Fréttablaðið - 23.05.2005, Qupperneq 66
„Ég held að öllum þingmönnum sé
nauðsynlegt að prófa að vinna þau
störf sem tilheyra þeirra mála-
flokki,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, sem ætlar að drífa sig á
síld í sumar.
Magnús verður háseti á Bjarna
Ólafssyni AK 70. „Mágur minn er
skipstjóri, þetta er hálfgerð fjöl-
skylduútgerð. Ég frétti að hann
vantaði afleysingarmann og
spurði hvort ég mætti koma með.
Það reyndist auðsótt mál.“ Skipið
lagði úr höfn í gærkvöldi og verð-
ur að veiðum fram að sjómanna-
dag. Bjarni Ólafsson hefur verið á
kolmunnaveiðum hingað til en
ætlar að skipta yfir í síld, þar sem
verð á henni er hagstætt um þess-
ar mundir. „Þó ég hafi verið á
mörgum fiski- og rannsóknarskip-
um í gegnum tíðina hef ég aldrei
áður farið á síld,“ segir Magnús,
sem fagnar nýjum vinnuvett-
vangi, þó tímabundinn sé. „Það er
gott að komast burt og tæma hug-
ann. Ég skil símann og tölvuna
eftir, sem er kærkomin tilbreyt-
ing.“
Magnús telur það ekki aðeins
sjálfum sér hollt að fara á sjó,
heldur muni það reynast honum
mikilvæg reynsla á þingi þar sem
hann situr jú í sjávarútvegsnefnd.
„Síldin er auðvitað hápólitískt mál
milli okkar og Norðmanna. Svona
reynsla er líka öllum þingmönn-
um mikilvæg. Alþingi við Austur-
völl er lokaður heimur og tengsl
okkar við fólkið í landinu eru
oftar en ekki í gegnum fjölmiðla.
Þetta er góð leið til að komast í
beinni tengsl við mannlífið,“ segir
þingmaðurinn, sem býst við að
mæta endurnærður og frískur á
Alþingi í haust. ■
18 23. maí 2005 MÁNUDAGUR
HENRIK JOHAN IBSEN (1828 – 1906)
lést þennan dag.
TÍMAMÓT: ALÞINGISMAÐUR Á SÍNA FYRSTU SÍLDARVERTÍÐ
Gott að komast í bein
tengsl við mannlífið
„Þú skalt aldrei klæðast þínum fínustu buxum
ef þú ætlar að berjast fyrir frelsi og sannleika.“
Henrik Johan Ibsen var norskt leikskáld. Hann skrifaði meðal annars leikrit-
ið Þjóðníðinginn og er einna þekktastur fyrir leikritið um Pétur Gaut.
timamot@frettabladid.is
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON Á sínum tíma safnaði Magnús myndarlegu skeggi en
rakaði það síðar af. Hann gerir þó ráð fyrir að leyfa því að spretta aftur á sjónum.
Yfir 100 börn og sex kennarar
voru tekin í gíslingu í barnaskóla í
norðurhluta Hollands á þessum
degi árið 1977. Gíslatökumennirnir
voru frá Mólúkkaeyjum í Austur-
Indíónesíu, sem hafði verið hluti
af nýlendu Hollendinga.
Töluvert er um innflytjendur frá
Mólúkkaeyjum í Hollandi og aukin
krafa hafði verið á hollensk yfir-
völd að berjast fyrir sjálfstæði eyj-
anna innan Indónesíu.
Gíslatökumennirnir réðust á skól-
ann um morguninn, slepptu 15
mólúkkískum börnum og söfnuðu
hinum inn í tvær skólastofur og
huldu gluggana með dagblöðum.
Á sama tíma tóku sjö aðrir Suður-
Mólúkkabúar lest traustataki með
um 50 farþegum innanborðs
nærri bænum Groningen en
slepptu börnum og gamalmenn-
um.
Ein kona slapp úr skólanum og
urðu lögreglumenn að berhátta
sig til að fá að fylgja henni af
svæðinu til að sýna fram á að þeir
væru óvopnaðir. Fjórum dögum
síðar var öllum börnum úr skólan-
um sleppt eftir að upp kom iðra-
kveisa. Fjórir kennarar urðu eftir í
gíslingu ásamt þeim sem voru um
borð í lestinni. Þann 11. júní, 20
dögum eftir að gíslatakan hófst,
réðst hollenski herinn inn í lestina
og skólann. Sex gíslatökumenn og
tveir farþegar létust í miklum
byssubardaga í lestinni.
Á næstu mánuðum og árum
bættu hollensk yfirvöld félagslegar
aðstæður Mólúkkabúa í landinu.
23. MAÍ 1977
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1849 Um 45 bændur úr Skaga-
firði ríða að Möðruvöllum í
Hörgárdal og biðja Grím
Jónsson amtmann um að
segja af sér.
1934 Ræningjaparið Bonnie og
Clyde eru skotin og drepin
af lögreglu.
1945 Heinrich Himmler fremur
sjálfsmorð í breskum
fangabúðum.
1960 SS-foringinn Adolf Eich-
mann er handsamaður í
Argentínu.
1985 Alþingi samþykkir þings-
ályktun um að á Íslandi
verði ekki staðsett kjarn-
orkuvopn.
1987 Hannes Hlífar Stefánsson
verður heimsmeistari
sveina í skák, þá 14 ára að
aldri.
Tvöföld gíslataka í Hollandi
!"#$%
& '
()*
( +'
&, + %(
"#)
- ((
"./) 0 1.'
'"1/2
3 (
+ &, +
'
(0 ( )
0 '+ & ) 5
*%
+ - &"64""
7 &"4".8
'
"8"7 (9
0: 9"#.;'
* +
'
<
) 0+3 2 + ) ( '#"' ".17*
0 = &+
%(0
+ > 9 ) 7
< '
!"
7 ,1/?6:)+ 7 (, &+'7* +3 +?
- ,& + %
' ,
+0@
A +'
) /
ANDLÁT
Sigurður Björgvinsson, frá Garði í Mý-
vatnssveit, lést föstudaginn 20. maí.
Sigurjón G. Sigurjónsson, Birkigrund
71, Kópavogi, lést föstudaginn 20. maí.
Jóhanna Ásdís Jónasdóttir, Mánatúni
2, Reykjavík, lést föstudaginn 20. maí.
JAR‹ARFARIR
13.00 Torfi Ásgeirsson, Dalbraut 14,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Hallgrímur Egill Sandholt, verk-
fræðingur, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
15.00 Steinunn Margrét Norðfjörð,
Ljósvallagötu 20, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu.
1933 Joan Collins leikkona
1951 Anatoli Karpov,
skákmeistari
1961 Drew Carey,
gamanleikari
1966 Helena Bonham
Carter, leikkona
AFMÆLI
Þórhallur Sigurðsson
leikstjóri er 59 ára.
Viðar Halldórsson, fyrr-
verandi knattspyrnu-
kappi, er 52 ára.
Árni Páll Árnason lög-
maður er 39 ára.
Erna Guðrún Kaaber
rithöfundur er 32 ára.
FÆDDUST fiENNAN DAG
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og
jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda
á netfangi› timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is
e›a hringja í síma 550 5000.
Hestaíþróttir og lögreglustörf:
Unnur Birna
er Ungfrú Ísland
„Mér líður ofsalega vel. Þetta var
algjör draumur,“ segir Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir, sem kjörin
var Ungfrú Ísland á föstudaginn
var. „Ég átti alveg eins von á
þessu, við stefndum allar að þessu
marki og þegar maður stefnir að
einhverju verður maður að gera
ráð fyrir að það gangi upp.“
Það er í nógu að snúast hjá
fegurstu konu landsins, sem þjálf-
ar af kappi fyrir hestaíþróttamót
sumarsins og hefur sumarstörf
hjá lögreglunni á Keflavíkurflug-
velli í næstu viku. „Ég ákvað að
prófa eitthvað nýtt og fór því í
inntökupróf í vikunni og náði því.
Mig langar að fara í lögfræði í
Háskólanum í Reykjavík næsta
vetur en á eftir að fá svar.“ Hún er
þó ekki meira en svo viss um hvað
nýfenginn titill ber í skauti sér.
„Ég veit ekki alveg hvað tekur við
en fer á fund með framkvæmda-
stjóra á morgun og þá skýrist
þetta allt saman,“ segir hin önnum
kafna Ungfrú Ísland, sem notaði
helgina til að hvíla sig fyrir kom-
andi daga. - bb
NÝKJÖRIN UNGFRÚ ÍSLAND Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir, Ungfrú Ísland 2005, á að
eigin sögn annasamt sumar í vændum en
hún þjálfar fyrir hestamót og er að hefja
störf sem lögreglukona.