Fréttablaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 6
6 23. maí 2005 MÁNUDAGUR
Gíslar í Írak sem haldið hafði verið í tvo mánuði:
Rúmenar látnir lausir
ÍRAK, AP Þrír rúmenskir
fréttamenn og írask-banda-
rískur túlkur þeirra voru í
gær látnir lausir úr gíslingu
sem íraskir uppreisnarmenn
hnepptu þá í fyrir tveimur
mánuðum. Frá þessu greindu
talsmenn Rúmeníuforseta.
Gíslarnir fjórir voru allir
komnir í umsjá rúmenskra
yfirvalda, að því er Adriana
Saftoiu, talsmaður Traians
Basescu Rúmeníuforseta,
greindi frá í Búkarest. „Þeir
eru allir heilir á húfi og við mun-
um tilkynna síðar hvenær þeir
snúa aftur heim,“ sagði hún.
Rúmenunum þremur – blaða-
manninum Ovidiu Ohenasi-
an, sjónvarpsfréttakonunni
Marie-Jeanne Ion og
myndatökumanninum Sor-
in Miscoci – var rænt á
græna svæðinu í Bagdad
þann 28. mars síðastliðinn,
ásamt leiðsögumanni
þeirra, Mohammed Monaf.
M a n n r æ n i n g j a r n i r
höfðu hótað að drepa alla
gíslana ef rúmensk stjórn-
völd kölluðu rúmenska
herliðið ekki tafarlaust
heim frá Írak. 800 rúmenskir
hermenn þjóna sem hluti af fjöl-
þjóðlegu setuliði undir forystu
Pólverja í Mið-Írak. ■
LANDSFUNDURINN Gunnar Helgi
Kristinsson stjórnmálafræði-
prófessor segir að það hefði verið
slæmt fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur að vinna formanns-
slaginn í Samfylkingunni naum-
lega. „Kjörið var afgerandi. Í
kjarna Samfylkingarinnar stóð
þetta áreiðanlega tæpar. Umboð
hennar er hins vegar mjög skýrt
og það þýðir að valdastaða hennar
gagnvart öðrum forystumönnum
Samfylkingarinnar er sterk,“
segir Gunnar Helgi.
Baldur Þórhallsson, dósent í
stjórnmálafræði, tekur í sama
streng. „Þetta var mjög mikil-
vægur landsfundur fyrir Sam-
fylkinguna en þar var nær alger-
lega skipt um forystusveit flokks-
ins. Eftir er að sjá hvort þessu
fylgja ný vinnubrögð og nýr
stjórnunarstíll.“
Baldur segir afgerandi kosn-
ingu Ingibjargar Sólrúnar óneit-
anlega nokkurn skell fyrir þann
hluta þingflokksins sem studdi
Össur Skarphéðinsson. „Sú spurn-
ing er áleitin hvort þeir sem yfir-
gáfu valdapósta nú hafi verið
fyllilega í takt við hinn almenna
flokksmann,“ segir Baldur. Hann
telur það verða prófstein fyrir
Ingibjörgu Sólrúnu hvort henni
takist að höfða til hægri jafnaðar-
manna sem kjósi Sjálfstæðis-
flokkinn. Það geti orðið erfiður
róður að koma fylgi stjórnar-
flokkanna niður fyrir 50 prósent.
- jh
Breytingar flola enga bi›
Klíkuskapur er samtrygging flröngra hópa um eigin hagsmuni án tillits til hagsmuna heildarinnar, sag›i
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, n‡kjörinn forma›ur Samfylkingarinnar, vi› slit landsfundar flokksins í gær.
SAMFYLKINGIN „Íslenskt samfélag
þolir ekki lengur bið eftir breyt-
ingum,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, nýkjörinn formaður
Samfylkingarinnar, þegar hún
sleit landsfundi flokksins í gær.
„Við verðum að sparsla strax og
tækifæri gefst í sárustu sprung-
urnar sem myndast hafa eftir allt
of langa valdatíð þessarar ríkis-
stjórnar. Forgangsmál í þeim
verkum eru úrbætur í málefnum
barnafólks og aldraðra og endur-
bætur í menntakerfinu,“ sagði
Ingibjörg jafnframt.
Hún gerði klíkuskap að um-
talsefni í ávarpi sínu og sagði að
einstaklingar ættu ekki að þurfa
að eiga rétt sinn og stöðu undir
stofnunum og kenjum valds-
manna. „Af þessu eru klíkur það
versta. Klíkur eru samtrygging
þröngra hópa um eigin hags-
muni án tilllits til hagsmuna
heildarinnar.“ Hún kvað Sam-
fylkinguna hafa tekið afstöðu
gegn klíkum og kenjum vald-
hafa en með lýðræðinu. Flokk-
urinn hefði gert það í hverju
málinu á fætur öðru á Alþingi; í
Íraksmálinu, við skipan hæsta-
réttardómara, í fréttastjóramál-
inu, fjölmiðlamálinu og einnig í
formannskjöri Samfylkingar-
innar. „Hún gerði það þegar hún
lét skilaboð um hvað væri valds-
mönnum í öðrum flokkum þókn-
anlegt sem vind um eyru þjóta.
