Fréttablaðið - 23.05.2005, Síða 69
FÓTBOLTI Fylkismenn unnu
verðskuldaðan sigur á Þrótti á
Laugardalsvellinum í gær.
Gestirnir stjórnuðu leiknum ef
frá er talinn góður kafli undir lok
fyrri hálfleiksins þar sem
Þróttarar skoruðu mark og voru
betri aðilinn. „Fyrri hálfleikur
slapp kannski af okkar hálfu en sá
síðari var frekar slakur. En eftir
markið hættum við einhverra
hluta vegna og vorum ekki í neinu
standi til að mæta þeim eftir
hálfleikinn,“ sagði Þróttarinn
Ingvi Sveinsson eftir leik.
„Við hefðum átt að skora 4-5
mörk í síðari hálfleiknum,“ sagði
Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis,
eftir leikinn. „En sigurinn var
sætur, sérstaklega í ljósi tapleiks-
ins gegn KR í síðustu viku.“
Eins og Þorlákur segir hefðu
Fylkismenn með réttu átt að vera
löngu búnir að tryggja sér
sigurinn áður en markið kom á
elleftu stundu. „Fótboltalega séð
erum við búnir að spila mjög vel
en það virðist vanta gæði uppi við
markið. Við erum að sækja fram á
öllu liðinu en vantar að klára
sóknirnar. Björgólfur og Sævar
Þór hafa átt í meiðslum en eru
allir að koma til baka.“
Þorlákur hefur þó ekki
áhyggjur af sínum mönnum. „Það
er ferskur blær í liðinu, enda með
mikið af ungum mönnum í liðinu.“
Einn þeirra, Albert Brynjar, var
ekki í hópnum gegn KR en nýtti
tækifærið vel nú og skoraði
sigurmarkið. „Loksins skoraði
hann sitt fyrsta mark í alvöru
meistaraflokksleik. Við vissum að
það hlyti að koma að því,“ sagði
Þorlákur.
Valur Fannar Gíslason skoraði
jöfnunarmark Fylkis á 55. mínútu
með skalla eftir horn, rétt eins og
gegn KR, nema nú í rétt mark.
Páll Einarsson gerði mark Þróttar
úr víti. eirikurst@frettabladid.is
MÁNUDAGUR 23. maí 2005 21
Upplýsinga- og margmiðlunarsvið
Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina
Sérsvið: Bókband Grafísk miðlun* Ljósmyndun
Prentun* Veftækni* Nettækni*
Tækniteiknun
Margmiðlunarskólinn
2ja ára nám þar sem umsækjendur þurfa að hafa lokið tveggja ára námi
í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, lokið námi af listnámsbrautum,
tölvubrautum eða öðru sambærilegu námi.
* Kennt á haustönn 2005
Tölvusvið
Tölvubraut Forritun Netkerfi
Rafiðnasvið
Grunnnám rafiðna Rafvirkjun Rafeindavirkjun
Rafveituvirkjun Rafvélavirkjun Símsmíði
Sérdeildasvið
Sérdeild Nýbúabraut
Almennt svið
Almennar námsbrautir Nám til stúdentsprófs
Málmtæknisvið
Grunnnám bíliðna Málmtæknibraut
Gull- og silfursmíði
Byggingasvið
Grunnnám bygginga- og Húsasmíði Húsgagnasmíði
mannvirkjagreina Múrsmíði Veggfóðrun
Málaraiðn
Hönnunarsvið
Listnámsbraut Almenn hönnun Keramik Hársnyrting
Klæðskurður Kjólasaumur
SÍMI 522 6500 • FAX 522 6501www.ir. is • ir@ir. is
G
Ú
ST
A
Innritun fyrir alla aðra en þá sem ljúka
grunnskólaprófi í vor:
Innritun: 25. og 26. maí, kl. 12–16.
Innritun í fjarnám:
Innritun í fjarnám hefst 24. maí á vef skólans www.ir.is
Innritun í kvöldskóla:
Innritun í fjarnám hefst 24. maí á vef skólans www.ir.is
Allar nánari upplýsingar á www.ir.is
og á skrifstofu skólans, síma 522 6500.
Traust menntun
í framsæknum skóla
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
INNR ITUN
LÁNSHÆ
FT NÁM
1-2
Valsvöllur, áhorf: 1052 Ólafur Ragnarsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 5–18 (1–6)
Horn 2–12
Aukaspyrnur fengnar 7–13
Rangstöður 2–4
1-0 Páll Einarsson, víti (29.)
