Fréttablaðið - 03.05.2005, Side 1
● kveður gamla vinnustaðinn
Anna Margrét Björnsson:
▲
SÍÐA 30
Ritstýrir nýju blaði
fyrir ungt fólk
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
FÓTBOLTI Í KVÖLD Liverpool og
Chelsea mætast í kvöld öðru sinni í undan-
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
Fyrri leikurinn endaði 0-0. Með Chelsea
leikur Eiður Smári Guðjohnsen. Leikurinn
hefst klukkan hálf sjö og er sýndur á Sýn.
DAGURINN Í DAG
3. maí 2005 – 118. tölublað – 5. árgangur
ÁTAK GEGN LÖGBRJÓTUM Alþýðu-
samband Íslands hefur hafið sérstakt átak
gegn ólöglegu vinnuafli í landinu. Átakið
Einn réttur – ekkert svindl mun fremur
beinast að þeim atvinnurekendum sem lög
brjóta en verkafólkinu sjálfu. Sjá síðu 2
VILJA BORGA FYRIR STOFNANIR
Kaupfélag Eyfirðinga er tilbúið til að borga
ríkinu hundruð milljóna króna til að liðka
fyrir flutningi opinberra starfa frá höfuð-
borgarsvæðinu norður á Akureyri. Horft er
til Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunarinnar
og fleiri stofnana. Sjá síðu 4
UMHVERFISSTOFNUN GAGN-
RÝNIR IÐNAÐARRÁÐHERRA Hjá
stofnuninni ríkir óánægja með lítið vægi
sem Umhverfisstofnun virðist hafa gagnvart
öðrum málaflokkum. Sigurjón Þórðarson
alþingismaður segir Orkustofnun vera í
dekri hjá ríkisstjórninni. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Hrædd við líkams-
ræktarstöðvar
● heilsa
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
82%
20-49 ára karla á sv-horninu
lesa Fréttablaðið á föstu-
dögum.*
Þeir eru m.a. að sækja
í bílaauglýsingar í smá-
auglýsingum – og það nýta
bílasölur sér.
*Gallup febrúar 2005
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐAST NOKKUÐ BJART að
deginum og þurrt. Hiti 3-10 stig hlýjast
suðaustan til. Þykknar upp í kvöld sunnan
og vestan til. Sjá síðu 4
Alexía Björg Jóhannesdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
BRUNI Eldur kom upp í bílhræi við
endurvinnslustöðina Hringrás
þegar verið var að pressa það um
fjögurleytið í gær. Vatnsslangan
sem starfsmenn hafa í að grípa í
tilfellum sem þessum var ekki
lengri en svo að hún náði ekki á
brunastað og því þurfti að flytja
brennandi bílhræið nær slöng-
unni til að slökkva eldinn.
„Þetta er hálfgerð garðslanga
hjá þeim,“ sagði einn slökkviliðs-
maður sem Fréttablaðið talaði
við. „Ef eldur kemur upp í
dekkjahrúgunni þá ráða þeir
ekki við neitt,“ bætti hann við.
Mönnum er enn í fersku minni
stórbruninn sem varð í Hringrás
í nóvember á síðasta ári en þá
varð að rýma fjölda húsa í
grenndinni.
Að sögn Bjarna Kjartansson-
ar, sviðsstjóra forvarnarsviðs
Slökkviliðsins, er fyrirtækið
undir miklu eftirliti eftir stór-
brunann. „En við höfum ekki haft
áhyggjur af Hringrás því þar
hefur þetta verið í skaplegu
ástandi en af sjálfsögðu ættu
þeir að hafa viðunandi slöngu á
svæðinu,“ bætti hann við.
Ellý J. Vilhjálmsdóttir, svið-
stjóri umhverfissviðs Reykjavík-
ur, ætlar að heimsækja Hringrás
nú í morgunsárið og athuga hvað
gerðist. – jse
Eldur í togara:
Rak úti á
ballarhafi
ÚTGERÐ Togar-
ann Wisbaden
rak stjórn-
laust úti á
ballarhafi í
f j ó r t á n
klukkutíma í
fyrrinótt og í
gær eftir að
eldur hafði
komið upp í
rafmagnstöflu. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn og engum
varð meint af. Skemmdir urðu
ekki miklar en togarinn varð
rafmagnslaus. Ekki var stætt á
öðru en að sigla í Hafnarfjarðar-
höfn eftir að rafmagn komst á
en þar fóru frekari viðgerðir
fram. Samkvæmt upplýsingum
frá Samherja, sem gerir togar-
ann út, stóð til að leggja í hann
aftur í gærkvöld, því að aflinn
væri sáralítill. – jse
Tekjur dragast saman:
deCode tapar
milljarði
VIÐSKIPTI Tekjur deCode á fyrsta
ársfjórðungi voru 9,5 milljónir
Bandaríkjadala eða tæpar 600
milljónir króna og drógust þær
saman um átta prósent milli ára.
