Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 64
The Sunday Times gerði nýja ævisögu H.C. Andersen,
Hans Christian Andersen: A New Life, að umfjöllun-
arefni um síðustu helgi. Ævisagan var gefin út í tilefni
af 200 ára afmæli þessa ástsæla danska rithöfundar
og fellur í góðan jarðveg hjá John Carey, gagnrýn-
anda blaðsins. Jens Andersen skráði ævisöguna en
Tiina Nunnally snaraði henni á ensku.
Bókarýnir The Sunday Times segir viljastyrk vera lykil-
atriði í verkum Andersens og hann vegi jafnvel
þyngra en galdrar. Þá breyti engu hvort um sé að
ræða illmenni eins og Ísdrottninguna eða ósérhlífna
og dygðuga Litlu hafmeyjuna. Báðar marka þær sér
stefnu og halda henni í gegnum súrt og sætt. Ander-
sen er þarna sagður skapa persónur sínar í sinni eig-
in mynd en sjálfur hafi hann, fullur sjálfstrausts 14
ára gamall, rifið sig upp úr fátækt sveitarinnar og far-
ið til Kaupmannahafnar harðákveðinn í að verða
þekktur leikari. Þegar hann var svo styrktur til náms
sem honum leiddist frekar sökkti hann sér í ævisög-
ur manna sem hann taldi sig eiga eitthvað sameigin-
legt með. Þetta voru ekki minni spámenn en
Shakespeare, Byron, Leonardo da Vinci, Alexander
mikli og Jesús. Helstu nýmæli þessarar ævisögu og
um leið helsti kostur er að mati Carey sá gaumur
sem höfundur gefur mögulegri samkynhneigð And-
ersens og andstyggð hans á konum sem kynverum.
Honum er líkt við eilífðarstrák sem neitar að vaxa úr
grasi þar sem konur vekja hjá honum óhug um leið
og þær verða kynferðislegt viðfang. Þá er því einnig
haldið til haga að hann hafi lagt mikið upp úr nán-
um platónskum samböndum við kynbræður sína.
Andúð hans á konum er rakinn til lauslætis hans
nánustu í Óðinsvéum en amma hans drýgði tekjur
sínar með vændi og móðir hans bar hann undir belti
þegar hún gekk að eiga skósmiðinn Andersen sem
þarf ekkert endilega að hafa verið kynfaðir hans. Þá
er einelti eldri stráka í sveitinni einnig talið hafa graf-
ið undan kynferðisvitund Hans litla sem var meðal
annars berstrípaður og niðurlægður af strákageng-
inu.
ERTU
AÐ
SAFNA
PUNKTUM?
36 29. maí 2005 SUNNUDAGUR
AÐALLISTINN – ALLAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
VERK AÐ VINNA
Geir Svansson
HVEITIBRAUÐSDAGAR
James Patterson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
HUGMYNDIR SEM BREYTTU HEIM-
INUM
Felipe Fernández-Armesto
VÍSINDABÓKIN
Ari Trausti Guðmundsson
VEL MÆLT
Sigurbjörn Einarsson tók saman
ÍSLANDSSAGA Í MÁLI OG MYNDUM
Árni Daníel Júlíusson og Jón Ólafur Ís-
berg
ÍSLENDINGAR
Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jök-
ulsdóttir
SAGA HEIMSPEKINNAR
Bryan Magee
BARNABÆKUR
ÞANKASTRIK 1
Walt Disney
VÍSNABÓK IÐUNNAR
Iðunn
ÞANKASTRIK 3
Walt Disney
ÞANKASTRIK 2
Walt Disney
ÚRVALSÆVINTÝRI H.C. ANDERSENS
H.C. Andersen
KALLI Á ÞAKINU
Astrid Lindgren
GEITUNGURINN 1
Árni Árnason og Halldór Baldursson
ATLAS BARNANNA
Anita Ganeri og Chris Oxlade
LÍNA LANGSOKKUR Á KATTARATTAEY
Astrid Lindgren
EMMA MEIÐIR SIG
Gunilla Wolde
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU DAGANA
18.05.05 – 24.05.05 Í
BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSON OG PENNANUM.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
Sumir hlaupa upp Esjuna
á hálftíma. Aðrir kjósa að
lalla rólega á sínum
hraða og skoða landið
opnum augum. Þórdís
Lilja Gunnarsdóttir rölti
á vit hins víðförla fjöl-
miðlamanns Páls Ásgeirs
Ásgeirssonar sem vill fá
fleiri út í náttúruna,
venjulegt fólk á öllum
aldri. Í Útivistarbókinni
bendir hann á tuttugu
spennandi gönguleiðir í
nágrenni Reykjavíkur.
„Það á enginn einkarétt á náttúr-
unni. Við eigum hana öll,“ segir
ferðalangurinn og fjölmiðlamað-
urinn Páll Ásgeir Ásgeirsson sem
jafnframt er höfundur Útivistar-
bókarinnar sem JPV útgáfa gaf út
á dögnunum. Bókin geymir
ómældan fróðleik og gagnleg ráð
til allra sem hyggjast njóta úti-
vistar í nágrenni Reykjavíkur.
„Ég taldi þörf á bók sem út-
skýrði fyrir venjulegu fólki
hvernig það ætti að komast af
stað og stunda útivist og vildi
vekja athygli fólks á fjölbreyttri
og skemmtilegri náttúru hér við
bæjardyrnar,“ segir Páll Ásgeir,
sem líkt og margir útivistarmenn
er haldinn þeirri áráttu að út-
breiða fagnaðarerindið.
„Margir telja mikið fyrirtæki
að byrja í útivist og halda að það
kosta fínan fatnað og fyrirhöfn,
en góðir skór, einlægur vilji og
áhugi er allt sem þarf. Það er
gríðarlega gaman að ganga um
Ísland, þótt það sé ekki alltaf létt
yfirferðar. Í bókinni vísa ég á létt-
ari leiðir, því markmiðið er að
koma venjulegu fólki af stað út í
náttúruna. Gönguleiðirnar eru all-
ar dagsverkefni; farið að morgni
og komið heim að kvöldi, en erfið-
ust af þeim sem í bókinni er fjall-
að um er gönguleið á Botnsúlur í
botni Hvalfjarðar, sem er ekki
fyrir hvern sem er,“ segir Páll
Ásgeir og bætir við að þótt Ísland
sé á mörkum hins byggilega
heims, sé ekki til neitt sem heitir
vont veður. Bara vond föt.
„Kuldi er hugarástand. Það er
alltaf gott að vera úti, sama þótt
úti sé kalt og blautt. Útivist snýst
um að njóta návistar við náttúru-
öflin; regnið, jörðina og moldina.
Göngutíminn sem gefinn er upp í
bókinni miðast við venjulegt fólk
sem röltir þetta í rólegheitunum.
Ég segi stundum: fjall er ekki
þrekstigi með útsýni. Mig varðar
ekkert um hvort einhver geti
hlaupið upp Esjuna á hálftíma. Ég
ætla að fara á tveimur tímum,
hvílast á leiðinni og njóta fegurð-
arinnar.“
Í Útivistarbókinni er að finna
jafnt kunnar sem lítt kunnar
gönguleiðir.
„Gott dæmi um fáfarna leið er
leiðin um Lambafellsgjá, sem er
rétt hjá Keili á Reykjanesi. Hefðu
aðstandendur Lord of the Rings-
myndanna vitað af þeim stað
hefðu þeir vafalaust tekið eitt at-
riðanna þar, en þetta er lítið fjall
sem hefur klofnað í tvennt og
hægt að ganga í gegnum fjallið,“
segir Páll Ásgeir sem eyddi heilu
sumri í að skoða nágrenni Reykja-
víkur er hann var að leita að efni í
bókina.
„Skemmtilegast er að njóta úti-
vistar með öðrum og auk þess ör-
yggisatriði, en líka hollt og þrosk-
andi að fara einn af og til. Það er
íhugandi, kyrrir hugann og
þannig kynnist maður sjálfum
sér. Langar og erfiðar gönguferð-
ir kenna manni einnig þolinmæði
og nauðsyn þess að gefast ekki
upp.“ ■
Fjall er ekki þrekstigi með útsýni
„Hún ákvað loks að fara svo langt
í burtu að móðir hennar næði
ekki til hennar nema skriflega. Þá
losnaði hún kannski undan áhrifa-
valdi hennar.“
- Borgarstúlkan Anna grípur til
kunnuglegs örþrifaráðs í skáldsög-
unni Ráðskona óskast í sveit eftir
Snjólaugu Bragadóttur. Bókin kom
fyrst út árið 1973 en hefur verið
endurútgefin í kilju.
baekur@frettabladid.is
>
An
na
Smástrákur eilíf›arinnar
> Bók vikunnar ...
ALKEMISTINN EFTIR PAULO
COELHO.
Alkemistinn hefur
selst í yfir 30 millj-
ónum eintaka út um
allan heim og hefur
þegar fest sig í sessi
sem sígilt meistara-
verk. Bókin hefur
notið mikilla vin-
sælda á Íslandi og
hefur nú verið endurútgefin í kilju.
Thor Vilhjálmsson þýddi bókina úr
portúgölsku en hér segir frá Santi-
ago sem hefur í draumi fengið upp-
lýsingar um fjársjóð sem kann að
bíða hans í pýramídunum í Norður-
Afríku. Hann leggur því af stað frá
heimalandi sínu fullur væntinga
um veraldlegan auð en þeir fjár-
sjóðir sem hann finnur á leiðinni
eru fjársjóðir andans.
ÚTIVISTARMAÐUR BREIÐIR ÚT FAGNAÐARERINDIÐ Páll Ásgeir Ásgeirsson eyddi
heilu sumri í að skrásetja tuttugu frábærar gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarinnar. Hann
segir hollt og þroskandi að ganga einn með sjálfum sér, en skemmtilegra og öruggara að
hafa félagsskap í leiðinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
„Meðal sagnfræðinga er almennt
fráhvarf frá söguskoðun þjóðern-
isstefnunnar,“ segir Árni Daníel
Júlíusson, annar ritstjóra Íslands-
sögunnar í máli og myndum, veg-
legs rits sem Edda útgáfa var að
senda frá sér.
Bókin er endurútgáfa Íslensks
söguatlas, sem kom út í þremur
bindum fyrir rúmlega áratug.
Þessi nýja bók er í einu bindi,
þannig að fella þurfti út bæði allt
erlent efni úr fyrri bókunum og
líka allt efni um náttúrusögu
landsins.
Þar að auki voru gerðar tölu-
verðar breytingar á efni bókarinn-
ar, einkum efni fyrsta bindis, þar
sem tekið er fullt tillit til nýrra
strauma í sagnfræði.
„Menn hafa farið að skoða for-
tíðina með öðrum augum. Þegar
menn fara að spyrja nýrra spurn-
inga verða svörin líka ný, og þau
vilja varpa um koll fornum svör-
um.“
Þetta fráhvarf birtist ekki síst í
því að yngri sagnfræðingar eru al-
mennt hættir að líta svo á að Ís-
lendingar hafi öldum saman verið
kúgaðir þrælar Dana.
„Menn líta frekar á landið sem
hérað í stærra ríki eða part af ein-
hverju sambandi. Í staðinn fyrir
að líta til dæmis á einokunarversl-
unina sem kúgunartæki Dana þá
sjáum við að bændur versluðu
afar lítið við Dani. Þetta var fyrst
og fremst íslenska yfirstéttin, sem
verslaði, og hún var bara ágætlega
stæð takk fyrir. Þetta fólk var með
hliðstæðar tekjur og hliðstæðir
hópar á Norðurlöndunum. Deil-
urnar um verslunina voru ekki
deilur íslenskra bænda við danska
kaupmenn, heldur voru þetta ís-
lenskir aðalsmenn sem voru að
deila við danska kaupmenn, sem
þeir litu hvort eð er á sem borgara
og þar af leiðandi litu þeir niður á
kaupmennina. Þetta er alveg nýtt
viðhorf sem er að koma fram í
fyrsta sinn.“
Fjöldi nýrra korta var unninn
sérstaklega fyrir þessa útgáfu og
mikið af nýjum ljósmyndum bætt
við eða skipt út.
Þá hafa allar villur fyrri útgáfu
verið lagfærðar.
Ristjóri nýju útgáfunnar með
Árna Daníel er Jón Ólafur Ísberg
sagnfræðingur. ■
Íslandssagan hefur breyst miki›
ÁRNI DANÍEL JÚLÍUSSON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N