Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 18
18 29. maí 2005 SUNNUDAGUR
Ys og þys á Indlandi
Íslandsheimsókn Abdul Kalam, forseta Indlands, hefst í dag og stendur í fjóra
daga. Indland er á gó›ri lei› me› a› ver›a flri›ja stærsta hagkerfi heims en engu
a› sí›ur fær a›eins hluti Indverja a› njóta ávaxtanna af uppsveiflunni eins og
Sveinn Gu›marsson rekur í flessari grein.
F orseti Indlands, AbdulKalam, kemur til Íslands ídag í opinbera heimsókn í
boði Ólafs Ragnars Grímssonar
forseta en hann mun dvelja hér til
1. júní. Heimsóknin er liður í
lengra ferðalagi því auk Íslands
sækir hann Rússland, Sviss og
Úkraínu heim.
Samvinna Íslendinga og Ind-
verja á sviði lyfjaþróunar og
lyfjaframleiðslu verður í brenni-
depli á meðan heimsókn Kalam og
fylgdarliðs hans stendur en einnig
hyggst hann kynna sér orkufram-
leiðslutækni með jarðhita og við-
vörunarkerfi um jarðskjálfta sem
Íslendingar hafa þróað.
Eins og lesa má annars staðar á
síðunni þá er Kalam er marg-
slunginn persónuleiki og þannig
er hann á vissan hátt spegill þjóð-
ar sinnar. Á Indlandi býr rúmur
milljarður manna í 29 sjálfstæð-
um héruðum. Þar tala menn 33
tungumál sem skiptast í 1.650
mállýskur og fjölbreytni í trúar-
brögðum er óvíða meiri. Og eins
og búast má við eru kjör fólks í
þessu víðfeðma landi býsna mis-
jöfn svo ekki sé fastar að orði
kveðið.
Bullandi hagvöxtur
Fréttir af efnahagsuppgangi Ind-
lands hafa verið áberandi í vest-
rænum fjölmiðlum undanfarin ár
enda hafa Indverjar, líkt og Kín-
verjar, mjög sótt í sig veðrið í
þessum efnum. Á meðan hag-
vöxtur síðustu tíu ára á evru-
svæðinu hefur ekki verið nema
1,9 prósent og og í Bandaríkjun-
um 3,3 prósent þá hafa Indverjar
búið við 5,9 prósenta hagvöxt að
jafnaði síðasta áratug. Þeir eiga
þó enn langt í land með að ná Kín-
verjum með sinn 9,3 prósenta
meðalhagvöxt.
Það sem gerir árangur Ind-
verja ekki hvað síst ánægjulegan
er að sífellt stærri hluti þjóðar-
teknanna kemur úr tölvu- og upp-
lýsingatæknigeirunum. Á hverju
ári útskrifast hundruð þúsunda
verkfræðinga úr indverskum há-
skólum sem standast fyllilega
samanburð við vestræna starfs-
bræður sína – en þiggja lægri
laun fyrir störf sín. Fyrirtæki á
Vesturlöndum hafa nýtt sér
enskukunnáttu Indverja til dæm-
is með því að flytja verkefni á
borð við símasvörunarþjónustu
þangað.
Gæðunum misskipt
Sá böggull fylgir skammrifi að
þessum nýfengnu tekjum er mjög
misskipt. Lunginn úr erlendri
fjárfestingu endar í sex ríkustu
héruðunum, hin 23 fá nánast ekki
neitt. Enn búa um 35 prósent Ind-
verja undir fátækramörkum, eða
um 350 milljónir fólks. 47 prósent
barna undir fimm ára aldri eru
vannærð og 65 af hverjum fædd-
um börnum deyja á fyrsta ári.
Ýmsar ástæður eru fyrir því að
ekki hefur gengið betur að bæta
hag indversks almennings þrátt
fyrir uppsveifluna. Greinarhöf-
undur í The Economist setti fram
athyglisverða kenningu fyrr á
þessu ári hvers vegna staðan væri
önnur í Kína að þessu leyti, ástæð-
an liggur í lestrarkunnáttu kvenna.
Í Kína geta 87 prósent kvenna les-
ið á meðan 45 prósent indverskra
kvenna eru læsar. Skólaganga
kvenna leiðir af sér betri heilsu og
menntun hjá fólki almennt sem
aftur leiðir til hæfara vinnuafls.
„Börn sem gengið hafa í skóla vilja
ekki vinna á hrísgrjónaakri,“ segir
í The Economist.
Auðvitað er þessi framsetning
einföldun enda eru aðstæður í
Kína og Indlandi ólíkar í flestu til-
liti. Þannig er Kína mun einsleitari
þjóð en Indland og sömuleiðis eru
pólitískar aðstæður þar allt aðrar.
Rótgróið lýðræði
Í þessu ljósi er athyglisvert
hversu rótgróið lýðræði er á Ind-
landi – þótt það sé ekki að öllu
leyti sniðið að vestrænum kröfum
og hugmyndum – því afar fá dæmi
eru um lýðræðisríki þar sem þjóð-
artekjur á íbúa eru mjög lágar.
Kjörsókn er yfirleitt með ágætum
á Indlandi og það eru ekki síst
þeir sem lægstu tekjurnar hafa
sem skila sér á kjörstað. Hvers
vegna gengur þá ekki betur að
koma á umbótum í landinu?
Fyrir utan hina rótgrónu
stéttaskiptingu sem gegnsýrir
indverskt samfélag þá bendir The
Economist á þrjár brotalamir sem
finna má í stjórnmálalífi landsins
um þessar mundir: spilltir stjórn-
málamenn, of margir flokkar og
of mikil miðstýring.
Fjórðungur þingmanna bíður
ákæru
Af þeim 541 þingmanni sem sett-
ist í neðri deild þingsins eftir
kosningarnar í fyrra hafði tæp-
lega fjórðungur verið ákærður
fyrir glæpsamlegt athæfi. Hlut-
fallið er hærra hjá þeim þing-
mönnum sem litla menntun hafa
en þeir eru einnig auðugari en
þeir þingmenn sem eru langskóla-
gengnir. Helmingur þeirra sem
gæti beðið löng fangelsisvist kem-
ur úr fjórum kjarnahéruðum
hindúa en þar er sögð sérstaklega
mikil hætta á að glæpamenn
hrifsi völdin og stýri svæðinu eins
og lénsdæmi sínu. Þar er jafn-
framt mest hættan á kosninga-
svindli.
Þótt fjölbreytt flokkaflóra beri
gróskumiklu stjórnmálastarfi
vitni þá má öllu ofgera. Auk stóru
flokkanna tveggja, Kongress-
flokksins og Bharatiya Janata,
þjóðarflokks hindúa, er urmull
smáflokka á þinginu sem berjast
flestir hverjir fyrir þröngum sér-
hagsmunum sinna umbjóðenda. Í
samsteypustjórninni sem Kon-
gress-flokkurinn myndaði eftir
kosningarnar fyrir ári eru tuttugu
smáflokkar. Með öðrum orðum,
ríkisstjórnin er mynduð utan um
lægsta mögulega samnefnara. Því
þarf ekki að koma á óvart að Man-
mohan Singh forsætisráðherra
hafi ekki tekist að hrinda nema
broti af þeim umbótum í fram-
kvæmd sem flokkur hans hafði
lofað.
Að lokum benda greinar-
höfundar The Economist á að með
því að draga úr miðstýringu í
landinu og færa meiri völd og
fjárráð til héraðs- eða bæjar-
stjórna væri mun auðveldara að
fylgjast með að þeir sem ættu rétt
á tiltekinni þjónustu nytu hennar.
Það væri kærkomin tilbreyting í
stað þess að „aðeins fimmtán rúp-
íur rynnu til fátækra af þeim
hundrað sem þeim hafði verið lof-
að af almannafé,“ svo vitnað sé til
orða Rajiv Ghandi, fyrrverandi
forsætisráðherra. ■
LAND FJÖLBREYTNINNAR Mikið umbrotaskeið stendur nú yfir í indversku þjóðlífi, sér-
staklega í efnahagslegu tilliti. Þeir eiga þó enn nokkuð í land með að ná Kínverjum í
þessu tilliti.
FORSETINN KVADDUR Manmohan Singh forsætisráðherra færði Abdul Kalam forseta
blómvönd áður en hann lagði upp í Íslandsferðina.
Eldflaugamaðurinn
Dr. Avul Pakir Jainulabdeen Abdul
Kalam, eins og forseti Indlands heitir
fullu nafni, er um margt athyglisverður
maður. Hann er kallaður faðir indversku
kjarnorkusprengjunnar en jafnframt er
hann grænmetisæta og alger bindindis-
maður á áfengi og kynlíf.
FÆDDUR 15. október 1931 í
Rameswaram í héraðinu Tamil Nadu á
suðaustanverðu Indlandi.
MENNTUN Flugvélaverkfræðingur frá
Tækniháskólanum í Madras (nú
Chennai) árið 1958.
STARFSFERILL Áður en Kalam varð for-
seti var hann atkvæðamikill í rannsókn-
um á sínu sviði. Hann stjórnaði smíði
fyrstu indversku gervihnattanna og síðan stýrði hann vel heppnuðu eldflauga-
verkefni Indverja. Þar fékk hann viðurnefni sitt, eldflaugamaðurinn. Á tíunda
áratugnum leiddi hann svo kjarnorkuáætlun Indverja en þeir sprengdu sína
fyrstu kjarnorkusprengju árið 1998.
FORSETATÍÐ Kalam var kjörinn forseti árið 2002 og fékk yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða enda sameinuðust báðir stóru flokkarnir um að styðja hann.
Hann hefur einkum beitt sér í að gera Indland að öflugu upplýsingaþjóðfélagi
og vonast til að Indland verði komið í hóp fremstu iðnríkja árið 2020.
PERSÓNAN Kalam er múslimi og er vel lesinn í Kóraninum. Hann hefur hins
vegar lagt sig í framkróka við að höfða til hindúa líka og les í því skyni reglu-
lega þeirra helsta helgirit, Bhagavad Ghita. Kalam er mikill meinlætamaður,
hann er skírlífur, borðar einungis grænmetisfæði og er alger bindindismaður á
áfengi.