Fréttablaðið - 29.05.2005, Síða 58
30 29. maí 2005 SUNNUDAGUR
MIKILVÆGT AÐ
FLEIRI STELPUR
FARI ÚT
FÓTBOLTI Ásthildur á frábæran fer-
il að baki og ljóst að það á eftir að
bætast enn frekar á ferilsskrá
hennar, hún er 29 ára og er enn
ekki farin að huga að því að hætta
knattspyrnuiðkun.
,Mér líður frábærlega í Svíþjóð
og ég hef verið mjög heppin með
lið, frábærar stelpur og góður
andi innan liðsins. Æfingarnar eru
alveg fyrsta flokks og allar að-
stæður góðar,“ sagði Ásthildur í
samtali við Fréttablaðið. Hún hef-
ur spilað með Breiðablik, KR og
ÍBV hér á landi ásamt því að spila
í Þýskalandi, Bandaríkjunum og
Svíþjóð.
,,Malmö er með mjög gott lið.
Okkur var reyndar ekki spáð neitt
mjög góðu gengi fyrir tímabilið
þar sem við misstum þrjár lands-
liðskonur. Ég hef verið að spila í
sókninni og það hefur gengið
mjög vel.“
Allt miklu stærra
Árið 1995 lék Ásthildur
leik gegn Malmö í Norð-
urlandamóti og fannst
liðið spila skemmtileg-
an bolta, allar götur
síðan hefur hún
fylgst vel með lið-
inu. Hún fór síðan
út í nám til Svíþjóðar
og mætti á æf-
ingu hjá lið-
inu og gekk hún mjög vel.
Þegar Ásthildur er spurð út í
það hver sé stærsti munurinn í
deildinni hér heima og þeirri
sænsku segir hún að það séu æf-
ingarnar.
,,Það er æft miklu meira hérna
úti og í samræmi við það verður
tempóið í leikjum miklu meira. Þá
eru fleiri góðir leikmenn í deild-
inni og fleiri lið, þetta er allt
miklu stærra, breiddin er meiri
og því meiri möguleiki á að ná
góðum gæðum.
Annars er íslenski kvennabolt-
inn svo sannarlega á réttri leið
þótt mér þyki oft vanta metnað í
margar stelpur heima. Þær eru
ekki að leggja sig nægilega fram á
æfingum og taka þetta ekki af
nægilega mikilli alvöru. Mikil-
vægt er að fleiri leikmenn fari út
og spili í sterkari deildum, það
gerir landsliðið betra.“
Rosaleg vonbrigði
Það var 13. mars 2004 sem
krossbönd í hné slitnuðu hjá
Ásthildi þegar Ísland sigraði
Skotland í vináttulandsleik 5-1.
Á þessum tíma var hún búin að
standa sig frábærlega með
Malmö sem var búið að tryggja
sér sæti í undanúrslitum Evr-
ópukeppninnar. Þremur
mánuðum áður var hún í
þriðja sætinu í valinu á
íþróttamanni ársins en
sumarið 2003 var hún
leikmaður ársins í
L a n d s b a n k a d e i l d
kvenna þar sem
hennar lið, KR,
varð Íslandsmeist-
ari. ,,Þetta voru
rosaleg vonbrigði
þegar þetta gerðist,
sérstaklega tvær
fyrstu vikurnar. Þegar
ég fór út og hitti stelp-
urnar í Malmö eftir að
þetta gerðist gerði ég mér í
fyrsta sinn almennilega grein
fyrir því hvað hafði gerst og þá
ákvað ég bara að fara að vinna á
fullu í minni endurhæfingu og
sleppa því að hugsa um hvað ég
hefði verið að gera ef ég hefði
ekki meiðst,“ sagði Ásthildur. Það
kom jafnvel upp í huga hennar að
hætta knattspyrnuiðkun en hún
ákvað að bíða og sjá hvernig tæk-
ist að jafna sig af þessum meiðsl-
um.
Nú er hún nánast búin að jafna
sig algjörlega og finnur engan
verk, þetta hefur gengið framar
vonum. ,,Þegar ég var í þessum
meiðslum ákvað ég að einbeita
mér bara alfarið að náminu en það
var frekar erfitt því ég er svo vön
því að vera í fótboltanum með.“
Umfjöllun samhliða árangri
Uppgangur íslenska kvennalands-
liðsins hefur vakið athygli og seg-
ir Ásthildur að KSÍ eigi hrós skil-
ið. ,,Um leið og við skilum árangri
þá fáum við meiri umfjöllun og
betri umgjörð í kringum liðið. Við
höfum náð að halda stemmning-
unni mjög góðri í liðinu og sam-
hliða því náð góðum árangri, það
gerir þetta mjög skemmtilegt eins
og þetta hefur verið allan þann
tíma sem ég hef verið í landslið-
inu,“ sagði Ásthildur sem átti
erfitt með að svara því hver væri
hápunkturinn á hennar ferli.
,,Ég get nefnt það þegar ég var
valinn í úrvalsliðið úti í Ameríku,
það var mjög mikill heiður. Svo
allir þeir landsleikir sem ég hef
keppt, og sérstaklega þegar vel
gengur. Þá má einnig nefna sem
hápunkta.“
Árið 2001 var Ásthildur í
Bandaríkjunum og fékk að kynn-
ast fyrirkomulaginu þar. ,,Það var
mjög góð reynsla fyrir mig að
vera þar, ég var í þessum háskóla-
bolta og það gekk mjög vel. Ég
fékk að kynnast því hvernig þær
æfa og hvernig þær byggja þetta
upp, þar eru aðeins öðruvísi
áherslur í leikskipulagi og upp-
byggingu. Það var mjög gaman að
kynnast því.“
Ásthildur lék einnig stuttan
tíma í Þýskalandi en líkaði ekki
sérlega vel þar. ,,Það klikkaði líka
eitthvað í samningamálum og ég
hafði ákveðið að fara til Banda-
ríkjanna um haustið þannig að ég
tók þá ákvörðun að koma bara
heim. Ég neita því þó ekki að það
var mjög góð reynsla.“
Vanda breytti miklu
Ásthildur hugsar með ánægju til
þess tíma þegar hún var í 3. flokki
hjá Breiðablik og þjálfarinn
Vanda Sigurgeirsdóttir kom til fé-
lagsins.
,,Hún kom með fullt af flottum
æfingum frá Svíþjóð sem hjálp-
uðu okkur rosalega mikið. Hún
hjálpaði mér mjög mikið og einnig
þeim kjarna í liðinu sem hún var
með. Annars hef ég verið mjög
heppin með þjálfara, Logi var frá-
bær með landsliðinu og síðan er
Jörundur líka frábær þjálfari. Svo
hef ég lært marga nýja hluti hjá
Malmö,“ sagði Ásthildur, hæst-
ánægð með að vera farinn að
sparka í bolta á nýjan leik.
elvar@frettabladid.is
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
Á FULLRI FERÐ Ásthildur hefur náð sér að fullu eftir meiðslin alvarlegu og hefur leikið mjög vel fyrir sænska félagið Malmö FF í upphafi
sænska tímabilsins og ljóst að hún á enn mikið inni sem knattspyrnumaður. FRÉTTABLAÐIÐ/URSZULA STRINER
OG ÞAÐ VAR MARK... Ásthildur hefur þjarmað hressilega að sænskum markverðum upp á síðkastið og hér sést hún hlaupa auðveldlega
framhjá einum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/URSZULA STRINER
Ásthildur Helgadóttir er ein allra besta knatt-
spyrnukona sem Ísland hefur átt. Á mi›vikudaginn
lék hún me› íslenska landsli›inu eftir langa fjarveru
sökum erfi›ra mei›sla. Hún sneri aftur í æfingaleik
gegn landsli›i Skotlands, sama li›i og hún fótbrotn-
a›i í æfingaleik gegn flann 13. mars á sí›asta ári. Ást-
hildur leikur me› Malmö í Svífljó› en li›i› trónir á
toppi deildarinnar eftir sex umfer›ir og Ásthildur er
næstmarkahæst í deildinni.