Fréttablaðið - 01.05.2005, Side 6
6 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
Ítalía-Bandaríkin:
Engin sátt um
Íraksrannsókn
ÍTALÍA, AP Ítölsk og bandarísk yfir-
völd hafa ekki náð fullum sáttum
um útskýringar á því hvernig til
þess kom að bandarískir her-
menn skutu ítalskan leyniþjón-
ustumann til bana í Írak í byrjun
mars, en hann var þá að fylgja út
á flugvöll ítalskri blaðakonu sem
frelsuð hafði verið úr gíslingu.
Fulltrúar beggja ríkisstjórna
luku fundarhöldum í Róm í gær
án þess að komast að neinni sam-
eiginlegri niðurstöðu um málið.
Fulltrúarnir sendu þó frá sér
sameiginlega yfirlýsingu þar
sem því var slegið föstu að rann-
sókn málsins væri lokið. „Rann-
sakendurnir voru ófærir um að
komast að sameiginlegri niður-
stöðu, en eftir að hafa hvorir
tveggja skoðað málsgögnin sætt-
ust þeir á vissar staðreyndir og
ályktanir,“ segir í yfirlýsingunni.
Ítölsk yfirvöld hafa sett í gang
eigin sakarannsókn á atvikinu,
en það hefur aukið mjög þrýst-
inginn á ríkisstjórn Silvios
Berlusconis að kalla heim þá
3.000 ítölsku hermenn sem þjóna
í Írak. ■
Færeyingar íhuga ný jarðgöng:
Yrðu lengstu göng í heimi
FÆREYJAR Færeyingar íhuga að
grafa lengstu neðansjávargöng í
heimi fyrir bílaumferð. Um er að
ræða göng milli Straumeyjar og
Sandeyjar en þau yrðu tólf kíló-
metra löng. Kostnaður er áætlað-
ur um 60 milljarðar íslenskra
króna.
Þetta sýnir að Færeyingar eru
ekki af baki dottnir í jarðganga-
gerð þótt kostnaðarsamar fram-
kvæmdir á því sviði hafi næstum
riðið fjárhag eyjanna að fullu
fyrir rúmum áratug. Ef þessi göng
verða að veruleika er gert ráð fyr-
ir að innheimtur verði vegtollur af
vegfarendum en hann dugir þó
skammt upp í kostnað því umferð
er ekki mikil á þessum slóðum.
Lengstu neðansjávargöng fyrir
umferð í dag eru í Japan og eru
9,6 kílómetra löng en lengstu göng
á Norðurlöndunum eru í Noregi
og eru átta kílómetra löng.
Jarðgöng til Vestmannaeyja
myndu slá öll met á þessu sviði en
reiknað er með að þau verði 18 til
20 kílómetra löng og kostnaðurinn
16 til 30 milljarðar eftir því hver
reiknar. - ssal
Mælir með áfrýjun
á tóbaksdómi
Lögmaður tóbaksframleiðandans JT International og Sölva Óskarssonar í tóbaksversluninni Björk mælir með
áfrýjun á nýföllnum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um útstillingu tóbaksvara og umfjöllun um tóbak.
HÉRAÐSDÓMUR Hróbjartur Jón-
atansson hæstaréttarlögmaður
ætlar að mæla með því við um-
bjóðendur sína, JT International
og Sölva Óskarsson sem rekur
tóbaksverslunina Björk, að áfrýj-
að verði til Hæstaréttar dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur frá því
á miðvikudag. Hann býst við
ákvörðun um það innan nokkurra
vikna.
Héraðsdómur hafnaði því að
stilla mætti út tóbaksvörum í
versluninni Björk, eða birta við-
skiptalegar upplýsingar um vörur
JT International í fjölmiðlum, en
þær eru meðal annars sígarettu-
tegundirnar Camel, Salem, Win-
ston, Mild Seven og Gold Coast.
„Dómurinn er hins vegar sigur
fyrir stefnendur að því leyti að
hann tekur til greina kröfuna um
að framleiðendur megi senda
smásala svokallaðar staðreynda-
upplýsingar um tóbaksvöruna,“
segir Hróbjartur, en þær gætu átt
við um breytingar í samræmi við
Evróputilskipanir, pakkningar,
vörumerki og annað slíkt.
„Dómurinn byggir annars á því
að sýnileiki tóbaks á sölustað leiði
til aukinnar verslunar og þar af
leiðandi aukinnar neyslu, jafnvel
þótt engin gögn hafi verið lögð
fram um að sýnileiki tóbaksvara,
með mjög áberandi viðvörunar-
merkingum, hafi minni forvarnir
í för með sér en það að fela tóbak-
ið,“ segir Hróbjartur. „Þá má ef til
vill líka segja að í ljósi aukins
vægis varúðarmerkinga á tóbaks-
pökkum, eins og Evrópureglur
kveða á um, sé ósamræmi í því að
fela vöruna þannig að varúðar-
merkið sjáist ekki fyrr en búið er
að kaupa vöruna.“ Hann segir
dóminn ekki fjalla um hvort
meðalhófs hafi verið gætt og
hvort ástæða hafi verið til að gera
greinarmun á tóbakssölu í mat-
vöruverslunum eða sértækri tó-
baksverslun eins og Björk. „Þá
hafnar dómurinn því að JT megi
birta viðskiptaupplýsingar um
tóbaksvörur í fjölmiðlum og telur
ákvæði sem banna umfjöllun,
nema til að fjalla um skaðsemi
reykninga, ekki teljast vera rit-
skoðun. Ég er algjörlega ósam-
mála dómnum hvað þetta varðar,“
segir hann og telur önnur lönd
ekki hafa gengið jafn langt, auk
þess sem ekki hafi verið tekið til
þess í dómnum hvort reglur
Evrópska efnahagssvæðisins hafi
verið brotnar.
olikr@frettabladid.is
ÁTTU EKKI FUND SINN Héraðs-
dómur Norðurlands eystra felldi á
föstudag tvo dóma yfir mönnum
sem slegið höfðu eign sinni á eigur
annarra. Annar fann golfsett og tók
til handargagns og hinn nýlegan
farsíma. Báðir hlutu mánaðarfang-
elsi, skilorðsbundið í tvö ár.
SEKT FYRIR HASSNEYSLU Tveir
menn fengu sekt fyrir að hafa í
tvígang verið gripnir með hass til
eigin neyslu á Akureyri. Í bæði
skiptin voru þeir með efnið í bíl,
fyrst 1,5 grömm og svo 2,4 grömm
tóbaksblönduð. Annar var sektaður
um 50 þúsund krónur og hinn um
30 þúsund krónur.
MISSTI PRÓFIÐ OG FÉKK SEKT
Maður var dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú
ár, fyrir glæfraakstur undir áhrif-
um áfengis á Akureyri í september
í fyrra og fyrir vörslu á 5 e-töflum
og rúmu hálfu grammi af tóbaks-
blönduðu hassi. Þá var hann svipt-
ur ökuréttindum í þrjú ár og þarf
að greiða 150 þúsund króna sekt.
www.urvalutsyn.is
*Innfalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 6 nætur
og íslensk fararstjórn.
Verðið er er netverð. Bóka þarf og greiða
staðfestingargjald, eða fullgreiða ferð á netinu.
Ef bókað er er á símleiðis eða á skrifstofu,
greiðist bókunar- og þjónustugjald, sem
er 2.000 kr. á mann.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í íbúð
m. 2 svefnh. á Club Albufeira í 6 nætur, 31. maí.
í júní og júlí
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð á:
38.190kr.*
Verðdæmi:
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
82
44
0
4/
20
05
Sérlega fjölskylduvænn gististaður, með notalegu andrúmslofti,
sem stendur í fallegu gili, beint upp af miðbæ Albufeira. Tveir
stórir sundlaugargarðar með góðri sólbaðsaðstöðu og nuddpotti,
umgirtir lágreistum smáhýsum.
Club Albufeira
SÓL
8.000 kr.
afsláttur
á mann
■ DANMÖRK
■ HÉRAÐSDÓMSMÁL
Geturðu hugsað þér að flytja
austur í Fjarðabyggð?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Þurfum við mótmælastöðu
gegn ofbeldi á fleiri stöðum en
á Akureyri?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
70%
30%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Frakkland og ESB:
Dregur saman
með fylkingum
FRAKKLAND, AP Réttum mánuði
áður en Frakkar ganga til
atkvæða um staðfestingu stjórn-
arskrársáttmála Evrópusam-
bandsins sýndu niðurstöður nýj-
ustu skoðanakönnunarinnar í gær
að enn hallaðist meirihluti kjós-
enda að því að hafna sáttmálan-
um. Þó hefur dregið saman með
fylkingum fylgjenda og andstæð-
inga sáttmálans.
Af þeim sem svöruðu sögðu 52
af hundraði að þeir ætluðu að
greiða atkvæði á móti, 48 prósent
með. Tíu prósent svöruðu ekki eða
voru óákveðin. 70 prósent svar-
enda sögðust hafa gert upp hug
sinn, 30 prósent sögðust hugsan-
lega myndu skipta um skoðun
áður en í kjörklefann kæmi 29.
maí. Könnunin var gerð af Ifop
fyrir vikublaðið Journal du
Dimanche. ■
SGRENA ÓSÁTT
Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena, sem leyniþjónustumaðurinn Nicola Calipari leysti úr
gíslingu í Írak, eftir blaðamannfund í Róm. Hún er ósátt við rannsókn Bandaríkjahers á því
hvernig á því stóð að skotið var á bíl þeirra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FÆREYJAR
Ný tólf kílómetra neðansjávargöng myndu
tengja saman Straumey og Sandey.
SÖLVI ÓSKARSSON
Sölvi við tjaldið sem hann notar til að draga fyrir tóbaksvarninginn
í Björk til að forðast að vera brotlegur við tóbaksvarnarlög.
HRÓBJARTUR JÓNATANSSON
Hróbjartur, sem rak mál JT International og Sölva Óskarssonar á
hendur ríkinu, býst við að fyrir liggi á næstu vikum ákvörðun um
áfrýjun dóms héraðsdóms frá því í vikunni. Hann mælir með áfrýjun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
BANASLYSUM FÆKKAR Í DAN-
MÖRKU Mun færri fórust í um-
ferðinni í Danmörku í fyrra en
árið á undan. Banaslys voru 369 í
fyrra en voru 432 árið 2003. Þetta
er fækkun um 15 prósent. Tölur
þessar vekja ekki hvað síst at-
hygli fyrir þær sakir að hámarks-
hraði á hraðbrautum í Danmörku
var í fyrra hækkaður í 130 kíló-
metra á klukkustund.