Fréttablaðið - 29.05.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
EINKAVÆÐING Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu hafði samið aug-
lýsingu um sölu á ráðandi hlut í
Landsbankanum eftir að hafa
borist bréf frá Samson í júnílok
2002. Ráðherranefndin, sem í sátu
Davíð Oddsson, Geir H. Haarde,
Halldór Ásgrímsson og Valgerður
Sverrisdóttir, breytti auglýsing-
unni eftir fund sinn og auglýsti
báða bankana til sölu að fram-
kvæmdanefndinni forspurðri.
Fyrst þá vissi framkvæmdanefnd-
in að selja ætti báða bankana, en
hún hafði undirbúið að selja Lands-
bankann til almennings haustið
2002.
Þetta kemur fram í öðrum hluta
greinaflokks Fréttablaðsins um
einkavæðingu ríkisbankanna sem
birtist í dag. Einnig er sagt frá því
að Björgólfur Thor Björgólfsson
hafi gert ráð fyrir því að fá forskot
á kaupendur Búnaðarbankans en
ráðherranefndin hafi vísvitandi
dregið að semja um söluna á
Landsbankanum til þess að koma í
veg fyrir það.
Í blaðinu í dag segir meðal
annars: Næsta dag sendi starfs-
maður framkvæmdanefndarinnar
nefndarmönnum tillögu að auglýs-
ingu um sölu á að minnsta kosti 25
prósenta hlut í Landsbankanum og
jafnframt fréttatilkynningu, þar
sem fram kom að ákveðið hefði
verið að áfangaskipta einkavæð-
ingu Landsbankans og Búnaðar-
bankans. Samkvæmt fréttatil-
kynningunni yrði 20 prósenta hlut-
ur í Búnaðarbankanum seldur 6.
september í gegnum viðskipta-
kerfi Kauphallarinnar með svipuð-
um hætti og gert hefði verið með
jafnstóran hlut í Landsbankanum.
Í síðari hluta september yrði aug-
lýst eftir kaupanda að umtalsverð-
um hlut í Búnaðarbankanum.
Nefndin áformaði að hittast síð-
ar sama dag til að ganga frá aug-
lýsingunni.
Af þeim fundi varð hins vegar
ekki því að í millitíðinni fundaði
ráðherranefndin og breytti auglýs-
ingu framkvæmdanefndar að
nefndinni forspurðri.
-sda/ Sjá síður 14 og 15
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu:
Vissi ekki af sölu
Búna›arbankans
YFIRLEITT BJARTVIÐRI HÆTT VIÐ
SÍÐDEGISSKÚRUM Hiti 6-15 stig,
hlýjast til landsins suðvestan til.
VEÐUR 4
SUNNUDAGUR
29. maí 2005 - 143. tölublað – 5. árgangur
Vann Tarantino í karaókí
Friðrik Þór Friðriksson státar af
því að hafa sigrað
einn frægasta
leikstjóra
heims í kara-
ókí.
FÓLK 42
NJÓTA BLÍÐUNNAR Í NAUTHÓLSVÍK Fólk á öllum aldri naut lífsins á ylströndinni í Naut-
hólsvík í Reykjavík í gær. Þessar ungu stúlkur kældu sig undir bununni og virtust skemmta
sér vel. Sigurður Ragnarsson spáir því að veðrið verði áfram gott og því ættu landsmenn
að geta notið blíðunnar áfram.
Mismunum
innflytjendum
Krafan um íslenskukunnáttu innflytjenda er stjórn-
tæki í stéttaskiptingu segir mannfræ›ingur. Segir
fólki vera mismuna› eftir stö›u og menntun.
INNFLYTJENDAMÁL Guðrún Margrét
Guðmundsdóttir mannfræðingur
segir Íslendinga gera mismun-
andi kröfur til íslenskukunnáttu
innflytjenda eftir menntun og
stöðu þeirra í samfélaginu. Hún
veltir því fyrir sér hvort sú ofur-
áhersla sem lögð er á íslenskuna,
sé ekki enn einn þröskuldurinn í
vegi þess að innflytjendur verði
fullgildir þátttakendur í sam-
félaginu og í raun hluti af stétt-
skiptingu þess.
Þessa vanga-
veltur Guðrúnar
komu fram á
málþingi um
reynslu innflytj-
enda á Íslandi
sem haldið var í
h ú s a k y n n u m
R e y k j a v í k u r -
akademíunnar í
gær.
Guðrún, sem
sjálf bjó víða í
Mið-Austurlönd-
um um tíu ára
skeið, spyr
hvort krafan um
íslenskukunnáttu sé ekki í raun
leið íslenska samfélagsins til að
hafa stjórn á innflytjendum. „Mér
finnst þetta viðhorf til dæmis end-
urspeglast í því að íslensk stjórn-
völd leggja enga sérstaka áherslu
á að gera innflytjendum kleift að
læra málið en krefjast þess samt
að þeir kunni það,“ segir hún.
Hún fullyrðir einnig að samfé-
lagið geri mjög mismunandi kröf-
ur til íslenskukunnáttu innflytj-
enda eftir stétt og stöðu. „Ég
þekki hámenntaða útlendinga sem
eru í góðum stöðum hér og verð
ekki vör við að þess sé krafist að
þeir tali íslensku. Svo hef ég unn-
ið á sjúkrahúsi með mörgum inn-
flytjendum og þar var sífellt verið
að gera athugasemdir við að þeir
töluðu ekki íslensku. Ég leyfi mér
því að efast um að þessi áhersla á
íslenskukunnáttuna sé sett fram
til að fólkinu líði betur, heldur ein-
faldlega til að hafa betri stjórn á
því.“
Guðrún bendir líka á að yfir-
leitt sé ekki nóg að innflytjendur
tali íslensku heldur þurfi þeir
helst að tala fullkomna íslensku til
að mark sé tekið á þeim. „Samt
vitum við að fyrsta kynslóð inn-
flytjenda mun aldrei geta talað
fullkomna íslensku en börnin
þeirra munu gera það.“ Og hún
spyr hvort ekki sé kominn tími til
að horfa frekar á hæfileika þess
fólks sem hingað kemur í stað
þess að einblína á þá hluti sem það
getur ekki. -ssal
KOMIN Í SITT BESTA FORM
Knattspyrnukonan Ásthildur Helgadóttir er komin á fulla fer› í boltanum
á n‡ eftir margra mána›a fjarveru vegna mei›sla. Hún hefur slegi›
rækilega í gegn í sænska boltanum me› Malmö FF. ÍÞRÓTTIR 30
BUMFIGHT:
Ógæfufólk slæst og meiðir hvort annað gegn
greiðslu frá kvikmyndagerðarmönnum.KVIKMYNDIR 26
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ:
SJÓNVARP Í SINNI
LJÓTUSTU MYND
Ekki dauðir úr
öllum æðum
Rokksveitin Oasis
gefur út nýja plötu
á morgun. Ferill
sveitarinnar
spannar ein
þrettán ár.
TÓNLIST 24
Lyginni líkust
Á fimm árum hefur Bakkavör
breyst úr meðalstóru fyrirtæki í
Kauphöllinni íslensku í stærsta
framleiðanda Bretlands í sölu
tilbúinna, ferskra og
kældra matvæla.
Bakkavarar-
bræðrum þykir
þó ekki nóg
komið og stefna
á enn frekari
útrás.
VIÐSKIPTI 10
VEÐRIÐ Í DAG
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/E.Ó
L.
GUÐRÚN GUÐ-
MUNDSDÓTTIR Spyr
hvort ekki séu gerð-
ar óraunhæfar kröf-
ur til íslenskukunn-
áttu innflytjenda.
Brugðist við skipum á ólöglegum veiðum:
Var›skip á vettvang
LANDHELGISGÆSLAN Varðskip voru í
gær send út á Reykjaneshrygg til
að setja pressu á sjóræningjaskip-
in sjö sem eru þar á ólöglegum
veiðum, svo þau fylgi eftir alþjóð-
legum sáttmála Norðaustur-Atl-
antshafsfiskveiðinefndarinnar.
Varðskipin geta ekki aðhafst
beint gegn veiðum skipanna, þar
sem þau eru öll utan íslenskrar
lögsögu.
„Norðaustur-Atlantshafsfiski-
veiðinefndin er að reyna að setja
pressu á skipin, með því að gera
þeim erfitt fyrir við að komast í
hafnir og fá þjónustu. Við tökum
þátt í þessum aðgerðum enda er
um brot á alþjóðlegum sáttmála
að ræða,“ segir Kristján Jónsson,
yfirmaður gæsluframkvæmda
hjá Landhelgisgæslu Íslands. - mh
Vinstri-grænir undirbúa borgarstjórnarkosningar:
Vilja forval á lista
STJÓRNMÁL Lagt verður til á félags-
fundi Vinstri-grænna í Reykjavík í
dag að innanflokksprófkjör verði
notað til að velja sex efstu fram-
bjóðendur flokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í Reykjavík
næsta vor.
Í þessu skiptir engu hvort flokk-
urinn býður fram undir eigin nafni
eða í samstarfi við hina flokkana
sem í dag standa að Reykjavíkur-
listanum.
Líklegt er talið að tillaga starfs-
hópsins verði samþykkt.
Áhrifamenn innan Samfylkingar
hafa lagt áherslu á að opið prófkjör
verði haldið um uppröðun á R-list-
ann. Tillagan sem lögð verður fyrir
fund Vinstri-grænna gengur þvert á
þessa kröfu. Hana má skilja sem
skilaboð Vinstri-grænna til Sam-
fylkingarinnar og annarra sam-
starfsflokka um að Vinstri-grænir
ætli einir að velja sína fulltrúa á
framboðslista.
Gangi þetta eftir verður það í
fyrsta sinn sem Vinstri-grænir efna
til prófkjörs við val á lista. -bþg
SJÓRÆNINGJASKIP Reynt verður að hindra
skipin í að fá þjónustu í erlendum höfnum.