Fréttablaðið - 18.03.2005, Síða 72
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Ragnheiður Gröndal og
hljómsveitin Black Coffee verða
með föstudagsdjamm í Stúdenta-
kjallaranum.
17.00 Phil Elvrum, Woelv og Brite
Light koma fram í Smekkleysu
Plötubúð, Laugavegi 59.
19.30 Píanóleikarinn Liene Circene
leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit
Íslands á tónleikum í Háskólabíói.
Stjórnandi er Owain Arwel Hughes.
21.00 Siggi Björns spilar á Zanzi-
bar í Mývatnssveit.
23.00 Ask the Slave, NilFisk og
Pind koma fram á Bar 11.
23.30 Fræbbblarnir halda upp á
25 ára útgáfuafmæli sitt með heljar-
innar tónleikum á Grand Rokk.
■ ■ OPNANIR
16.00 Alþýðulistakonan María
Jónsdóttir opnar sýninguna „Gull-
þræðir“ í Boganum í Gerðubergi.
17.00 Sýning um ævi og kveðskap
Hallgríms Péturssonar (1614-1674)
verður opnuð í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins. Margrét Eggertsdóttir
flytur ávarp um Hallgrím Pétursson
og fluttir verða Passíusálmar.
Sýning á verkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur myndlistarmanns verður
opnuð á 1. hæð Grófarhúss, Tryggva-
götu 15.
Samsýning Huldu Rósar Guðna-
dóttur, Línu Larsen og Steindóru
Hildar Clausen verður opnuð föstu-
daginn 18. mars í Gallerí Gyllinhæð
á efri hæð Gallerí Kling og Bang á
Laugavegi.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 DJ’s Silja og Steina með
funk, soul, hip-hop & Lounge föstu-
dagskvöldið 18.mars á Café Kulture
22.00 Grínistarnir Snorri Hergill og
Taffetta Wood verða með uppistand
á ensku í Stúdentakjallaranum.
22.00 Hljómsveitin Groundfloor
spilar á Kaffi Vin.
22.00 Hljómsveitin Sérsveitin
heldur uppi fjöri í Vélsmiðjunni á
Akureyri.
23.00 Hinn einni sanni Geirmund-
ur Valtýsson og hljómsveit skemmtir
gestum Kringlukráarinnar.
Listamiðstöðin Klink og Bank
fagnar eins árs afmæli sínu um
þessar mundir og í tilefni af
því verður haldið opið hús í
höfuðstöðvum miðstöðvarinnar á
morgun þar sem listamenn munu
opna vinnustofur sínar fyrir gest-
um og gangandi.
„Listamennirnir munu sýna
hvað þeir eru eða hafa verið að
fást við. Sumir verða með uppá-
komur og aðrir taka lagið. Ein-
hverjir verða síðan við sína venju-
legu vinnu,“ segir Nína Magnús-
dóttir, myndlistarmaður og hús-
stýra Klink og Bank.
Að sögn Nínu eru um 130
manns, úr öllum listgreinum, með
aðstöðu í Klink og Bank. „Við erum
með opin rými og stóra sali sem
við nýtum undir allskonar uppá-
komur. Við höfum passað okkur á
því að fylla ekki þau rými en öll
vinnustofuplássin eru fullnýtt. Það
er endalaus eftirspurn sem sýnir
aðstöðuleysi listamanna.“
Landsbankinn hefur haft veg og
vanda af því að útbúa listamönnun-
um aðstöðu í Klink og Bank. Hann
lánar þeim húsið endurgjaldslaust
og sér um annan kostnað, svo sem
hita og rafmagn. Á borgarskipu-
lagi er gert ráð fyrir að rífa lista-
miðstöðina og segir Nína óvíst
hvað verði um framhald Klink og
Bank. „Við erum með samning út
september og vinnum innan þess
ramma. En andrúmsloftinu hér
inni verður ekki hent og það eru
alltaf til önnur hús. Ég efast ekki
um að við finnum okkur samastað
í tilverunni,“ segir Nína.
Opna húsið á morgun stendur
frá tvö til sex og verður boðið upp
á listviðburði fyrir alla aldurs-
hópa. Léttar veitingar verða einnig
í boði og eru allir velkomnir. ■
36 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
... 25 ára útgáfuafmæli
Fræbbblanna sem verður haldið
á Grand Rokk í kvöld.
... einleikstón-
leikum Sigrúnar
Eðvaldsdóttur í
Salnum á morgun
þar sem hún flytur
nokkur verk sem
tónskáldin hafa til-
einkað ýmsum fiðlusnillingum.
... tónleikum Megasar í Stúd-
entakjallaranum á morgun.
Á efri hæð gallerís Kling og Bang við
Laugaveginn er lítið gallerí sem hefur
fengið nafnið Gallerí
Gyllinæð. Þar hafa
myndlistarnemar við
Listaháskóla Íslands
fengið aðstöðu til þess
að halda sýningar.
Í dag verður opnuð þar
samsýning Huldu Rósar
Guðnadóttur, Línu
Larsen og Steindóru
Hildar Clausen. Sýning-
in ber yfirskriftina
„Sweet child of mine“
og verður opin á laug-
ardag og sunnudag
milli klukkan 14 og 18
og síðan aftur dagana
24. til 27. mars á sama tíma.
Á sýningunni er verið að velta upp
spurningum í sambandi við dýrsleikann,
sakleysið og faldar hugsanir. Menning
er eins konar vörn gegn
sakleysi og dýrsleikanum í
manninum en hugsanir
sem ekki má koma í orð
brjótast út á yfirborðið á
gróteskan hátt í fáránlegum
athöfnum og draumum.
Sýningin verður fjölbreytt
með ljósmyndum, skúlp-
túrum og videói. Hulda Rós
mun fjalla um geldingu
fresskatta í borginni á með-
an Lína er með litlar sögur
um svefnmynstur, íslenskar
martraðir. Verk Steindóru
Hildar fjallar um sakleysi og
hreinskilni. Eiginleika sem
öllum börnum er gefinn en er smátt og
smátt tekinn frá þeim.
Kl. 16.00
Föstudagsdjamm verður í Stúdentakjall-
aranum síðdegis í dag. Þar mætir engin
önnur en söngkonan Ragnheiður
Gröndal ásamt hljómsveitinni Black
Coffee.
menning@frettabladid.is
Varnir gegn sakleysi
Klink og Bank eins árs
!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Föstudagur
MARS
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20, Lau 9/4 kl 20,
Su 10/4 kl 20 Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning
Su 3/4 kl 14 - Aukasýning
Lokasýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana.
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15, Fi 24/3 kl 20,
Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Su 20/3 kl 20, Su 3/4 kl 20
- Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson. Í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
Í kvöld kl 20, Fi 31/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20
Síðustu sýningar
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 19/3 kl 20 UPPSELT,
Su 20/3 kl 21 BREYTTUR SÝNINGARTÍMI!
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 2/4 kl 20 UPPSELT,
Fi 14/4 kl 20, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Lau 19/3 kl 20, Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - SÓLÓ
Tinna Þorsteinsdóttir Lau 19/3 kl 15.15
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasala í síma 568 8000
www.HOUDINI.is
mögnuð fjölskyldusýning!
NÍNA MAGNÚSDÓTTIR Hússtýra Klink og Bank tekur á móti gestum og gangandi á morgun.