Fréttablaðið - 29.05.2005, Side 41

Fréttablaðið - 29.05.2005, Side 41
TILKYNNINGAR 11 Skólagarðar Reykjavíkur Skólagarðarnir hafa það að markmiði að kenna börn- um umgengni við gróður og ræktun. Hverjum einstak- lingi er úthlutað garði og fræi, útsæði og grænmetis- plöntum til ræktunar. Með börnunum starfa leiðbein- endur við ræktunina. Auk garðyrkjustarfa er farið í leiki og ferðir t.d í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, bíó o.fl. Haldnar eru sumarhátíðir í hverjum garði með grilli og ýmsum skemmtunum. Í lokin eru afhentar viðurkenn- ingar fyrir sumarstarfið. Starfsemin byrjar 6. júní og lýkur um 19. ágúst. Innritunarstaður: Í hverjum garði fyrir sig. Opnunartími: 8.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00. Innritun 8-12 ára barna: 1. – 3. júní. Innritun aldraðra: 3. júní. Verð: 2.500,- (ath. tökum ekki greiðslukort) Staðsetning Skólagarða: Þorragötu í Skerjafirði 693-2443 Við Holtaveg í Laugardal 693-2442 Fossvogi við Bjarmaland 693-2329 Árbæ vestan Árbæjarsafns 693-2309 Dalbær við Stekkjarbakka 693-2308 Við Jaðarsel 693-2449 Kotmýri við Logafold 693-2447 Gorvík við Strandveg 693-2448 Verkstjóri 693-2323 Umhverfissvið Reykjavíkurborgar – Garðyrkjudeild Heimilisfang: Skúlagötu 19 Póstnúmer: 101, Reykjavík Sími: 563-2700 Netfang: skolagardar@rvk.is F.h. Menntasviðs Reykjavíkurborgar og Velferðasviðs Reykjavíkurborgar: Rammasamningur um kaup á ferskum og/eða frystum fiski og unnum fiskvörum „EES útboð“. Kynningarfundur verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, þann 16. júní n.k. kl. 10:00. Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000, frá 1. júní 2005, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Opnun tilboða: 19. júlí 2005, kl 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10508 F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar: Grafarholt – frágangur og ræktun 2005. Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 í upplýsingaþjón- ustu Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með 31. maí 2005. Opnun tilboða: 9. júní 2005, kl. 10.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10575 Útboð LIN-02 Hrútatungulína 1 Viðgerð á steyptum undirstöðum Landsnet óskar eftir tilboðum í viðgerð á steyptum und- irstöðum stálmastra á Grjóthálsi og Holtavörðuheiði í samræmi við útboðsgögn LIN-02. Verkið felst í broti og endursteypu, múrviðgerðum á flöt- um og köntum ásamt yfirborðsfrágangi. Helstu magntölur eru: Endursteypa 18 m2 Járnbending 1000 kg. Mót 150 m2 Múrviðgerðir á flötum 40 m2 Múrviðgerðir á köntum 60 m2 Kústun 230 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsnets, Krók- hálsi 5c, 110 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 31. maí 2005. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsnets, Krókhálsi 5c, 110 Reykjavík fyrir kl. 11:00 mánudaginn 13. júní 2005, þar sem þau verða opnuð og lesin upp að viðstöddum fulltrúum þeirra bjóðenda sem þess óska. RÉTTINDANÁMSKEIÐ FYRIR BÍLSTJÓRA UM FLUTNING Á HÆTTULEGUM FARMI Fyrirhugað er að halda eftirfarandi námskeið í Reykjavík ef næg þátttaka fæst, fyrir stjórnendur ökutækja sem vilja öðlast réttindi (ADR-skírteini) til að flytja tiltekinn hættulegan farm á vegum á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahags- svæðinu: Flutningur á stykkjavöru (fyrir utan sprengifim efni og geislavirk efni): 6. – 8. júní 2005. Flutningur í/á tönkum: 9. – 10. júní 2005. Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðinu fyrir flutning í/á tönkum er að viðkomandi hafi setið grunnnámskeið (stykkjavöruflutningar) og staðist próf í lok þess. Þeir sem ætla á eitt eða fleiri af fyrrgreindum námskeiðum verða að vera búnir að ganga frá skráningu og greiðslu fyrir kl. 16:00 þann 2. júní. Skráning og nánari upplýsingar hjá skrifstofu Vinnu- eftirlitsins í Reykjavík, Bíldshöfða 16, sími: 550 4600. Auglýsing um örnefni Skv. 2. gr. laga nr. 35/1953 með síðari breytingum, um bæjanöfn o.fl., og 8. gr. reglugerðar um störf örnefnanefnd- ar, 22. febrúar 1999, ber örnefnanefnd að skera úr ágrein- ingi um ný götunöfn og sambærileg örnefni innan sveitarfé- laga. Nefndinni hefur borist erindi þar sem farið er fram á að horfið verði frá götunafninu Geitagerði að Hólum í Hjaltadal í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna samnefnis við lögbýlið Geitagerði í sama sveitarfélagi. Hverjum þeim sem telur sig búa yfir vitneskju eða ábending- um, er að haldi komi við undirbúning úrskurðarins, gefst færi á að kynna örnefnanefnd álit sitt. Ábendingum skal skila til örnefnanefndar, Lyngási 7, 210 Garðabæ, eigi síðar en 30. júní 2005. 27. maí 2005 Örnefnanefnd Ari Páll Kristinsson formaður Tilboð óskast í fasteignina Vitastíg 1, Bolungarvík. Um er að ræða 534 ferm. atvinnuhúsnæði á tveim- ur hæðum. Á neðri hæð er 243 ferm. veitingahús í mjög góðu standi með innréttingum, tækjum og öllum lausamunum, tilbúið til reksturs. Á efri hæð er 291 ferm. gistiheimili, einnig í mjög góðu standi með öllum innanstokksmunum, tilbúið til reksturs. Tilboð sendist Lögfræðiskrifstofu Tryggva Guðmundssonar ehf., Hafnarstræti 1, Ísafirði, s. 456-3244, netfang eignir@tg.is., eða til Sparisjóðs Bolungarvíkur, s. 450-7100. Enginn viðbjóður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.