Fréttablaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 14
Forysta Samfylkingarinn-
ar er gerbreytt og nýtt
fólk í trúnaðarstöðum
flokksins metur stöðuna á
næstunni eftir sögulegan
landsfund. Málefnavinnu,
sem kynnt var á lands-
fundinum, verður haldið
áfram næstu mánuði og
misseri.
Í stjórnmálaályktun Samfylking-
arinnar, sem samþykkt var fyrir
lok landsfundarins í gær, segir
meðal annars að hreyfing jafnað-
armanna stefni að því að mynda
meirihluta í sveitarstjórnum sem
geti axlað aukið hlutverk sveitar-
félaga í fjölbreytilegri nærþjón-
ustu. Sveitarstjórnarkosningar
verða haldnar að ári liðnu og vill
Samfylkingin leggja aukna
áherslu á lýðræði og frekari þátt-
töku og áhrif íbúa á sveitarstjórn-
arstiginu.
Í ályktuninni segir að það sé
höfuðverkefni að hafa forystu um
að fella í næstu þingkosningum þá
ríkisstjórn misskiptingar og vald-
beitingar sem nú sitji. Samfylk-
ingin vilji leiða frjálslynda vel-
ferðarstjórn sem einsetji sér að
auka félagslegt réttlæti í landinu,
treysti stöðu fólks á vinnumark-
aði og stuðli að launajafnrétti.
Að auki fjallar stjórnmála-
ályktunin ýtarlega um velferð,
heilbrigðismál, menntun, menn-
ingu og listir, efnahagslíf, tekjur
sveitarfélaga, lýðræði, jafnrétti,
mannréttindi, umhverfisvernd og
utanríkismál.
Samgöngumál í nefnd
Ýmsum málum var vísað áfram til
meðferðar í nefndum og ráðum
flokksins. Það á meðal annars við
um gögn Framtíðarhópsins svo-
nefnda, en á snærum Samfylking-
arinnar er á næstu mánuðum ætl-
unin að styrkja mjög málefnastöðu
og hugmyndafræði flokksins.
Samþykkt var að vísa öllum
samgöngumálum, þar á meðal til-
lögu um að flytja Reykjavíkur-
flugvöll í nágrenni höfuðborgar-
innar, til starfshóps sem skilar
áliti eða tillögum síðar. Ætlunin er
að halda sérstakt þing eða ráð-
stefnu um samgöngumál á vegum
flokksins næsta haust eða
snemma vetrar.
Kona víkur vegna kynjakvóta
Viðmælendur Fréttablaðsins á
landsfundi Samfylkingarinnar
voru margir þeirrar skoðunar í
gær að í endurnýjun forystunnar
fælust ákveðin skilaboð og vega-
nesti fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, nýkjörinn formann
flokksins. Á það er meðal annars
bent, að landsfundarmenn kusu
Ágúst Ólaf Ágústsson varafor-
mann flokksins, en hann var
lengstum talinn stuðningsmaður
Össurar Skarphéðinssonar, frá-
farandi formanns Samfylkingar-
innar, þó svo að Ágúst hefði lýst
því yfir þegar nær dró landsfundi
að framboð hans væri með öllu
óháð. Eftir því sem næst verður
komist hallaði Ingibjörg Sólrún
sér frekar að Lúðvík Bergvins-
syni, keppinauti Ágústs Ólafs, síð-
ustu dagana fyrir landsfundinn.
Þá vakti athygli að Stefán Jón
Hafstein, fráfarandi formaður
framkvæmdastjórnar flokksins,
náði ekki kjöri í stöðu ritara Sam-
fylkingarinnar. Stefán Jón hefur
verið mjög handgenginn Ingi-
björgu Sólrúnu, meðal annars á
vettvangi borgarmála. Helena
Karlsdóttir frá Akureyri lagði
Stefán Jón í ritarakjörinu, en Val-
gerður Bjarnadóttir bauð sig
einnig fram í embættið auk þeirra
tveggja.. Ekki er ósennilegt að val
margra landsfundarfulltrúa hafi
helgast af kynjakvóta Samfylk-
ingarinnar, en hann gerir ráð
fyrir að karlar og konur hafi ekki
minna en 40 prósent fulltrúa
hvort kynið í ráðum og nefndum
flokksins. Einnig er á það bent að
heppilegt hafi þótt að Helena er af
landsbyggðinni.
Þess má geta að nauðsynlegt
reyndist að rýma fyrir karli við
kjör í framkvæmdastjórn Sam-
fylkingarinnar í gær vegna kynja-
kvótans. Í fyrsta skipti í sögu
flokksins þurfti því kona að víkja
vegna reglu sem í reyndinni var
sett til að tryggja nægilega hátt
hlutfall kvenna í nefndum og ráð-
um flokksins.
Heimilislegur stjórnmálaflokkur
Glöggur landsfundarfulltrúi þótt-
ist einnig sjá að endurnýjun í for-
ystu Samfylkingarinnar endur-
speglaði vel uppruna og tilurð Sam-
fylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún
ætti sjálf rætur í Kvennalistanum,
Helena Karlsdóttir ritari kæmi úr
Alþýðuflokknum, Ágúst Ólafur
Ágústsson varaformaður hefði
tengsl við Þjóðvaka, Ari Skúlason,
sem kjörinn var gjaldkeri Samfylk-
ingarinnar, ætti rætur í Alþýðu-
bandalaginu og Gunnar Svavars-
son, nýkjörinn formaður fram-
kvæmdastjórnarinnar, ætti rætur
sínar í sjálfri Samfylkingunni.