Hún treysti almennum flokks-
mönnum til þess að meta hvað
væri best fyrir flokkinn og fór í
gegnum lýðræðislegasta ferli í
leiðtogakjöri sem nokkur ís-
lenskur stjórnmálaflokkur hef-
ur farið í gegnum.“
Ingibjörg Sólrún kvað Sam-
fylkinguna ekki geta gert allt
fyrir alla. Vinna yrði að brýnustu
viðfangsefnum með skipulegum
hætti og úrbætur gætu tekið
tíma. Hún nefndi jafnframt að í
stórum og breiðum flokki yrðu
menn að vera tilbúnir til þess að
horfa á mál frá mismunandi
sjónarhornum landsbyggðar og
þéttbýlis, kvenna og karla, ungra
og aldinna sem og umhverfis-
verndar og auðlindanýtingar.
Mikil endurnýjun varð í for-
ystu Samfylkingarinnar á lands-
fundinum eins og fram hefur
komið. Í gær var kosið í fram-
kvæmdastjórn flokksins og náðu
Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún
Grendal, Tryggvi Felixson,
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir,
Ingileif Ástvaldsdóttir og Karl V.
Matthíasson kjöri. Formaður
framkvæmdastjórnarinnar er
Gunnar Svavarsson.
johannh@frettabladid.is
Steingrímur J. Sigfússon
Væntir gó›s
af samstarfi
SAMFYLKINGIN Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs,
segist vænta góðs af samstarfi við
nýjan formann og nýja forystu
Samfylkingarinn-
ar. „Það gladdi
mig að það var
slegið á þá
strengi á lands-
fundi Samfylk-
ingarinnar að
sameina kraftana
í stjórnarandstöð-
unni við að koma
ríkisstjórninni frá
og taka við af
henni. Þetta boðar heldur gott um
áframhaldið og uppbyggilegt
samstarf stjórnarandstöðunnar.
Ég vænti þess að við vinnum vel
saman,“ segir Steingrímur. ■
Bandalag háskólamanna:
Í hart vi›
skattinn
KJARAMÁL Bandalag háskóla-
manna lagði fram stjórnsýslu-
kæru í síðustu viku vegna
ákvörðunar skattstjórans í
Reykjavík í máli eins geislafræð-
ings Landspítalans. Ákvörðunin
hefur þau áhrif að skattur er tek-
inn af ökustyrk mannsins þar
sem hann ekur meira en tvö þús-
und kílómetra á ári á eigin bif-
reið til að komast á og af vinnu-
stað í útköllum.
„Það er einfalt réttlætismál að
þurfa ekki að greiða tekjuskatt af
útlögðum kostnaði aðeins vegna
þess að þú býrð aðeins lengra frá
vinnustaðnum en eitthvað tvöþús-
und kílómetra takmark frá skatt-
inum nær til,“ segir Katrín Sig-
urðardóttir, formaður Félags
geislafræðinga.
-jse
Bílvelta á Héraði:
Á sokkunum
a› næsta bæ
SLYS Ökumaður sem grunaður er
um ölvunarakstur velti bifreið
sinni á Upphéraðsvegi nálægt Eg-
ilsstöðum um níuleytið í gær-
morgun.
Maðurinn rotaðist og meiddist á
fæti, en hafði ekki önnur úrræði
þegar hann rankaði við sér en að
ganga á sokkaleistunum um þrjá til
fjóra kílómetra að Hreiðarsstöðum
þar sem hann fékk aðhlynningu.
Maðurinn var svo fluttur á sjúkra-
hús á Egilsstöðum til rannsóknar,
en að sögn lögreglu á Egilsstöðum
leikur grunur á að maðurinn hafi
haldið of snemma af stað eftir
drykkju nóttina áður. Bifreiðin er
talin ónýt. - jse
GÍSLANA HEIM Konur úr arabíska minni-
hlutanum í Rúmeníu halda á kröfuspjaldi
þar sem þess er krafist að Rúmenarnir þrír
sem rænt var í Írak verði látnir lausir. Þeim
varð að ósk sinni í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Koma n‡fengin úrslit í
formannskjöri til me› a›
styrkja Samfylkinguna?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur flú fengi› punkt vegna
umfer›arlagabrots?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
47,2%
52,8%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR „Valdið er almenningseign og lýðræðið á að virka. Við eigum eftir
að minnast þessa fundar lengi,“ sagði nýkjörinn formaður við slit landsfundarins í gær.
Landsfundur Samfylkingarinnar frá bæjardyrum stjórnmálafræðinga:
Sterk sta›a n‡kjörins formanns
GUNNAR HELGI KRISTINSSON Nýr formað-
ur Samfylkingarinnar er í sterkri stöðu.
BALDUR ÞÓRHALLSSON Spyr hvort gamla
forystan hafi verið í takt við hinn almenna
flokksmann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA