Fréttablaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 71
MÁNUDAGUR 23. maí 2005 23
LANDSBANKADEILDIN
Handboltalandslið karla og kvenna voru í eldlínunni í Færeyjum um helgina:
Au›veldir sigrar hjá bá›um li›um
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handknattleik spilaði tvo æfinga-
leiki við Færeyinga um helgina og
voru leikirnir liður í undirbúningi
liðsins fyrir umspilsleikina við
Hvít-Rússa í sumar. Lið Íslands
var eingöngu skipað leikmönnum
sem leika hérlendis og eftir auð-
veldan sigur í fyrri leiknum á
laugardag sigruðu Íslendingar
aftur í Þórshöfn í gær, 36-27, eftir
að staðan hafði verið 18-8 í hálf-
leik.
Þórir Ólafsson og Baldvin Þor-
steinsson voru markahæstir í ís-
lenska liðinu í gær með níu mörk
hvor og Ásgeir Örn Hallgrímsson
skoraði sex mörk. Það var Birkir
Ívar Guðmundsson sem lagði
grunninn að góðum sigri íslenska
liðsins með því að verja 14 skot í
fyrri hálfleiknum, sem skilaði
mörgum hraðaupphlaupum sem
kafsigldu heimamenn.
„Strákarnir léku mjög vel og
ég er mjög sáttur við þessa tvo
leiki hérna um helgina,“ sagði
Viggó Sigurðsson, sem þó hefði
eflaust óskað sér meiri mót-
spyrnu fyrir lið sitt. „Færeying-
arnir voru slakari en ég átti von á,
þeir voru með sitt A-lið og ég verð
að segja að ég átti von á meiru frá
þeim. Þetta gekk heilt yfir bara
mjög vel hjá okkur í sókn og vörn.
Við spiluðum 5-1 vörn allan tím-
ann og ætlum að reyna að byggja
á því,“ sagði Viggó, sem mun á
miðvikudaginn tilkynna liðið sem
mætir Hvít-Rússum í umspilinu
um sæti á EM.
Kvennalandsliðið lék einnig
síðari leik sinn við Færeyinga í
gær og hafði auðveldan sigur 24-
14, þar sem Hekla Daðadóttir var
markahæst með sjö mörk.
baldur@frettabladid.is
STIGAHÆST Hildur Sigurðardóttir skoraði
17 stig fyrir Ísland í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Vináttulandsleikir í körfu:
Tap í lokaleik
KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í körfubolta vann tvo af
þremur vináttulandsleikjum við
England sem fram fóru um helg-
ina. Eftir tvo góða sigar í fyrstu
tveimur leikjunum vann enska
liðið öruggan 14 stiga sigur, 63-77,
í lokaleiknum í Njarðvík í gær. Ís-
lenska liðið byrjaði þó leikinn vel
og náði mest 12 stiga forskoti, 23-
11, í upphafi annars leikhluta..
Birna Valgarðsdóttir bætti tvö
landsliðsmet í sigri íslenska liðs-
ins á laugardaginn en hún lék þá
sinn 61. landsleik og bætti þar
með landsleikjamet Önnu Maríu
Sveinsdóttur. Birna bætti einnig
met Bjargar Hafsteinsdóttur yfir
flestar 3ja stiga körfur skoraðar
fyrir A-landsliðið. -ooj
MARKAHÆSTUR Í BÁÐUM LEIKJUM Baldvin Þorsteinsson var markahæstur í báðum
sigurleikjunum gegn Færeyingum og skoraði samtals 19 mörk í leikjunum tveimur. Hér
sést hann í leik með Val gegn Haukum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM