Fréttablaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 18
Pólýhúðun
S: 544 5700 * www.polyhudun.is
Smiðjuvegi 1 * 200 Kópavogur
Þessir byggja til framtíðar...
...og við hjálpuðum þeim.
Vilt þú byggja til framtíðar?
Eigum á lager 350 RAL liti
Pólýhúðun ehf
Innbakað Duftlakk á alla málma
Pólýhúðum:
Utanhússklæðning
álgluggar
bárujárn
stálvirki
handrið
gler
sólbekki
vatnsbretti
o.fl.
o.fl
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Kettir gera gjarnan þarfir sínar í
blómabeð og sandkassa bæjarins fólki
til hins mesta ama. Mörg húsráð eru
til um hvernig eigi að halda köttunum
í burtu og þar á meðal er fólki ráðlagt
að grafa hvítlauk niður í kringum beð-
in en tvennum sögum fer af því hvort
það virki.
Hjá Dýraríkinu fengust þær upplýsing-
ar að í 75 prósentum tilfella virki að
setja efni sem kallast „Get off“ í kring-
um beð og sandkassa, en það fæst
bæði í úða- og gelformi. Efnið er skað-
laust. Þá sé einnig hægt að setja
sítrónusafa eða úða ilmvatni, eða
hverju því sem ber með sér lykt sem
kettinum líkar illa við, en hafa skal í
huga að nota ekki efni sem eru skað-
leg umhverfinu og lífverum.
Ekki nægir að setja efnið bara einu
sinni við beðið eða sandkassann, held-
ur þarf að gera það oft og reglulega til
þess að það virki sem skyldi. Úðaefni
þarf jafnvel að bera á tvisvar á dag, en
efni í gelformi þarf að setja út á tveggja
vikna fresti og oftar ef það rignir.
]HandriðAthuga þarf handrið við tröppur reglulega og tryggja að það sé nægilegaöruggt, og að hvergi séu lausar festingar eða spýtur. Það sama gildir umsvalahandrið þar sem öryggið skiptir miklu máli.[
Listamaðurinn Matthías Mog-
ensen velur óhefðbundin sýn-
ingarrými fyrir myndirnar sín-
ar. Í gær lauk sýningu hans í
gamla Ó. Johnson og Kaaber-
húsinu sem hann hefur mikið
dálæti á.
„Þetta hús hefur aldrei áður ver-
ið notað fyrir sýningar. Hér var
áður kaffibrennsla en húsið hef-
ur staðið lengi autt og er í hálf-
gerðri niðurníðslu sem er synd
því að þetta er ákaflega fallegt
hús,“ segir Matthías sem fer iðu-
lega ótroðnar slóðir þegar hann
sýnir listaverkin sín. „Ég vinn
þannig að ég reyni að finna
óhefðbundna staði til að sýna á.
Hef til dæmis sýnt í fatabúðum,
leikhúsum og skólum. Sýningarn-
ar eru þá þess eðlis að þær eru
ekki auglýstar neitt sérstaklega.
Fólki er komið skemmtilega á
óvart því það fer kannski í leik-
hús eða í verslunarmiðstöð og sér
þá sýningu í leiðinni.“ Matthías
er mjög ánægður með húsið og
segir það henta vel undir sýning-
ar. „Þetta er skemmtilegt hús og
hér þurfti ekki að breyta miklu.
Ég þurfti að laga til og þrífa en
annars hentaði húsið fullkom-
lega. Það þarf til að mynda varla
lýsingu hér inni því gluggarnir
eru svo stórir og fallegir.“
Matthías hefur mikinn áhuga á
gömlum byggingum og lítur á
þau sem listaverk og menningar-
arf sem eigi að fylgja næstu kyn-
slóð. „Gamall arkitektúr þarf allt
of oft að víkja og við erum of
fljót að rífa gömul hús til að byg-
gja ný. Þetta er pólitískt vanda-
mál og allt of algengt hér á landi.
Þetta er eins og að brenna gamlar
bækur eða fara inn á listasafn og
mála yfir gömlu myndirnar þar
því litirnir þeirra passa ekki
lengur. Þess vegna sæki ég eftir
því að fá að sýna á svona stöðum
og stundum getur slíkt vakið fólk
til umhugsunar og orðið til þess
að húsið öðlist nýtt líf í stað þess
að verða rifið,“ segir Matthías
sem bjargaði meðal annars gam-
alli eldspýtnaverksmiðju í Sví-
þjóð sem átti að rífa en er nú not-
uð sem sýningarrými.
Sýningin gekk vel og Matthí-
as efast ekki um að húsið hafi
haft eitthvað með það að segja.
„Hér er allt önnur stemmning
en á hefðbundnum söfnum eða
galleríum og gestirnir voru
ánægðir með það. Margir sem
komu á sýninguna voru vegfar-
endur sem áttu leið hjá og vildu
fá að skoða þetta fallega hús
sem hefur staðið autt svo lengi.
Margir þeirra vildu sjá ein-
hverja starfsemi í húsinu og ég
vona að því verði fundið nýtt
hlutverk. Þannig má segja að
húsið hafi hjálpað mér og ég
reyni að hjálpa húsinu.“ ■
Skemmtilegt hús sem
vonandi fær nýtt hlutverk
Kettirnir hraktir úr görðum
MARGIR ERU ÓSÁTTIR VIÐ AÐ KETTIR GANGI LAUSIR OG GERI ÞARFIR SÍNAR Í GARÐA
ÞEIRRA – EKKI SÍST Í SANDKASSA ÞAR SEM UNG BÖRN ERU GJARNA AÐ LEIK.
Kettir gera oft þarfir sínar í garða fólks og eru hin mesta plága þegar þeir eigna sér
sandkassa barnanna.
„Hér er allt önnur stemmning en á hefðbundnum söfnum eða galleríum og gestirnir voru ánægðir með það,“ segir Matthías um gömlu
kaffibrennsluna.
Allt upp á vegg
Það má hengja nánast hvað
sem er á veggina.
1. Hengið fallegt teppi á
vegginn. Það má vera
rúmteppi, fallegur borð-
dúkur eða jafnvel gólf-
motta. Til hagræðis má
festa teppið á bambus-
stöng og hengja síðan
upp eins og mynd.
2. Falleg og sérstök flík fer ein-
nig vel á vegg, skírnarkjóll eða
fornfatnaður.
3. Hljóðfæri eru góð hug-
mynd og gefa heimilinu
menningarlegt yfirbragð. Fyllið
upp á milli með nótnablöðum.
4. Körfur eru
flottar og líka
hægt að setja
eitthvað í þær
eins og til dæmis
þurrkuð blóm.
5. Diskar og plattar eru
skemmtilega gam-
aldags veggja-
skraut.
6. Fallegur spegill
sem speglar eitthvað fallegt í stof-
unni gerir allt rýmið stærra.