Fyrirtækið birti tölurnar í gær.
Tap fyrirtækisins eftir skatta
nam 16,9 milljónum Bandaríkja-
dala eða rúmlega milljarði
króna, sem er einnig aukning
milli ára. Ein af meginástæðum
aukins taps er sögð vera hærri
þróunar- og rannsóknarkostnað-
ur tengdur lyfjaþróun fyrirtæk-
isins. - dh
BRUNI Í HRINGRÁS
Flytja þurfti brennandi bílhræ nær vatnsslöngu á athafnasvæði Hringrásar í Reykjavík í gær. Á innfelldu myndinni má sjá starfsmenn
athafna sig eftir að eldurinn var kominn í færi við slönguna. Stórbruni varð í Hringrás í nóvember í fyrra.
H E I L B R I G Ð I S M Á L
Notkun geðlyfja
við athyglisbresti
og ofvirkni barna
og unglinga hefur
aukist um 76 pró-
sent frá árinu 2002
og enn meira frá
árinu 1999. Kostn-
aður Trygginga-
stofnunar ríkisins
vegna þessarar tegundar lyfja
hefur á sama tíma fimm- til
sexfaldast. Hann nam um 23
milljónum króna árið 2002 en
nærri 130 milljónum króna í
fyrra.
Þetta kemur fram í svari Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra við fyrirspurn Ástu R. Jó-
hannesdóttur, Samfylkingunni,
en hún spyr hvort eðlilegt geti
talist að á annað þúsund barna
taki slík lyf að staðaldri. Horft er
til virka efnisins methylphenidat,
sem þekktara er undir heitinu
Ritalin. Ávanahætta fyrir börn er
ekki talin mikil, en engu að síður
er ráðið frá því að ávísa lyfinu til
fíkla. Samkvæmt gögnum Eftir-
litsstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna var notkun lyfsins hvergi
meiri en á Íslandi árið 2003.
Næstmest var notkunin í Banda-
ríkjunum en þar í landi hafa
áhyggjur af hugsanlegri ofgrein-
ingu á athyglisbresti vaknað.
Í svari heilbrigðisráðherra
segir jafnframt að ofvirkni og at-
hyglisbrestur sé greindur út frá
hegðun barnanna og það séu
fyrst og fremst barnalæknar með
sérfræðiréttindi sem hefji lyfja-
meðferð.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra tekur undir áhyggjur
fyrirspyrjanda og ætlar að leita
til landlæknis og Miðstöðvar
heilsuverndar barna um það
hvernig bregðast skuli við.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að að minnsta kosti
tvö prósent barna séu greind með
athyglisbrest og ofvirkni og
bendir á að sé rétt að málum stað-
ið geti lyfjameðferð gert gagn í
allt að þremur tilvikum af fjór-
um. „Það er hins vegar einnig
rétt að greining þessa sjúkdóms
er háður frásögnum og það getur
stundum orðið til þess að börnin
eru meðhöndluð þegar rót vand-
ans er hugsanlega hjá foreldrun-
um.“ Sigurður segir vísbending-
ar um að ekki sé um frekari
aukningu að ræða í notkun geð-
lyfsins.
johannh@frettabladid.is
SIGURÐUR
GUÐMUNDS-
SON LAND-
LÆKNIR
Bruni í Hringrás:
Bálið flutt að slöngunni
Heimsmet í notkun
geðlyfs fyrir börn
Notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti barna og unglinga hefur margfaldast á örfáum árum.
Heilbrigðisráðherra tók undir áhyggjur Ástu R. Jóhannesdóttur þingmanns Samfylkingarinnar.
Landlæknir segir lyfjameðferð hjálpa í 75 prósentum tilvika.
TOGARINN
WISBADEN