Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 61
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.903
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 289
Velta: 1.436 milljónir
+0,06%
MESTA LÆKKUN
vidskipti@frettabladid.is
Actavis 40,30 -0,49% ... Atorka 6,10
– ... Bakkavör 31,90 – ... Burðarás 13,95 +0,72% ... Flaga 5,50 +0, 36%
... Flugleiðir 14,30 – ... Íslandsbanki 12,10 +0,83% ... KB banki 534,00
– ... Kögun 59,20 +0,34% ... Landsbankinn 14,80 -0,67% ... Marel
57,00 +2,15% ... Og fjarskipti 4,13 -0,48% ... Samherji 12,00 -0,83%
... Straumur 10,15 – ... Össur 81,50 -0,61%
Marel 2,15%
Austurbakki 1,33%
Íslandsbanki 0,83%
Tryggingamiðstöðin -1,68%
Samherji -0,83%
Landsbankinn -0,67%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
25FÖSTUDAGUR 18. mars 2005
Fiskmarkaður Íslands áminntur
Skilaði ekki uppgjöri til
Kauphallar á réttum tíma.
Stjórn Kauphallar Íslands ákvað í
gær að áminna Fiskmarkað Íslands
fyrir brot á upplýsingaskyldu út-
gefenda hlutabréfa.
Fiskmarkaðurinn birti ekki árs-
uppgjör sitt fyrir árið 2004 fyrr en
3. mars þrátt fyrir að stjórn félags-
ins hafi samþykkt uppgjörið á
stjórnarfundi 26. febrúar sl. Sam-
kvæmt reglum Kauphallar Íslands
skulu útgefendur birta uppgjör í
kjölfar stjórnarfundar. Stjórnar-
fundurinn var haldinn á laugardegi
og því hefði átt að skila uppgjöri á
mánudegi en það var ekki gert fyrr
en á miðvikudegi.
Tryggvi Leifur Óttarsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar Ís-
lands, harmar þau mistök sem áttu
sér stað. Misskilningur milli stjórn-
enda hefði valdið því að uppgjörið
var ekki sent strax til Kauphallar-
innar.
„Sem betur fer áttu engin við-
skipti sér stað með bréf félagsins
milli mánudags og miðvikudags
þannig að engir fjárfestar gátu nýtt
sér þær upplýsingar sem fólust í
uppgjörinu,“ segir hann.
- eþa
ÓRÓI Á MÖRKUÐUM Hækkandi olíu-
verð getur haft víðtækar afleiðingar í efna-
hagslífi Bandaríkjanna.
Olíuverð
rýkur upp
Olíuverð heldur áfram að hækka.
Tunnan fór yfir 57 dollara í gær
og óttast margir að verðið kunni
að hækka enn frekar á næstu
misserum.
Þetta gerist þrátt fyrir að
OPEC, samtök olíuframleiðslu-
ríkja, ætli sér að auka framleiðsl-
una.
Hækkun olíuverðs hefur sett
mark sitt á vísitölur bandaríska
hlutabréfamarkaðarins sem hafa
lækkað að undanförnu. Fjárfestar
óttast að hátt olíuverð geti haft
lamandi áhrif á bandarískt efna-
hagslíf, dregið úr hagvexti, aukið
verðbólgu og leitt til vaxtahækk-
ana hjá bandaríska Seðlabankan-
um. - eþa
M
YN
D
A
P
ÁNÆGÐIR MEÐ ÁRANGURINN Bjarni
Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka og
stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins sem
rekur Kauphöllina, og Þórður Friðjónsson
forstjóri Kauphallar Íslands.
Hagnaður
hjá Kauphöll
Eignarhaldsfélagið sem rekur
Kauphöll Íslands hagnaðist um
101,5 milljónir króna í fyrra og er
það besta afkoma fyrirtækisins.
Á ársfundi Kauphallar Íslands
í gær kom fram í máli Bjarna Ár-
mannssonar, stjórnarformanns
eignarhaldsfélagsins, að velta
bréfa í Kauphöllinni hefði verið
ríflega 2.200 milljarðar króna.
Aukningin frá árinu 2003 er um
fjörutíu prósent.
Bjarni gat þess einnig að ís-
lensk hlutafélög hefðu sótt 170
milljarða króna með nýskráningu
bréfa í Kauphöllinni en sú upp-
hæð væri þrefalt hærri en félög í
Kauphöll Noregs öfluðu þótt sá
markaður væri tífalt stærri en
hinn íslenski. - þk
ÁMINNTI FISKMARKAÐ ÍSLANDS
Stjórnendur Fiskmarkaðarins brutu reglur Kaup-
hallarinnar þegar þeir sendu ársuppgjör félags-
ins of seint frá sér og voru áminntir fyrir vikið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R