Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 62

Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 62
„Mér verður nú ekkert hent út úr Háskólanum. Það breytist ekki annað en að maður fer á eftirlaun og þarf ekki að kenna lengur,“ segir Bragi Árnason, prófessor í efnafræði við Háskóla Íslands, sem nú lætur af störfum. Bragi, sem er frumkvöðull í vetnis- rannsóknum í heiminum, varð sjötugur fyrr í mánuðinum og í dag stendur efnafræðiskor raun- vísindadeildar skólans fyrir kveðjufyrirlestri Braga í hátíðar- sal Háskólans. Dagskráin hefst klukkan þrjú með setningu og ávarpi háskóla- rektors. Bragi segist áfram stunda rannsóknir en hann hefur átt stór- an þátt í að koma Íslandi á kortið sem leiðandi afl í vetnisvæðingu. Bragi segir heiminn við það að fara að skipta um orkugjafa og telur að við hér verðum einna fyrst til. „Á átjándu öld fórum við að flytja inn kol og olíudropa á nítjándu öld. Um nítjánhundruð var svo meirihluti orkunnar sem notuð var í landinu innflutt. Síðan hefst virkjun vatnsaflsins á fyrstu áratugum tuttugustu aldar og jarðhitavæðing um miðja öld- ina þannig að um síðustu aldamót höfðum við farið í gegnum tvö meginstökk í að breyta um orku- gjafa og tveir þriðju orkunnar sem notuð er í landinu er úr inn- lendum vistvænum orkugjöfum. Núna erum við um það bil að sjá síðasta stóra skrefið,“ segir hann og telur að vetnisvæðingin verði orðin að veruleika um miðja þessa öld. „Þá verðum við líkt og á víkingatímum með alla okkar orku frá innlendum orkugjöfum og búin að fikra okkur í það sem kalla mætti aðra sólarorkumenn- ingu mannsins.“ Bragi segir að þótt við hér höfum forskot í því að geta með vistvænni raforku framleitt vetni þá sé ljóst að heimurinn allur komi til með að enda með sólar- orkuna sem aðalorkulind. „Það verður ekki um annað að ræða,“ segir hann, enda fyrirséður sam- dráttur í olíuframleiðslu og um leið vaxandi orkuþörf, einkum þróunarríkja. Bragi segir menn telja að beislun sólar til fram- leiðslu raforku verði orðin hag- kvæm eftir um 20 til 30 ár. „Það verður hins vegar alltaf þörf fyrir geymslu og eldsneyti og þar kemur vetnið inn í myndina.“ Bragi segir ástæðuna fyrir því hve mikill áhugi er á vetnistil- raunum hér á landi vera þá að við þurfum vegna vatnsaflsins ekki að bíða eftir sólarorkunni. „Við getum byrjað þessa hluti strax og erum raun byrjuð. Þjóðfélagið er lítið og hentugt og því er horft til þess að nota landið sem nokkurs konar tilraunaland til að byggja upp á næstu 20-30 árum vetnis- kerfi þannig að þegar kemur að sólarorkunni verði hægt að flytja þessa þekkingu yfir á stærri þjóðir.“ Bragi segir tilraunir með vetnisstrætisvagna hafa gengið snurðulaust og mun betur en hann hafi átt von á. „Það bilaði einu sinni rafgreiningin í stöðinni, en það var nú bara vegna þess að Norðmenn voru að prófa nýja tækni.“ Þá segir hann að General Motors hafi lýst því yfir að þeir ætli að markaðssetja árið 2010 nýja tegund vetnisbíla, en sjálfur er hann búinn að sjá frumgerð slíkra bíla sem komast 480 kíló- metra á einni fyllingu. „Fyrir slíka bíla þyrfti ekki nema fjórar til fimm vetnisstöðvar til að fara hringveginn og fimmtán til að komast um allt landið. Þetta sýnir hvað einfalt er að byrja hér.“ ■ 26 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR TÍMAMÓT: STARFSLOK OG SJÖTUGSAFMÆLI BRAGA ÁRNASONAR PRÓFESSORS Vetnisvæðingin er í augsýn JOHN UPDIKE (1932- ) á afmæli í dag. „Hvernig mér tekst svona vel að skrifa kvenpersónur? Ég hugsa mér karlmann og fjarlægi svo bæði rökvísi og áreiðanleika.