Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 56
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 28 29 30 31 1
Sunnudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 KR og FH mætast á KR-velli í
Landsbankadeild karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
11.30 Formúla 1 á Rúv. Bein
útsending frá kappakstrinum í
Nurburgring.
12.20 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur.
12.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik í lokaumferð
ítölsku deildarinnar.
15.00 Golf á Sýn. Sýnt frá
bandarísku mótaröðinni.
15.50 Gillette sportpakkinn á Sýn.
Líflegur íþróttaþáttur.
16.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik í lokaumferð
spænsku deildarinnar.
19.00 Bikarmót í fitness á Sýn.
Sýnt frá keppni kvenna á
bikarmótinu.
19.40 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá stórleik KR og FH
í Frostaskjóli.
21.20 Helgarsportið á Rúv. Íþróttir
helgarinnar gerðar upp.
22.00 NBA á Sýn. Endursýndur
leikur.
00.00 NBA á Sýn. Bein útsending
frá leik í úrslitakeppninni.
Bæði lið eiga að geta spilað betur
29. maí 2005 SUNNUDAGUR
Njáll Ei›sson spáir jafntefli í stórslag KR og FH í Landsbankadeildinni í kvöld. Li›unum var spá› tveimur
efstu sætunum í vor og ver›a KR-ingar a› sp‡ta í lófana ef FH-ingar ætla ekki a› taka of stórt forskot á
flá me› sigri í kvöld. FH-ingar hafa unni› sjö af sí›ustu tíu vi›ureignum li›anna í Vesturbænum.
FÓTBOLTI FH-ingar virðast vera á
góðu skriði en þeir hafa unnið
þrjá fyrstu leiki sína í deildinni á
mjög svo sannfærandi máta. Þeir
eru með fullt hús stiga og marka-
töluna 11–1. En liðunum sem þeir
hafa leikið gegn, Grindavík,
Keflavík og ÍBV, var ekki spáð í
efri hluta deildarinnar í upphafi
móts og má því segja að fyrsta al-
vöruprófraun liðsins verði gegn
KR í Frostaskjólinu í kvöld.
Frammistaða KR-inga hefur
valdið þónokkrum vonbrigðum.
Þeir innbyrtu þó sigur í fyrstu
tveimur leikjum sumarsins, gegn
Fylki og Fram, þrátt fyrir að leika
ekki neitt sérstaklega vel. Á
fimmtudagskvöldið töpuðu þeir
fyrir Keflavík og misstu þar með
bæði FH og Val fram úr sér. Það
liggur því mikið á að þeir sýni sitt
rétta andlit til að missa FH-inga
ekki of langt frá sér.
„KR-ingar eru vel mannaðir
en þeir eiga að geta betur en þeir
hafa sýnt,“ sagði Njáll Eiðsson
knattspyrnuþjálfari um leik
kvöldsins. „Þeir mega alls ekki
tapa leiknum og því hljóta þeir að
leggja sig mjög hart fram. Sex
stig í stuttu móti er ansi mikið.“
Njáll segir að þarna fari fram
mjög athyglisverður leikur enda
KR talið ásamt Val það lið sem
geti helst veitt Hafnfirðingum
einhverja samkeppni um Íslands-
meistaratitilinn. „En FH-ingar
eru með gott tak á KR í Frosta-
skjólinu og verður því enn at-
hyglisverðara að sjá hvort KR-
ingar nái að stoppa meistarana,“
sagði Njáll. Hafnfirðingar hafa
unnið sjö af síðustu tíu viðureign-
um liðanna á heimavelli KR-inga
sem geta einungis státað af ein-
um sigri úr þessum leikjum.
„FH-ingarnir eru að sama
skapi mjög sterkir en hafa í
sjálfu sér ekki verið að spila neitt
sérstaklega vel. Hafa samt skor-
að 11 mörk og náð góðum sigrum
suður með sjó, í Grindavík og
Keflavík. Það hafa komið góðir
kaflar í leik þeirra, til dæmis
voru þeir mjög sannfærandi í síð-
ari hálfleik gegn ÍBV þar sem
þeir stjórnuðu leiknum alger-
lega. En það á eftir að reyna
meira á liðið og mun það senni-
lega gerast í kvöld.“
Njáll bendir einnig á að ekkert
jafntefli hefur komið í fyrstu
þremur umferðum Landsbank-
deildarinnar. „Ef ég ætti að spá
myndi ég veðja á jafntefli í þess-
um leik þó svo að FH-ingarnir
séu líklegri. Hlutirnir eru þó
fljótt að breytast enda bara lítið
búið af þessu móti,“ sagði Njáll.
eirikurst@frettabladid.is
> Við mælum með ...
... að knattspyrnuunnendur bregði undir
sig betri fætinum og kíki í
Frostaskjólið í kvöld þar
sem tvö bestu
knattspyrnulið landsins
mætast. Þetta er
klárlega einn af
stórleikjum
sumarsins sem ekki
má missa af.
Arftaki Þóris fundinn
Samúel Ívar Árnason hefur skrifað undir
samning við Íslandsmeistara Hauka í
handknattleik en hann lék með ÍBV á
síðustu leiktíð. Samúel Ívar er einn allra
besti hornamaður landsins og því er
verðugur arftaki Þóris Ólafssonar, sem
er farinn til Þýskalands, fundinn.
60
SEKÚNDUR
Síókn eða vörn? Sókn.
Fram eða Fylkir? Fylkir, að
sjálfsögðu.
Viggó eða Gummi? Báðir.
Af hverju handbolti frekar en
fótbolti? Handbolti er
skemmtilegri.
Danski boltinn er... Sókndjarfur.
Erik Veje er... Snillingur.
Kók eða pepsí? Kók.
Erfiðasti andstæðingur? Hreiðar
Guðmundsson.
Auðveldasti andstæðingur?
Sebastian Alexandersson.
Besti handboltamaður heims?
Kristján Arason þegar hann var upp á
sitt besta.
Besta greiðslan í landsliðinu? Raggi
Óskars með afró.
Gel eða vax? Vax.
Besti leikmaður Danmerkur?
Leikmenn Århus GF.
MEÐ RÓBERTI
GUNNARSSYNI
sport@frettabladid.is
FAGNAR ÁRMANN SMÁRI Í KVÖLD? FH og KR skildu jöfn í Kaplakrikanum í fyrra með mörkum Ármanns Smára Björnssonar og Kjartans
Henry Finnbogasonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
28
> Við furðum okkur á ...
.... því stefnuleysi og óreiðu sem virðist
ríkja hjá Íslendingafélaginu Stoke City.
Gunnar Gíslason og íslensku
hluthafarnir vilja ólmir
selja félagið en Tony
Pulis, stjóra liðsins,
líður greinilega ekki
betur en svo að hann
er í efa um framtíð
sína hjá Stoke þrátt fyrir
ágætt gengi í vetur.
Vormót í frjálsum:
Íslandsmet í
spjótkasti
FRJÁLSAR Hin tvítuga spjótkast-
kona, Ásdís Hjálmsdóttir, gerði
sér lítið fyrir í gær og setti nýtt
Íslandsmet í spjótkasti kvenna á
Laugardalsvellinum þegar hún
kastaði spjótinu 57,10 metra á
vormóti FÍRR.
Hún bætti met Vigdísar Guð-
jónsdóttur um rúmlega einn og
hálfan metra en Vigdís hefur
kastað lengst 55,54 metra. Besta
kast Ásdísar fyrir gærdaginn var
55,51 metri.
Meiðsli hrjá Fylkismenn:
Óvissa me›
Sævar fiór
FÓTBOLTI Óvíst er hversu alvarleg
meiðsli Sævars Þórs Gíslasonar,
sóknarmanns Fylkis, eru en hann
þurfti að fara af velli snemma í
fyrri hálfleik í tapleiknum gegn
Val. Sævar sagði við Fréttablaðið í
gær að hann væri mjög óstöðugur
í hnénu og átti hann von á því að
málið myndi skýrast í dag.
„Ég lenti eitthvað skringilega
og ég heyrði smell. Hnéð gekk
nánast til og það gæti verið að lið-
böndin hafi eitthvað skaddast. En
ég er ekki svo bólginn, svo að það
er jákvætt,“ sagði Sævar en ljóst
er að skarð hans í sóknarlínu
Fylkis verður ekki fyllt svo auð-
veldlega fari svo að Sævar verði
frá í einhvern tíma. - vig
TÆPUR Sævar Þór hefur verið óheppinn
með meiðsli.
Það gerðust óvæntir hlutir í tímatökunni í gær:
Nick Heidfeld á ráspól í
fyrsta skipti á ferlinum
FORMÚLA 1 Ökumenn Williams-
liðsins voru í fantaformi þegar
tímatakan fyrir kappaksturinn á
Nurburgring fór fram í gær.
Hraðast allra ók Nick Heidfeld
og hann verður því á ráspól í
fyrsta skipti á ferlinum í dag.
Raikkonen keyrði aðeins hæg-
ar en Heidfeld og Íslandsvinur-
inn Mark Webber var með þriðja
besta tímann. Michael Schu-
macher var í tómu tjóni í tíma-
tökunni og hann er tíundi í rás-
röðinni. Félagi hans, Rubens
Barrichello, er fyrir framan hann
og er ljóst að Schumacher mun
eiga erfitt uppdráttar í keppninni
í dag en hann hefur ekki verið
líkur sjálfum sér síðustu vikur.
Þær breytingar áttu sér stað í
gær að aðeins fór fram ein
tímataka í stað tveggja en það
fyrirkomulag hefur verið lagt af
og ekki degi of seint að mati
margra.
„Þetta er frábær tilfinning
enda er ég búinn að vera lengi í
þessum bransa og það hlaut að
koma að því að ég kæmist á rá-
spól,“ sagði Heidfeld skælbros-
andi. „Af öllum stöðum þá er
þetta brautin þar sem ég vildi
allra mest komast á ráspól. Hér
er mitt heimafólk og þetta hefur
verið frábær dagur. Annars koma
þessi úrslit mér á óvart en við
Webber áttum von á meiri sam-
keppni hér í dag.“
Kimi Raikkonen hefur unnið
síðustu tvær keppnir og hann
ætlar að fullkomna þrennuna í
dag. Hann leit vel út í tímatök-
unni í gær og er svo sannarlega
til alls líklegur í keppni dagsins
enda með sjálfstraustið í sögu-
legu hámarki.
Fernando Alonso virðist síðan
aðeins vera að gefa eftir en hann
varð að sætta sig við sjötta besta
tímann í gær. - hbg
ÚRSLIT TÍMATÖKUNNAR
Nick Heidfeld Williams
Kimi Raikkonen McLaren
Mark Webber Williams
Jarno Trulli Toyota
Juan Pablo Montoya McLaren
Fernando Alonso Renault
Rubens Barrichello Ferrari
Ralf Schumacher Toyota
KÁTUR OG HRESS Nick Heidfeld brosti
allan hringinn í gær eftir að hann náði
ráspól í fyrsta skipti á ferlinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES