Fréttablaðið - 29.05.2005, Page 2

Fréttablaðið - 29.05.2005, Page 2
2 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Rektorinn á Bifröst segir konur með helmingi lægri laun en karlar þrátt fyrir sömu menntun: Skammast mín fyrir flessi skilabo› JAFNRÉTTI Þrátt fyrir að konur tvö- faldi laun sín og rúmlega það eftir nám við Viðskiptaháskólann á Bif- röst munar samt nær fimmtíu pró- sentum á launum þeirra og launum karla eftir útskrift. Þetta kom fram í ræðu Runólfs Ágústssonar rektors við útskrift í gær. Runólfur byggði orð sín á könnun um stöðu og störf nemenda sem hafa útskrifast frá Bifröst síð- ustu ár. Hann sagðist sannfærður um að sama ætti við um þá sem hafa útskrifast frá öðrum háskólum. Runólfur var þungorður í ræðu sinni. „En hvers konar fréttir er ég hér að flytja ykkur, þið konur í hópi útskriftarnema. Jú, þrátt fyr- ir að hafa að baki sama nám og að hafa sömu gráðu og skólafélagar ykkar, eruð þið af íslensku at- vinnulífi ekki metnar eins og þeir sem sitja við hlið ykkar hér á þess- ari hátíðarstundu. Ég skammast mín fyrir þessi skilaboð.“ Runólfur hét að berjast gegn þessu, meðal annars með því að stofna rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála. Hann og Árni Magnússon félagsmálaráðherra skrifuðu undir samning þar um í gær. Auk þessa á að setja á fót átakshóp meðal kvenna í næsta út- skriftarárgangi sem á að efla vit- und kvenna um stöðu sína á vinnu- markaði. ■ Meirihluti ökumanna virðir ekki lög um hámarkshraða í Ártúnsbrekku: Lögbrjótar eru í flúsundavís LÖGREGLUMÁL Vel yfir fjögur þús- und ökumenn óku hraðar en á 110 kílómetra hraða um Ártúnsbrekk- una í vikunni samkvæmt mælum Gatnamálastofu Reykjavíkur- borgar en það er 40 kílómetrum hraðar en leyfilegur hámarks- hraði. Ekkert virðist hafa breyst hvað þetta varðar síðan Fréttablaðið skýrði frá því fyrir tæpu ári síðan að vel yfir helmingur allra öku- manna sem um Ártúnsbrekkuna fara æki hraðar en lög leyfa og margir vel yfir hundrað kílómetra hraða. Lögregluyfirvöld báru þá við að ekki væri komið til móts við óskir hennar um hert eftirlit og gat enginn hjá umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík staðfest að eitthvað hefði breyst í millitíð- inni. Lögreglumenn séu reglulega við eftirlit á svæðinu en það dugi skammt. Þess má geta að almennar starfsreglur hjá lögreglunni eru að sekta ekki ökumenn nema að viðkomandi fari fimmtán til tutt- ugu kílómetra fram yfir hámarks- hraða. Í því ljósi hefði verið hægt að sekta ökumenn 60 þúsund sinnum í liðinni viku. -aöe Rá›herrann frestar styttra framhaldsnámi Menntamálará›herra segir mikilvægast a› markmi› breytinganna haldi sér og a› nám til stúdentsprófs ver›i flrettán ár í sta› fjórtán. Forma›ur skólameist- arasambandsins segir tíma nú gefast til a› ræ›a málin betur. MENNTAMÁL Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra hefur ákveðið að fresta fyr- irhugaðri styttingu á námi til stúdentsprófs um eitt ár. Það þýð- ir að ný námsskrá tekur gildi haustið 2009 í stað 2008 eins og stefnt var að. Meginástæður breytingarinnar eru ábendingar sem ráðherranum bárust frá nemendum og skóla- stjórnendum um að ekki væri nægjanlegur tími til stefnu. Einnig komu fram áhyggjur vegna ýmissa þátta í endurmennt- un kennara og gerð námskrár og námstefnu. „Aðalatriðið er þó að áformin halda sér, við þurfum að nýta tím- ann betur og það felst mikil verð- mætasköpun í því að hafa þá meg- inreglu að skólaganga til stúd- entsprófs verði þrettán ár í stað fjórtán. Þetta er afar mikilvægt fyrir íslenskt samfélag því það gengur ekki að Ísland sé eina þjóðin í Evrópu sem hefur svo langa skólagöngu til að komast í háskóla,“ segir Þorgerður Katrín. Hún segir ljóst að breytingin muni kosta hundruð milljóna, en ekki verði hjá því komist að ráð- ast í þessa framkvæmd. „Okkur ber skylda til að nýta námstímann betur, við erum í alþjóðlegri sam- keppni og hvert ár er dýrmætt,“ segir hún. Þorsteinn Þorsteinsson, for- maður skólameistarafélags Ís- lands, segist alls ekki ósáttur við frestunina og finnst hún afar eðli- leg. „Það eru skiptar skoðanir um þessar breytingar innan raða skólamanna, menn vilja ræða þessi mál betur og þetta gefur mönnum betri tíma til að skoða ýmis álitamál í framkvæmdinni.