“ Ameríski rithöfundurinn John Updike fæddist í Shillington í Pennsyl- vaníu í Bandaríkjunum. Hann stamaði sem barn og var þjáður af psóríasis, en móðir hans hvatti hann til að skrifa. Eftir Updike liggja um 30 skáldsögur og smásagnasöfn, auk margvíslegrar bókmennta- gagnrýni. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Ingibjörg Þórdís Sigurðardóttir lést á sjúkrahúsinu í Jönköping í Svíþjóð miðvikudaginn 9. mars. Björn Ólafsson, Krosseyrarvegi 9, Hafnarfirði, lést laugardaginn 12. mars. Kristbjörg Guðmundsdóttir, frá Drangsnesi, Blikahólum 12, Reykjavík, lést mánudaginn 14. mars. Kristín Hansdóttir, Hrafnistu, áður Gnoðarvogi 26, Reykjavík, lést þriðju- daginn 15. mars. AFMÆLI Hafsteinn Sigurjóns- son múrarameistari, Aflagranda 40, er átt- ræður í dag. Hann dvelur ásamt fjöl- skyldu sinni í London á afmælisdaginn. Svavar Reynir Bene- diktsson, Asparfelli 6, Reykjavík, er sjötugur í dag. Af því tilefni bjóða hann og eiginkona hans Sigríður Sigurðardótt- ir vinum og vanda- mönnum til veislu í hátíðarsal hestamannafélagsins Fáks í reiðhöllinni í Víðidal klukkan hálf níu í kvöld. Álfrún Gunnlaugsdóttir, prófessor og rithöfundur, er 67 ára í dag. Pétur Gunnarsson, framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins, er 45 ára í dag. Heimir Karlsson dagskrárgerðarmaður er 44 ára í dag. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á Keflavíkurflugvelli er 44 ára í dag. Leifur B. Dagfinnsson kvikmyndagerð- armaður 37 ára í dag. Einar Bárðarson athafnamaður er 33 ára í dag. Páll Pálsson leikari er 31 árs í dag. JARÐARFARIR 11.00 Hansína Þorkelsdóttir, frá Siglufirði, Freyjugötu 39, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Digra- neskirkju. 11.00 Minningarathöfn um Kristbjörgu Guðmundsdóttur, frá Drangsnesi, Blikahólum 12, Reykjavík, fer fram í Fossvogs- kirkju. 13.00 Helga Björg Svansdóttir, músíkþerapisti, Malarási 15, verður jarðsungin frá Langholts- kirkju. 13.00 Hulda Höydahl, hjúkrunarheim- ilinu Grund, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Friðrik Guðmundsson, fyrrver- andi tollvörður, Sunnuvegi 9, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 15.00 Sigríður Guðmundsdóttir, Stigahlíð 10, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. BRAGI ÁRNASON EFNAFRÆÐIPRÓFESSOR Síðustu 30 ár hefur Bragi verið frum- kvöðull á sviði vetnisrannsókna og hlotið fjöldann allan af viðurkenningum fyrir störf sín. „Það hefur alltaf tekið um fimmtíu ár að skipta úr einum orkugjafa í annan,“ segir hann og telur slík skipti í farvatninu. Þennan dag árið 1992 urðu ljósar nið- urstöður kosninga í Suður-Afríku þar sem hvíti minnihlutinn veitti umboð til stjórnvalda sem vildu binda enda á að- skilnaðarstefnuna, apartheid. Talsmenn breytinga unnu yfirburðasigur í kosn- ingum, sem metþátttaka var í. 68,6 prósent vildu breytingar og í sumum héröðum fór kosningaþátttaka yfir 96 prósent. „Í dag höfum við snúið baki við apartheid-stefnunni,“ sagði F. W. de Klerk, þáverandi forseti landsins, en hann fagnaði um leið 56 ára afmæli sínu. Nelson Mandela, forseti ANC, Afríska þjóðarráðsins, sem verið hafði í fangelsi í 27 ár vegna baráttu fyrir rétt- indum svartra, fagnaði einnig niður- stöðu kosninganna. Árið eftir náðist samkomulag um bráðabirgðastjórnar- skrá. Árið 1994 vann svo Afríska þjóð- arráðið