Fréttablaðið - 29.05.2005, Page 67
■ SKRÝTNA FRÉTTIN
Það er ekki bara sauðsvartur al-
múginn sem gleymir sér í heimi
Stjörnustríðsmyndanna. Sumum
úr þotuliðinu er nefnilega líka
brennheitt í aðdáun sinni á mynd-
unum.
Kelsey Grammer, sem sló í
gegn í þáttunum um Staupastein
og geðlækninn Fraiser Crane, upp-
lýsti á dögunum að hann væri Star
Wars-nörd. Reyndar segir hann að
Lucas hafi sagt honum frá Stjörnu-
stríðinu þegar fyrri myndirnar
voru í undirbúningi. Hann var þá
aðeins nítján og gerði sér vonir um
að fá hlutverk í myndinni. Það seg-
ir kannski allt sem segja þarf um
áhuga Grammers á Star Wars að
hann segist ekkert vera svekktur
að hafa ekki fengið hlutverk og
stillti sér glaður upp við hliðina á
Chewbacca á frumsýningu.
Grammer er ekki eina stjarnan
sem hefur þennan áhuga. Noel
Gallagher er sennilega sá sem síst
skyldi ætla að væri Star Wars-
nörd. Engu að síður reiddi gítar-
leikarinn knái úr Oasis fúlgur fjár
fyrir stormsveitarbúning úr upp-
runalegu myndunum.
Síðast en alls ekki síst er það
Robbie Williams, sem safnar mun-
um úr Star Wars-myndunum og
borgaði hátt á aðra milljón fyrir
eftirlíkingu af Svarthöfða-búning-
num. Íbúum London ætti því ekki
að bregða í brún ef þeir sæju
Svarthöfða ásamt stormsveitar-
manni á vappi um borgina og und-
ir niðri væru þeir Noel og Robbie.
NOEL GALLAGHER Er með stormsveitar-
búning hangandi inn í fataskápnum hjá
sér.
Frægir Star Wars nördar
KELSEY GRAMMER ÁSAMT
CHEWBACCA Grammer er eldheitur
aðdáandi Star Wars-myndanna og er
ekkert svekktur yfir því að hafa ekki
verið boðið að leika í fyrri myndunum
á sínum tíma.
ROBBIE WILLIAMS Keypti sér nákvæma
eftirlíkingu af Svarthöfða-búningnum á
hálfa aðra milljón.
Fyrrverandi starfsmaður á búgarði
Bruce Willis og Demi Moore í Idaho
hefur lýst því yfir að hann sé að
skrifa bók um leyndarmál Demi og
Bruce á búgarðinum áður en þau
skildu. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem maðurinn, Lawrence Bass,
angrar stjörnurnar og eru þau bæði
komin með nálgunarbann á hann.
„Ég get ekki lýst því hversu mikill
aumingi þessi maður er,“ segir lög-
fræðingur Demi og Bruce. „Allt
sem hann segir er vitleysa. Hann er
örvæntingarfullur maður, dæmdur
glæpamaður sem ég hef ekki trú á
að nokkur treysti.“ Bass svarar hins
vegar Demi og Bruce fullum hálsi,
og vitnar í fátæklegt uppeldi Demi:
„Það er hægt að taka stelpuna úr
hjólhýsahverfinu en það er ekki
hægt að taka hjólhýsahverfið úr
stelpunni.“
Ekki hægt a› taka hjól-
h‡sahverfi› úr Demi
DEMI MOORE OG NÝI LEIKFÉLAGINN
Demi og Bruce eru enn vinir og samstíga í
baráttunni gegn Lawrence Bass.
Nýleg, bresk rannsókn hefur
leitt í ljós hve seint er seint. Nið-
urstöður sýndu að tíu mínútur
og sautján sekúndur eru sá
þröskuldur sem flestum finnst
of langt gengið og telja sig
knúna til að hringja og tilkynna
seinkun.
Á sama tíma, eða á þessum
tíu mínútum og sautján sekúnd-
um, fæðast tólf börn í Englandi
og Wales, átta umferðarslys
eiga sér stað, 3.804 manneskjur
fara um borð í flugvél og 590
tölvupóstar eru sendir um heim-
inn.
Niðurstöður sýndu einnig að
einn af hverjum tíu þykir engin
ástæða að tilkynna seinkun fyrr
en að minnsta kosti hálftími er
liðinn frá umsömdum tíma.
Fleiri en átta af hverjum tíu á
fimmtugsaldri segjast aldrei
hafa verið seinir á ævinni því
þeir séu haldnir kvíða yfir að
vera of seinir á mikilvæg
stefnumót eða atburði.
Um sjötíu prósent
ungra kvenna telja „við-
urkennt og jafnvel í
tísku“ að mæta seint á
fyrsta stefnumót, því þá
líti þær ekki út fyrir að
vera „jafn örvæntingafull-
ar“.
Bæði kyn voru sammála
um að þeim væri „nokk sama“
þótt þau yrðu sein í afmæli
tengdamömmu.
OF SEINT Tíu mínútur
og sautján sekúndur er
sá tími sem flestum
finnst of seint.
Hve seint er seint?