“ Hann segist heyra að margir skólamenn hafi nokkrar áhyggjur af framkvæmd breytinganna en sjálfur er hann fylgjandi styttingu námstímans. Hann hefði þó frekar vilja lengja skólaárið meira en segist gera sér grein fyrir því að um það séu mjög skiptar skoðanir. „Þeir sem gagnrýna þessar breyt- ingar mest óttast að með þessu sé verið að skerða námið, það verði minna nám í mikilvægum grein- um,“ segir Þorsteinn. ssal@frettabladid.is Mótorkrossmót: Erill hjá lögreglunni VÍK Í MÝRDAL Töluverður erill var hjá lögreglunni á Vík í Mýrdal, vegna mótorkrossmóts sem staðið hefur yfir um helgina. Þrjú slys hafa orðið á ökumönnum bifhjóla. Einn ökumaður ökklabrotnaði, annar fór úr axlarlið og sá þriðji slapp með minni háttar meiðsl. Tuttugu ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í grennd við Vík í Mýrdal. Eitt fíkniefnamál kom upp í gær þegar gestur á tjaldstæði var tekinn með um fjögur grömm af amfetamíni. Töluverður fjöldi fólks er í bænum í tengslum við mótið. - mh AUSTURRÍKI NJÓSNAÐ FYRIR MOSSAD Peter Sichrovsky, fyrrum fram- kvæmdastjóri Frelsisflokks Jörgs Haider, segist hafa njósnað fyrir ísraelsku leyniþjónustuna Mossad allan tímann sem hann vann fyrir flokkinn. Hann sagðist hafa viljað hjálpa Ísrael og að Ísraelar hefðu viljað nota Haider sem tengilið við ýmis Arabaríki. EÞÍÓPÍA STJÓRNIN HÉLT VELLI Stjórnar- flokkarnir héldu velli í eþíópísku þingkosningunum samkvæmt kosningaúrslitum sem voru birt í gær. Stjórnarflokkarnir fengu 269 af 547 þingsætum sem kosið var um 15. maí. Enn á eftir að taka á kærumálum og endanleg úrslit verða ekki birt fyrr en 8. júní. LÖGREGLUFRÉTTIR SLUPPU VIÐ MEIÐSL Harður árekstur var á Ísafirði í gær þeg- ar tveir bílar skullu saman á gatnamótum Skutulsfjarðarbraut- ar og Seljalandsbrautar. Að sögn lögreglu slasaðist enginn í árekstrinum, en bílarnir eru báð- ir algjörlega óökuhæfir. Mannskæð sprengjuárás: Á flri›ja tug létust INDÓNESÍA, AP Á þriðja tug manna létust og fjörutíu særðust í tveimur sprengjuárásum í bænum Tentena á indónesísku eyjunni Sulawesi í gær. Nokkrir særðust í fyrri sprenging- unni en seinni sprengjan var mun öflugri og sprakk þegar fólk kom hinum særðu til hjálpar. Sá yngsti sem lést var þriggja ára drengur. Í það minnsta 22 létust en sú tala gæti hækkað. Talið er að íslamskir vígamenn hafi komið sprengjunum fyrir. Yf- irvöld segja að árásirnar tengist ekki átökum kristinna manna og múslima sem kostuðu um þúsund manns lífið á árunum 2000 til 2002. ■ Bráðkvaddur á sjó: Ma›urinn sem lést ANDLÁT Maðurinn sem lést á báti sínum úti fyrir Bolungarvík í fyrradag hét Kristján Þorleifsson. Hann var 65 ára að aldri og lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. ■ Umferðarslys í Hvalfirði: Lést í árekstri ANDLÁT Maðurinn sem lést í bíl- slysi í Hvalfirðinum á föstudag hét Skarphéðinn Kristinn Sigurðs- son. Hann var 23 ára að aldri, til heimilis að Ljósavík 27 í Reykja- vík. Hann var ókvæntur og barn- laus. ■ Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00 114.990 kr. Hua Hin 2 vikur í júlí Verð á mann í tvíb. með sköttum 129.995 kr. 5 stjörnu lúxus 2 vikur í ágúst Verð á mann í tvíb. með sköttum 118.900 kr. Pattaya 2 vikur í júní Verð á mann í tvíb. með sköttum 133.700 kr. Bali 2 vikur í júlí Verð á mann í tvíb. með sköttum Fjölmargir möguleikar í sumar og haust Mannlífið í Taílandi og á Bal i á ómótstæðilegu verði Ævintýraleg sumarsól í Austurlöndum draCretsaM udnuM !aninusívá aðref Nánari upplýsingar um verðdæmin er að finna á heimsíðunni www.kuoni.is Verðdæmi SPURNING DAGSINS Jóhann, ver›a eyjabúar ekki a› fá sér kajak? „Allavega bjarghring.“ Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndun- arfélagsins, sagði hugmyndir sjálfstæðismanna í Reykjavík um byggð í eyjunum kringum borgina út í hött. Hann minnti á að helmingur Seltjarnar- ness hefði farið undir vatn í Básendaflóðinu 1799. ÚTSKRIFTARHÓPURINN Á BIFRÖST 63 nemar voru útskrifaðir í gær, þar á meðal fyrstu þrír meistaranemarnir sem útskrifast frá Bifröst. SUMARIÐ ER TÍMINN Sjaldan er meiri umferð á helstu stofnvegum höfuðborgarinnar en þegar líða fer að sumri. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Menntamálaráðherra segir að það gangi ekki að Íslendingar þurfi lengra nám til stúdentsprófs en aðrar Evrópuþjóðir.LÖGREGLUFRÉTTIR BRUNI Í BREIÐHOLTI Lögregla og slökkvilið voru kölluð út eftir að tilkynning barst um bruna í Breið- holtinu um klukkan hálf sjö síðdegis í gær. Bruninn var minni- háttar og var búið að slökkva eld- inn að mestu þegar lögregla kom á vettvang. Engan sakaði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.