fyrstu opnu kosningarnar í Suður-Afríku og Nelson Mandela varð forseti. Með þessum breytingum var aflétt viðskiptaþvingunum á hendur landinu, Suður-Afríka var aftur tekin inn í Breska samveldið og tók aftur sæti hjá Sameinuðu þjóðunum eftir 20 ára fjarveru. Mandela og de Klerk fengu friðarverðlaun Nóbels árið 1993 fyrir ólíkar en áhrifaríkar aðgerðir til að afnema aðskilnaðarstefnuna og fram- lag til uppbyggingar í Suður-Afríku. Árið 1999 lét Nelson Mandela af emb- ætti forseta landsins. Þrátt fyrir miklar pólitískar umbætur plagar fátækt og ofbeldi enn marga íbúa Suður-Afríku. 18. MARS 1992 F. W. de Klerk, fyrrverandi forseti Suður-Afríku. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1760 Landlæknisembættinu komið á fót og Bjarni Páls- son skipaður landlæknir. 1922 Mahatma Gandhi er dæmdur í sex ára fangelsi fyrir borgaralega óhlýðni. 1926 Útvarpsstöð tekur formlega til starfa í Reykjavík með ávarpi Magnúsar Guð- mundssonar atvinnumála- ráðherra. Stöðin hætti fljót- lega starfsemi. 1931 Schick Inc. setur á markað fyrstu rafmagnsrakvélarnar í Bandaríkjunum. 1963 Farþegaskipið Gullfoss skemmist mikið í eldi í Kaupmannahöfn. 1977 Samningur undirritaður milli Íslands og Mikla nor- ræna símafélagsins um að reisa hér jarðstöð til að annast fjarskiptasamband um gervihnött milli Íslands og annarra landa. Aðskilnaði hafnað í Suður-Afríku Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér á síðunni má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. LOKAÐ Vegna jarðarfarar Helgu Bjargar Svansdóttur verða skrifstofur Landsnets hf. í Reykjavík lokaðar í dag föstudaginn 18. mars 2005 frá kl. 12:00. Landsnet hf. Krókhálsi 5C Elskulegur eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur, bróðir og mágur, Gylfi Hauksson Álfatúni 10, Kópavogi, sem lést á heimili sínu mánudaginn 14. mars, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í Kópavogi mánudaginn 21. mars kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Olga Stefánsdóttir Dagný Gylfadóttir Stefán Haukur Gylfason Brynhildur Olgeirsdóttir Ástríður Hauksdóttir Georg Tryggvason Trausti Hauksson Alda B. Marinósdóttir Kjartan Hauksson Ásgerður Jónsdóttir Ísak Sverrir Hauksson Guðrún B. Karlsdóttir. Afmæli Fertugur er í dag Jóhann Tryggvi Jónsson útgerðar- og fjöláhugamaður, til heimilis að Tjarnarbraut 29, Hafnarfirði. Hann hefur alla tíð verið búsettur í Hafnarfirði. Tryggvi er sérlegur áhugamaður um áhugamál, hafa þau átt hug hans allan á meðan yfir stendur. Tryggvi er kvæntur Árnýju S. Þórólfsdóttur og eiga þau dótturina Önnu Stellu. www.hjarta.is • 535 1800 Minningarkort 535 1825 70 ára Afmæli Föstudaginn 18. mars verður sjötugur Svavar Reynir Benediktsson Asparfelli 6, Reykjavík. Af því tilefni bjóða hann og eiginkona hans Sigríður Sigurðardóttir vinum og vandamönnum til veislu í hátíðarsal hestamannafélagsins Fáks í reiðhöllinni í Víðidal kl. 20.30 föstudagskvöldið 18. mars. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FÆDDUST ÞENNAN DAG 1844 Nikólæj Rimskíj-Korsakoff, tón- skáld. 1858 Rudolf Diesel, verkfræðingur. 1869 Neville Chamberlain, breskur stjórnmálamaður. 1926 Peter Graves, leikari. 1936 F. W. de Klerk, fyrrum forseti Suður-Afríku og Nóbelsverðlauna- hafi. 1956 Ingemar Stenmark, skíðagarpur. 1966 Jerry Cantrell, gítarleikari Alice in Chains. 1970 Queen Latifah, söng- og leik- kona.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.