppgjör í kjölfar stjórnarfundar. Stjórnar- fundurinn var haldinn á laugardegi og því hefði átt að skila uppgjöri á mánudegi en það var ekki gert fyrr en á miðvikudegi. Tryggvi Leifur Óttarsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðar Ís- lands, harmar þau mistök sem áttu sér stað. Misskilningur milli stjórn- enda hefði valdið því að uppgjörið var ekki sent strax til Kauphallar- innar. „Sem betur fer áttu engin við- skipti sér stað með bréf félagsins milli mánudags og miðvikudags þannig að engir fjárfestar gátu nýtt sér þær upplýsingar sem fólust í uppgjörinu,“ segir hann. - eþa ÓRÓI Á MÖRKUÐUM Hækkandi olíu- verð getur haft víðtækar afleiðingar í efna- hagslífi Bandaríkjanna. Olíuverð rýkur upp Olíuverð heldur áfram að hækka. Tunnan fór yfir 57 dollara í gær og óttast margir að verðið kunni að hækka enn frekar á næstu misserum. Þetta gerist þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuframleiðslu- ríkja, ætli sér að auka framleiðsl- una. Hækkun olíuverðs hefur sett mark sitt á vísitölur bandaríska hlutabréfamarkaðarins sem hafa lækkað að undanförnu. Fjárfestar óttast að hátt olíuverð geti haft lamandi áhrif á bandarískt efna- hagslíf, dregið úr hagvexti, aukið verðbólgu og leitt til vaxtahækk- ana hjá bandaríska Seðlabankan- um. - eþa M YN D A P ÁNÆGÐIR MEÐ ÁRANGURINN Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka og stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins sem rekur Kauphöllina, og Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallar Íslands. Hagnaður hjá Kauphöll Eignarhaldsfélagið sem rekur Kauphöll Íslands hagnaðist um 101,5 milljónir króna í fyrra og er það besta afkoma fyrirtækisins. Á ársfundi Kauphallar Íslands í gær kom fram í máli Bjarna Ár- mannssonar, stjórnarformanns eignarhaldsfélagsins, að velta bréfa í Kauphöllinni hefði verið ríflega 2.200 milljarðar króna. Aukningin frá árinu 2003 er um fjörutíu prósent. Bjarni gat þess einnig að ís- lensk hlutafélög hefðu sótt 170 milljarða króna með nýskráningu bréfa í Kauphöllinni en sú upp- hæð væri þrefalt hærri en félög í Kauphöll Noregs öfluðu þótt sá markaður væri tífalt stærri en hinn íslenski. - þk ÁMINNTI FISKMARKAÐ ÍSLANDS Stjórnendur Fiskmarkaðarins brutu reglur Kaup- hallarinnar þegar þeir sendu ársuppgjör félags- ins of seint frá sér og voru áminntir fyrir vikið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.