1-1 Valur Fannar Gíslason (55.)
1-2 Albert Brynjar Ingason (90.)
*BESTUR Á VELLINUM
ÞRÓTTUR 3–5–2
Fjalar 7
Eysteinn 5
Jens 7
(73. Ólafur –)
Dusan Jaic 5
Freyr 6
Páll 6
Halldór 6
Hallur 5
Ingvi 6
Maruniak 6
(80. Henning –)
Sævar 5
(65. Þórarinn 4)
FYLKIR 4–4–2
Bjarni Þórður 7
Helgi Valur 7
Ragnar 6
Valur Fannar 7
Gunnar Þór 6
Viktor Bjarki 6
Guðni Rúnar 6
Finnur 7
Eyjólfur 6
(89. Jón Björgvin –)
Sævar Þór 6
(32. Albert Brynjar 7)
Björgólfur 6
(69. Björn Viðar 6)
Þróttur Fylkir
Naumur en gó›ur Fylkissigur
Fylkismenn sóttu flrjú stig í Laugardalinn í gær er li›i› vann firótt, 2–1. Nú voru fla› Fylkismenn sem
skoru›u sigurmarki› á lokamínútunum eftir a› hafa veri› hinum megin vi› fla› bor› í 1. umfer›inni.
FYRIRLIÐINN JAFNAR Valur Fannar Gíslason skallar hér boltann í mark þróttar og jafnar
leik liðanna í laugardalnum í gær. Þetta var fyrsta mark Vals Fannars í rétt mark í sumar
en hann bætti þarna fyrir sjálfsmarkið gegn KR í síðustu umferð. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
STAÐAN:
FH 2 2 0 0 8–1 6
KR 2 2 0 0 3–1 6
FRAM 2 1 0 1 3–1 3
VALUR 1 1 0 0 3–1 3
ÍA 1 1 0 0 1–0 3
FYLKIR 2 1 0 1 3–3 3
KEFLAVÍK 2 1 0 1 3–5 0
ÞRÓTTUR 2 0 0 2 1–3 0
ÍBV 2 0 0 2 2–6 0
GRINDAVÍK 2 0 0 2 2–8 0
1. deild karla:
VÍKINGUR Ó.–KS 1–0
1–0 Ejub Purisevic (8.).
FJÖLNIR–KA 2–0
1–0 Pétur Markan, 2–0 Sigmundur Ástþórsson.
VÖLSUNGUR–BREIÐABLIK 0–1
0–1 Kristján Óli Sigurðsson (16.).
ÞÓR AK.–VÍKINGUR R. 1–1
0–1 Jón Guðbrandsson (12.), 1–1 Steinn
Símonarson, víti (84.).
Þýski handboltinn:
FLENSBURG–DÜSSELDORF 31–26
Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir
Düsseldorf en Markús Máni Michaelson komst
ekki á blað.
KIEL–ESSEN 32–25
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur fyror
Essen og skoraði 9 mörk.
MINDEN–LEMGO 29–30
Logi Geirsson skoraði 3 mörk fyrir Lemgo.
PFULLINGEN–WILHELMSHAVENER 32–30
Gylfi Gylfason skoraði 3 mörk fyrir Wilhelmsh.
GROSSWALLSTADT–WETZLAR 36–34
Snorri Steinn GUðjónsson skoraði 12/2 mörk fyrir
Grosswallstadt og Einar Hólmgeirsson bætti við 5
Róbert Sighvatsson var markahæstur hjá Wetzlar
með sex mörk.
HAMBURG–MAGDEBURG 28–26
Arnar Atlason var markahæstur hjá Magdeburg
með 5 mörk og Sigfús Sigurðsson skorað 3 mörk.
Vináttulandsleikur í körfu:
ÍSLAND–ENGLAND 63–77
Stig Íslands: Hildur Sigurðard.17 (8 fráköst,
5 stoðs.), Helena Sverrisd. 12 (5 fráköst),
Helga Jónasdóttir 8 (8 fráköst), Birna Val-
garðsdóttir 7, Signý Hermannsdóttir 5 (8 frá-
köst, 5 varin), Þórunn Bjarnad. 4, Rannveig
Randversd. 4, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 3,
Bryndís Guðmundsd. 2, Alda Leif Jónsd. 1.