Fréttablaðið - 18.03.2005, Page 70
Hrollvekjan The Ring 2 verður
frumsýnd hérlendis um helgina.
Um er að ræða framhald mynd-
arinnar The Ring sem kom út
fyrir nokkrum árum en sú var
bandarísk endurgerð japönsku
myndarinnar Ringu sem kom út
árið 1998. Vakti hún mikla at-
hygli fyrir að hafa fengið hár
kvikmyndagesta til að rísa hvað
eftir annað með frumlegum efn-
istökum.
Fjallaði hún um myndbands-
spólu sem varð til þess að allir
sem sáu hana dóu drottni sínum
nákvæmlega viku síðar á kvala-
fullan hátt. Myndin var byggð á
bókum japanska hrollvekjuhöf-
undarins Koji Suzuki og varð
tekjuhæsta mynd sögunnar í
Japan. Hefur hún þegar getið af
sér tvær framhaldsmyndir þar í
landi. Bandaríska útgáfan þótti
gefa þeirri japönsku lítið sem
ekkert eftir og fékk fínar viðtök-
ur.
Í The Ring 2 er Naomi Watts
aftur í hlutverki rannsóknar-
blaðakonunnar Rachel Keller og
gerist myndin sex mánuðum
eftir þá atburði sem áttu sér stað
í fyrri myndinni. Keller ákveður
að flytjast ásamt syni sínum frá
Seattle til smábæjar í Oregon til
að flýja undan þeim hörmungum
sem áttu sér stað og byrja nýtt
líf. Fljótt fer draugurinn Samara
þó að láta á sér kræla á ný og
Keller þarf að taka á öllu sem
hún á til að halda lífi.
Með önnur helstu hlutverk
fara David Dorfman sem leikur
son Keller, Simon Baker sem
hefur getið sér gott orð fyrir leik
sinn í sjónvarpsþáttunum The
Guardian, hin reynda leikkona
Elizabeth Perkins og Sissy
Spacek sem er þekkt fyrir
myndir á borð við Coal Miner’s
Daughter og Carrie.
Leikstjóri er Hideo Nakata
sem leikstýrði upprunalegu
japönsku myndunum Ringu 1 og
2. Er þetta frumraun hans í
Hollywood. Nakata á einnig að
baki spennumyndina Dark Wa-
ter sem kom út í Japan fyrir
þremur árum og naut mikilla
vinsælda. Endurgerð hennar
verður brátt frumsýnd í
Hollywood með Jennifer Conn-
elly í aðalhlutverki. ■
34 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR
Robots
Internet Movie Database 6,5/10
Rottentomatoes.com 64% = Fersk
Metacritic.com 69/100
Ring 2
Rottentomatoes.com 31% = Rotin
Myndin er heimsfrumsýnd um helgina og
hefur ekki fengið dóma á Metacritic og
Internet Movie Database.
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Draugurinn Samara snýr aftur
„You see, in this world
there’s two kinds of
people, my friend: Those
with loaded guns and
those who dig.
You dig.“
- Það fer Clint Eastwood vel að gefa skipanir en hann hefur þó sjaldan verið reffi-
legri en í hlutverki nafnlausa mannsins í The Good, the Bad and the Ugly.
bio@frettabladid.is
Það er nánast óhugsandi að hægt sé að
gera Hringadróttinssögu J.R.R Tolkiens betri
skil en Peter Jackson hefur þegar gert með
þríleik sínum. Engu að síður virðast einhverj-
ir vera á annarri skoðun, því nú stendur fyrir
þrifum að setja upp söngleik byggðan á
þessu magnaða verki.
Það er fjölþjóðlegt lið sem stendur að þess-
ari uppfærslu sem frumsýnd verður í
Toronto eftir ár. Höfundur tónlistar heitir A.R.
Rahman og kemur frá Indlandi, leikstjórinn
er breskur og heitir Matthew Warchus og
framleiðandinn, Kevin Wallace, er kanadísk-
ur. Undirbúningur að söngleiknum hefur
staðið yfir í fjögur ár og vonast framleiðand-
inn til að uppfærslan fari frá Toronto til
London og endi jafnvel á Broadway. Og nú
er bara að bíða, vona og sjá hvort að söng-
leikurinn berist ekki hingað til lands enda
eru eflaust margir söngvarar sem láta sig
dreyma um hlutverk í Hringadróttinssögu.
EKKI MISSA AF...
Sideways, sem er líklega besta
myndin sem keppti um Óskar-
verðlaunin í ár. Það er óvenju-
mikið í handrit myndarinnar
spunnið og það eru fyrst og
fremst kostuleg
samtöl sem
keyra myndina
áfram en ekki
spillir fyrir fanta-
góð frammistaða
allra aðalleikar-
anna. Það er einhver óræð snilld
fólgin í því að geta gert bráð-
skemmtilega gamanmynd um
tvo einstaklega óaðlaðandi menn
sem eiga varla skilinn snefil af
samúð áhorfenda en Paul Gi-
amatti og Thomas Haden
Church fara hins vegar létt með
að gæða leppalúðana sem
myndin snýst um lífi. Sideways er
gullmoli sem gleymist seint.
Syngjandi föruneyti?
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
11. tbl. 67. árg., 16. ma
rs 2005.
Persónuleikaprófið
Aðeins
599 kr.
Lífsreynslusaga • Heil
sa • • Matu
r • Krossgáturg•á~t
Hjónin Þorvaldur B
jarni
og Þórunn Geirsdó
ttir
Rómantískir
listamenn
Dorrit Moussaieff
Alltaf glæsileg!
Hvað á að gefa
fermingarbarn
inu?
Stjörnumerkið segir
til um það
Flott föt fyrir
ferminguna!
Allt sem þú
vissir ekki ...
Um Valgerði
Sverrisdóttur
Ný tækni ræðst
gegn hrukkum!
Amal Tam
imi frá
Palestínu
er fræðsl
ufulltrúi
Alþjóðahú
ssins
Einstæð
móðir
sem ná
ð hefur
árangri
Átak Viku
nnar
og Hreyfin
gar
Kílóin
hrynja af
Kristínu
Góð ráð
fyrir
neglurnar!
00 Vikan11.
tbl.'05-1
4.3.2005 1
0:54 Page
1ný og fersk í hverri viku
Náðu í eintak á næsta sölustað
RING 2 Rannsóknarblaðakonan Rachel Kellert flytur til smábæjar í Oregon ásamt syni
sínum. Þau eru þó ekki laus við drauginn Samara.