Fréttablaðið - 29.05.2005, Síða 23
Hildur Gestsdóttir er mannabeina-
fræðingur og hefur undanfarið skoðað
heilsufarssögu þjóðarinnar í gegnum
gömul mannabein.
Hildur segir starf fornleifafræðingsins
fjölbreytt og skemmtilegt og vill ekki við-
urkenna að það krefjist meiri þolinmæði en
önnur störf. Sjálf hefur hún sérhæft sig í
mannabeinarannsóknum og eyðir mestum
tíma í að rannsaka gömul bein.
„Þar sem Ísland er lítið er starf forn-
leifafræðinga hér mjög fjölbreytt og við
göngum í öll verk. Ég er ekki lokuð inni á
rannsóknarstofu allan daginn heldur tek ég
líka þátt í uppgreftri og skráningu gagna,“
segir Hildur, sem vinnur um þessar mundir
að stóru verkefni sem lýtur að heilsufars-
sögu Íslendinga.
„Við rannsökum beinagrindur frá land-
námi og fram á 19. öld og finnum alla þá
sjúkdóma sem beinin gefa upplýsingar um.
Undanfarið hefur verið unnið að uppgreftri
á miðaldakirkjugarði á Hofstöðum í Mý-
vatnssveit og í sumar á að grafa upp allan
garðinn og rannsaka beinin betur. Þarna
höfum við fundið ýmislegt áhugavert, til
dæmis beinagrind sem er með illkynja
krabbameinsæxli, en til eru afar fá dæmi
um slíkt á svo gamalli beinagrind.“
Hildur segir að sér þyki ekki óþægilegt
að meðhöndla gömul mannabein en segir
mikilvægt að umgangast beinin af virðingu.
„Það er líka mikilvægt að vera með vel af-
markaðar rannsóknarspurningar og vita
svona nokkurn veginn að hverju verið er að
leita. Þetta eru líkamsleifar raunverulegs
fólks sem líklega væri sjálft ekki ánægt
með að láta grafa sig upp. Mín réttlæting er
sú að með beinarannsókninni fái þetta
gleymda fólk tækifæri til að hjálpa sögunni
og gera gagn.“ ■
Grefur upp mannabein
í gömlum kirkjugarði Atvinnuleysi er minnst á Íslandiaf öllum Norðurlöndunum. Áætl-
anir gera ráð fyrir að það verði
um 2.4% á þessu ári að meðal-
tali en verst er ástandið í Finn-
landi þar sem búist er við að
8,4% af öllu vinnandi fólki sé án
atvinnu. Hagvöxtur jókst á Norð-
urlöndunum í fyrra og verður
áfram góður, gangi spár eftir.
Mestur var hann á Íslandi.
Íslendingar eru lukkulegir í vinn-
unni sinni samkvæmt niðurstöð-
um könnunar Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur eru 90% prósent
starfsmanna ánægðir í starfi.
Vinnuskilyrði virðast fara batnandi
milli ára og trúverðugleiki stjórn-
enda einnig.
VR gerði könnun á viðhorfum
starfsmanna til átta lykilþátta sem
varða atvinnuna. Þeir voru trú-
verðugleiki stjórnenda, launakjör,
vinnuskilyrði, sjálfstæði í starfi,
sveigjanleiki í vinnu, álag og kröf-
ur, stolt til fyrirtækis síns og
starfsandi. Sjálfstæði í starfi og
starfsandi fengu hæstu einkunn
en launakjör lægstu.
Áttatíu og átta milljónir ungs
fólks er án atvinnu í heiminum
eða 14,4%. Þetta hlutfall var
11,7% árið 1993 þannig að at-
vinnuleysi ungs fólks fer vaxandi,
sé litið til heimsins
alls. Ástandið er
sýnu verst í Mið-
austurlöndum
og Norður-Afr-
íku en þar
ganga 26%
ungs fólks at-
vinnulaus.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Snyrtilegt á skrifborðinu bls. 2
Þarf alltaf að vera á tánum bls 8
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 29. maí,
149. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.30 13.25 23.22
AKUREYRI 2.44 13.10 23.39
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
STÖRF Í BOÐI
Verslunarstjóri
Múrarar
Verkamenn
Þjónustustjóri
Tæknistjóri
Deildarstjóri
Sölumaður fasteigna
Bifvélavirki
Þjónustufulltrúi
Sölustjóri
Vörustjóri
Tollafulltrúi
Ráðgjafar
Viðskiptafræðingur
Skipstjóri
Ræstingarstjóri
Innheimtufulltrúi
Framkv.st. markaðssviðs
Forstjórar
Verkstjóri
Matreiðslumaður
Starfsmenn í mötuneyti
Kennarar
Forritarar
Yfirmaður þjónustu- og
viðhaldsdeildar
Sumarafleysingar
Lagermenn
Lögfræðingar
Bílstjórar
Trésmiðir
Handverksbakari
Talsmaður neytenda
Umsjónarmenn
Skiltagerð
!
"
#
$
!
%!
%
&
&!
'
$
!
•
•
•
•
•
•
•
%!
!
!
(
)
$
!
!
!
+
, #!- $ / $
+
" 000 $
atvinna@frettabladid.is
Hildur segir mikilvægt að
umgangast beinin af virðingu.