Stjórnmálaskýrendum á lands-
fundinum þótti að öllu samanlögðu
þessi samsetning mynda nokkurt
jafnvægi í nýrri forystu flokksins.
Einn þeirra sló á létta strengi
og sagði að nú væri Samfylking-
unni stjórnað af konum og börn-
um. Og kvað ástandið orðið
áþekkt og heima hjá sér. En hann
bætti við að líklega mætti þá
einnig segja að Samfylkingin
væri heimilislegur stjórnmála-
flokkur.
johannh@frettabladid.is
14 23. maí 2005 MÁNUDAGUR
Lilju Sæmundsdóttur, kennara og
þroskaþjálfa, hefur verið meinað að
ættleiða barn frá Kína af því að emb-
ættismönnum í dómsmálaráðuneytinu
þykir hún of þung. Lilja var 45 ára þeg-
ar hún hóf ættleiðingarferlið. Hún hefur
unnið mikið með börnum og ól bróður
sinn upp. Hún fékk frábær meðmæli frá
barnaverndarnefnd Akureyrar. Allt mælti
því með henni sem verðandi foreldri.
Dómsmálaráðuneytið fékk ættleiðingar-
nefnd til að gefa umsögn og það var þá
sem málið stoppaði.
Hvaða máli skiptir þyngdin?
Einstaklingur sem er of þungur er í
heilsufarslegum áhættuhópi, hann get-
ur fengið sykursýki og hjartasjúkdóma.
Lilja Sæmundsdóttir virðist afskaplega
hraust og traust manneskja. Hún hefur
aðeins tvisvar verið frá vinnu á síðustu
tíu árum. Hún stundar reglulega leikfimi
og hefur mikla reynslu af uppeldisstörf-
um. Þegar fólk nýtur ásta veltir það ekki
fyrir sér þyngd sinni. Það eignast börn
hvort sem það er 65 kíló eða 175 kíló.
Það þykir því undarlegt að ráðuneytið
leggist gegn ættleiðingu, ekki síst ef
manneskjan er fullkomlega hæf til þess
að verða foreldri að öðru leyti.
Gilda sömu reglur alls staðar?
Ekki gilda sömu reglur í ættleiðingar-
málum og málum þar sem fólk er feng-
ið til að sjá og hugsa um börn, verða
fósturforeldrar, á vegum félagsmálayfir-
valda. Þá velta yfirvöld ekki fyrir sér
þyngd viðkomandi, ekkert frekar en kyn-
hneigð eða öðrum þáttum. Menn hljóta
líka að velta því fyrir sér hvort sama gildi
um karlana og pör, mega of þungir karl-
ar til dæmis ættleiða börn eða pör þar
sem bæði eru of þung? Þessu á dóms-
málaráðuneytið eftir að svara.
Eru mannréttindi brotin?
Leiða má líkur að því. Það verður
alltént að teljast í hæsta máta undar-
legt að konu skuli synjað um að ætt-
leiða barn frá Kína af því að hún sé of
þung.
Mannréttindabrot?
FBL-GREINING: OF ÞUNG TIL AÐ ÆTTLEIÐA BARN
Unnið er að stofnun þverpólitískra
samtaka til varnar Vestfjörðum.
Frumkvöðullinn að stofnun þeirra er
Víðir Benediktsson, framkvæmda-
stjóri á Bolungarvík.
Hvernig ætlið þið að bæta hag
Vestfirðinga?
Við viljum breyta hugarfari stjórn-
málamanna þannig að þeir fari að
láta meira til sín taka á landsbyggð-
inni. Í aldanna rás hefur þjóðarauð-
urinn komið frá sjávarútvegsbyggð-
unum. Nú er okkur ekki gert kleift
að nýta þessi gjöfulu fiskimið og
stjórnmálamenn hafa brugðist okkur
í því að vinna að nýjum atvinnuveg-
um fyrir okkur í staðinn.
Viltu breyta hugarfari þeirra eða
segja þeim upp?
Þeir eru í vinnu hjá okkur og ef þeir
standa sig ekki í stykkinu verðum
við að segja þeim upp í næstu
kosningum og fá aðra til starfans.
Einhverja sem vilja vinna að fjöl-
breyttu atvinnulífi hér á Vestfjörðum.
Þannig höldum við unga fólkinu og
börnunum og þá kemur vonin um
betri framtíð byggðanna.
VÍÐIR BENEDIKTSSON
Framkvæmdastjóri.
fiingmönnum
stillt upp vi› vegg
VESTFIRÐINGAR RÍSA UPP
SPURT & SVARAÐ Skipt um alla í forystusveitinni
JÓHANN HAUKSSON
BLAÐAMAÐUR
Á VETTVANGI
LANDSFUNDUR
SAMFYLKINGAR
KOSIÐ Á LANDSFUNDI Samfylkingarfólk kaus sér forystu til næstu tveggja ára. Glöggur landsfundarfulltrúi þóttist einnig sjá að endur-
nýjun í forystu Samfylkingarinnar endurspeglaði vel uppruna og tilurð Samfylkingarinnar, forystufólkið væri úr Kvennalista, Alþýðuflokki,
Alþýðubandalagi og Þjóðvaka.