Fréttablaðið - 29.05.2005, Síða 54

Fréttablaðið - 29.05.2005, Síða 54
26 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Raunveruleikasjónvarp í sinni ljótustu mynd Svoköllu› „Bumfight- myndbönd“ hafa selst eins og heitar lummur á netinu und- anfarin ár. Í myndböndunum má me›al annars sjá heimilislaust ógæfufólk slást og mei›a hvort anna› gegn grei›slu frá kvik- myndager›armönnum. Tilur› myndband- anna hefur vaki› upp ‡msar spurningar um si›fer›i hins svokalla›a raunveruleika- sjónvarps. Kristján Hjálmarsson kynnti sér uppruna myndbandanna og áhrif fleirra. U pphaf Bumfight-mynd-bandanna má rekja afturtil myndarinnar Bumfight: A Cause for Concern, sem var gef- in út vorið 2002. Ray Laticia og Ty Beeson fengu hugmyndina að myndbandinu þegar þeir sáu götuslagsmál í San Francisco árið 2001. Þeir söfnuðu saman mörg hundruð klukkustundum af efni þar sem heimilislaust fólk, sem allt átti við fíkniefnavandamál að stríða, var látið slást, rífa úr sér tennur, hlaupa af fullum þunga á steinveggi, renna sér niður tröpp- ur í búðarkerrum og reyna fyrir sér í hvers kyns áhættuleik. Oft- ast borguðu Laticia og Beeson leikurunum fyrir vinnuna með áfengi, eiturlyfjum, mat eða pen- ingum – frá rúmum eitt þúsund krónum upp í sex þúsund þegar best lét. Þeir keyptu einnig efni frá öðrum og skeyttu bútunum saman í eina mynd sem þeir settu síðan á netið. Með myndinni von- uðust Laticia og Beeson til að geta fjármagnað aðra mynd sem þeir höfðu í bígerð. Howard Stern hrósar Bumfight Myndin spurðist fyrst út manna milli á netinu og í hjólabrettagörð- um í borgarúthverfum. Salan fór rólega af stað en jókst töluvert þegar þeir félagar hengdu upp veggspjöld í nokkrum borgum og staðarfjölmiðlar fóru að sýna mál- inu áhuga. Það var samt fyrir til- stilli útvarpsmannsins umdeilda, Howards Stern, að salan fór upp úr öllu valdi, en hann hrósaði myndinni í þætti sínum og lýsti henni sem „öfgafullri útgáfu af Jackass-þáttunum“. Stern sagði meðal annars „Mér brá og mér bregður oftast ekki. Þið verðið að sjá þessa mynd.“ Eftir það fór myndin eins og eldur í sinu um Norður-Ameríku og var fjallað um hana í öllum stærstu dagblöðum og sjónvarps- stöðvum landsins. Áður en vikan var úti var fólk í Evrópu og Mið- Austurlöndum einnig farið að sýna henni áhuga. Á örfáum vik- um seldust um þrjú hundruð þús- und myndbönd, hvert á um tutt- ugu dollara, ásamt öðrum varn- ingi, þar á meðal bolum og peys- um með áletruninni Rufus the Stunt Bum eða Rúfus áhætturóni. Rúfus þessi er titlaður aðalstjarna myndarinnar. Ray Laticia og Ty Beeson græddu milljónir á mynd- inni. Út fyrir öll velsæmismörk Þegar fjölmiðlafárið varð sem mest fóru ýmis samtök og stjórn- málamenn að gagnrýna myndina enda var talað um að raunveru- leikasjónvarpið væri komið út fyrir öll velsæmismörk. Áður höfðu þættirnir Jackass, sem sýndir eru á tónlistarstöðinni MTV, verið harðlega gagnrýndir, þar sem þáttastjórnendur reyna sig í ýmsum áhættuatriðum með misalvarlegum afleiðingum. Jack- ass- þættirnir voru þó bara hátíð miðað við Bumfight-myndbandið, því þar var verið að níðast á minni máttar – fólki sem átti erfitt upp- dráttar. Laticia og Beeson vilja þó ekki meina að þeir séu að gera lítið úr ógæfufólkinu sem „leikur“ í myndböndum þeirra. „Myndbönd- in eiga ekki að vera sjokkerandi heldur sýna þau ákveðið svið þjóðfélagsins sem fólk myndi annars ekki sjá,“ sagði Laticia í samtali við BBC þegar gagnrýnin á myndböndin stóð sem hæst. „Við bjuggumst aldrei við því að myndin yrði svona vinsæl, en það þýðir bara að við höfum úr meira fé að spila þegar við gerum næstu mynd.“ Bumfight til umræðu á banda- ríska þinginu Umræðan um myndböndin náði meðal annars inn á Bandaríkja- þing en þingmaðurinn Earl Blu- menauer benti meðal annars á að ríki sem vildi berjast gegn mis- notkun á dýrum ætti einnig að berjast gegn misnotkun á fólki. „Þetta mál snýst um grundvallar- mannréttindi,“ sagði Blumenauer. Laticia og Beeson vildu þó lítið gera úr gagnrýninni og sögðu ógæfufólkið hafi tekið þátt í myndbandinu af fúsum og frjáls- um vilja. „Andstæðingar okkar segja að fólkið sem við mynduð- um hafi ekki verið hæft til að taka upplýsta ákvörðun. Slíkar alhæf- ingar gera lítið úr fólkinu. Rón- arnir elska okkur, þeir gleðjast þegar þeir hitta okkur. Þeir eru meira að segja með símanúmerin okkar,“ sagði Laticia en viður- kenndi þó að sumir ógæfumann- anna hefðu meiðst við tökur á myndinni. Í samtali við Fox-sjónvarps- stöðina sagði Beeson meðal ann- ars: „Í raun er ég ánægður með að myndböndin hafa varpað ljósi á og vakið upp umræður um að- stæður heimilislausra.“ Samtök heimilislausra snúast til varnar Sá hópur sem hefur hvað harðast barist gegn Bumfight-myndbönd- unum er Landssamtök til hjálpar heimilislausum í Bandaríkjunum (NCH). Samtökin hafa birt grein- ar og fjallað um málið á heimasíðu sinni og segja þar meðal annars að það sé ekki venjan hjá heimilis- lausu fólki að slást, rífa úr sér tennur eða hlaupa á steinveggi. Þau benda meðal annars á að fólk í neyð geri hvað sem er til að bjarga sér. Craig Walton, prófess- or í mannfræði við Nevada-há- skólann í Las Vegas, tekur undir orð talsmanna NCH. „Það er ekki að hægt að bera saman frjálsan vilja og það sem fólk er tilbúið að gera í neyð. Hvert er valið?,“ spurði hann. Greiddu í kleinuhringjum Þótt myndbandið hefði vakið mikla athygli í Bandaríkjunum virtist enginn fáanlegur til að leggja fram kæru gegn kvik- myndagerðarmönnunum. Fulltrú- ar hjá FBI, Bandarísku alríkislög- reglunni, reyndu að komast til botns í málinu en hættu við þar sem niðurstaðan varð sú að sönn- unarbyrðin yrði erfið þar sem enginn fékkst til að kæra. Þar að auki virtist sem allir „leikararnir“ hefðu fengið greitt fyrir sinn þátt í myndinni og skrifuðu þeir undir plagg þess efnis. Þó fór svo að maður að nafni Peter La Forte lagði fram kæru. La Forte, sem var heimilislaus maður, hafði orðið fyrir árás frá konu sem kölluð var Svínakóti- lettan á almenningsklósetti. La Forte, sem var barinn sundur og saman á meðan tökur stóðu yfir, hafði ekki fengið greitt fyrir sinn þátt á meðan Svínakótilettan fékk kleinuhring, bjór og tuttugu doll- ara. Hún sagðist hafa verið svöng og þurft á peningunum að halda og því látið til leiðast. Skilorðsbundið fangelsi Réttarhöldin reyndust þó ekki vera nein hindrun fyrir Laticia og Beeson. Þeir höfðu verið kærðir í nokkrum liðum fyrir að níðast á öðru fólki og gátu átt þungan dóm yfir höfði sér. En eftir því sem leið á réttarhöldin fækkaði kær- unum og yfirvofandi refsing mild- aðist. Svo fór að þeir voru dæmd- ir í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi, 500 dollara sekt og þurftu að inna af hendi 250 tíma í samfélagsvinnu á spítala fyrir heimilislaust fólk. Félagarnir reyndu að vísu að komast upp með að falsa skýrslur um þá samfé- lagsvinnu sem þeir höfðu innt af hendi og þurftu fyrir vikið að dúsa í steininum í smástund. Og þrátt fyrir kærurnar og dóminn hafa þeir Bumfights- framleiðendur ekki lagt árar í bát því enn er hægt að kaupa mynd- böndin á heimasíðu þeirra. Þegar eru komin út þrjú myndbönd, það nýjasta Bumfigths: The Felony, og þeir Bumfights-framleiðendur bjóða greiðslu fyrir atriði í næstu mynd. Þeir slá þó einn varnagla – að þeir sem leika í myndböndun- um verða að skrifa undir samning þess efnis. Happy slapping Fleiri hafa fetað í fótspor Laticia og Beesons í Bandaríkjunum og víðar og nú rignir inn á netið myndböndum um ógæfufólk. Í Kanada er hópur sem kallar sig Crazy Pricks. Hópinn skipa strák- ar um tvítugt sem keyra um og spyrja heimilislaust fólk til vegar. Þegar fólkið kemur svo upp að bílnum kýla strákarnar það í göt- una og keyra hlæjandi í burtu. Sömu sögu er að segja frá Bretlandi en þar eru táningar farnir að taka upp á því að slá ókunnugt fólk utan undir, taka það upp á myndavélasíma og setja á netið. Uppátækið kalla krakkarnir „happy slapping“ eða gleðikinn- hest. Fyrir skömmu var sérstakur þáttur um gleðikinnhest sýndur í bresku sjónvarpi. Þar viður- kenndu táningar að hafa tekið þátt í uppátækinu og sögðu að aðfar- irnar yrðu sífellt grófari því þeir vildu alltaf ganga skrefinu lengra. Heimildir: nationalhomeless.org, BBC, foxnews.com Heimilislaus hermaður Ein aðal“stjarna“ Bumfights- myndanna er Rufus the Stunt Bum eða Rúfus áhætturóni eins og hann yrði líklega kallaður á íslensku. Rúfus reynir ýmislegt í myndböndunum. Hann hleypur til dæmis ítrekað á auglýsinga- skilti með höfuðið á undan sér, brýtur fótinn á vini sínum og ríf- ur úr sér tönn með töng. Rufus heitir réttu nafni Rufus Hannah. Árið 1982 var hann leystur undan herskyldu vegna meiðsla sem hann hlaut á æf- ingu og hefur verið heimilislaus síðan. Rufus og Donald vinur hans eru helstu stjörnur fyrstu Bumfight-myndarinnar og eru með stór húðflúr á enni og hnú- um þar sem stendur Bumfight. Donald var einnig leystur með sóma undan herskyldu árið 1970. Hann var í fyrstu orustu- sveit flughersins þá þrettán mánuði sem hann sinnti her- skyldu í Víetnam. Hann hlaut bæði Purpurahjartað og Silfur- krossinn fyrir þjónustu sína í hernum, eins og hundrað þús- und aðrir hermenn sem lögðu líf sitt og limi í hættu en eru nú heimilislausir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.