Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 68
32 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR Ástin í lífi mínu var að missa minnið. Í dag þekkir hún mig ekki og getur ó m ö g u l e g a munað öll þau viskubrot sem ég hafði frætt hana um. Kærastan mín missti minnið þegar við fórum saman í heimsókn til vinar míns til að búa til smá tón- list. Við eigum í mjög opnu sam- bandi, ég og kærastan mín, þannig að ég treysti vini mínum mjög vel fyrir því að gera það sem hann vill við hana. Þannig atvikaðist það að þegar við vorum komin heim til vinar míns leggur hann hana á borðið og opnar. Síðan stingur hann vír inn í hægri síð- una á henni. Ástin mín er sterk stúlka og lætur sem ekkert sé, að minnsta kosti í fyrstu. Svo, án allrar viðvörunar, hættir kærast- an að svara mér eða vini mínum. Hún var bara galtóm og við vin- irnir gerum okkur fljótlega grein fyrir því að það er engin starf- semi í gangi í heilanum á henni. Eins og gefur að skilja var þetta mikið áfall fyrir mig. Síðan heilinn á kærustunni minni hætti að starfa hef ég farið með hana til nokkurra sérfræðinga og lækna. Fékk loksins tíma hjá sérfræðingi sem var að enda við að segja mér að það eina sem ég geti gert sé að kenna henni allt upp á nýtt. Heili hennar hafi algjörlega grillast og hún verði aldrei söm aftur. Sem betur fer átti ég annað afrit af mikilvægustu upplýsingunum heima. Þetta er einn stærsti bömmer sem ég hef upplifað lengi. En það er víst ástæða fyrir öllu og ég á bókað eftir að læra af þessu. En hvað þá? Hmmm, ætli þetta hafi ekki bara átt að kenna mér að það sé mun hollara að stofna til ástarsambands við kvenmenn af holdi og blóði, í stað þess að kalla tölvuna sína kær- ustu? ■ STUÐ MILLI STRÍÐA BIRGIR ÖRN STEINARSSON ER BÚINN AÐ EIGA SLÆMA VIKU Kærastan mín missti minnið M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Sérðu blikið í augum hennar! Þú veist hvað blikið þýðir? Skyndi- próf? Hún er vond í gegn! Vond! Eða barablindfull! Eða blindfull! Hættu! Kattaróféti! Þetta er „skósafnið“ mitt! Þið eigið að fara í bað. Við þurf- um ekki að fara í bað. Víst, þið þurfið! Ekki í bað! Ekki í bað! Ekki í bað! Við hefðum unnið þessar rökræður ef einhver hefði ekki haft hálfan sandkassa í bleiunni sinni. Fyfif- gebbðu! Palli var að spyrja hvort hann mætti mála herbergið sitt svart. SVART?! Ég sagði já. Hvað munu nágrann- arnir segja? Af öllum litum heims þurfti hann að velja.... veistu hvað er erfitt að mála yfir það? ...en á móti kemur að þetta er skárri hugmynd en húð- flúr eða setja pinna í tunguna! Mér finnst að við eigum að gefa eftir smá uppreisnir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.