Fréttablaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 16
16 2. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Kjartan Ragnarsson leik-
stjóri er orðinn fram-
kvæmdastjóri Landnáms-
seturs í Borgarnesi sem
opnað verður með pompi
og prakt næsta vor.
Meðal þess sem Land-
námssetrið býður upp á
eru ferðir um slóðir Egils
Skallagrímssonar, þar
sem saga hans er rakinn.
Kjartan bauð bæjarstjórn Borg-
arbyggðar með í eina slíka ferð í
síðustu viku enda vantaði hann
tilraunadýr fyrir þessar ferðir.
Að sögn Páls Brynjarssonar,
bæjarstjóra í Borgarbyggð,
skemmtu tilraunadýrin sér hið
besta og eru Borgnesingar farn-
ir að hlakka til opnunar seturs-
ins. Kjartan var líka ánægður
með hópinn. „Þeir þekkja vel
sína heimabyggð og þarna var
líka Sigurjón bóndi frá Val-
bjarnarvöllum með í för og hann
hafði sögur að segja af þessum
slóðum engu síður en ég,“ segir
Kjartan.
Kjartan segir að hann fari
slíkar ferðir með hópa sem hafi
samband en svo verði þetta að
föstum lið þegar setrið verði
opnað.
Landnámssetrið verður til
húsa í Búðarkletti og Pakkhús-
inu, sem eru tvö elstu húsin í
Borgarnesi, og verða þau sam-
einuð með tengibyggingu. Þar
verður aðstaða í kjallara til að
bregða upp sem skýrastri mynd
af Íslandi á landnámstímum
með aðstoð tæknimiðla. Einnig
verða sögumenn á svæðinu sem
munu leiða fólk á lendur land-
námsins. Í risinu verður svo
baðstofa en þar verður leiksýn-
ing á kvöldin um Egilssögu, líkt
og vænta mátti af framkvæmda-
stjóranum.
Kjartan hefur áður verið leið-
sögumaður og þá farið með hóp
hestamanna til reiðar um há-
lendisslóðir. „Ég hef alltaf haft
gaman af því að ferðast og á öll-
um ferðaslóðum er einhver
saga,“ segir Kjartan. „Egla er
alveg kjörin til þess að fræða
fólk um landnámið og því lagði
ég þessa hugmynd fyrir bæjar-
stjórn Borgarbyggðar fyrir einu
og hálfu ári. Í framhaldi af því
stofnuðum við hjónin svo fyrir-
tæki ásamt bæjarfélaginu til að
halda utan um þetta og nú er ég
sem sagt orðinn framkvæmda-
stjóri.“
Spurður hvort hann ætli að
safna síðu skeggi til að vera
landnámsmanni líkur á setri
sínu segir Kjartan að hann verði
sjálfur ekki í aðalhlutverki og
því þurfi ekki til þess að koma.
jse@frettabladid.is
3.238 ÍSLENSKIR RÍKISBORGARAR
FLUTTU AF LANDI BROTT ÁRIÐ 2004.
ÞAÐ VORU 455 FLEIRI EN FLUTTU TIL
LANDSINS. Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
Guðrún Gerður Guðrúnardóttir, eða
listakonan Gaga Skordal, rekur skran-
sölu í bílskúr í Skipholti. Hún segir að
salan gangi vel og alltaf séu að bætast
við nýir viðskiptavinir. „Unga fólkið vill
koma hingað í staðinn fyrir að fara í
Ikea,“ segir Gaga hlæjandi en stúdenta-
íbúðir eru í nálægð við skransöluna.
Guðrún hannar líka litríkar og skrautleg-
ar húfur og peysur. „Enda er ég mjög
litríkur persónuleiki,“ segir Guðrún og
skellir upp úr. Peysurnar kallar Guðrún
stuttpeysur, en þær eru með pínulitlar
ermar. Salan á þeim og húfunum geng-
ur vel og eru þær vinsælar hjá öllum
aldurshópum.
Gaga, sem dregur nafn sitt af upphafs-
stöfum sínum og systra sinna, hefur
engan áhuga á að selja skranið sitt í
Kolaportinu því þar er ekkert prúttað
lengur. En Guðrún segist fíla það í
ræmur að prútta.
Varla er hægt að kalla bílskúr Guðrúnar
antíkverslun en þar er þó margt gamalt.
Guðrún segist finna fyrir auknum áhuga
fólks á gömlum hlutum og telur að fólk
vilji eignast hluti með sál.
Til Guðrúnar koma stundum ferðamenn
sem kaupa hönnun hennar en auk þess
eitthvað af gömlu dóti. Guðrún myndi
vilja sjá svipaðar skransölur úti á landi
og hefur kvatt konur sem reka fyrirtæki
á landsbyggðinni til að reka slíkar versl-
anir, því Guðrún er viss um að ferða-
menn hefðu gaman af því.
Fílar fla› í ræmur a› prútta
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: GUÐRÚN GERÐUR GUÐRÚNARDÓTTIR, GAGA SKORDAL
Leikstjóri á
Eglusló›um
KJARTAN RAGNARSSON Tilbúinn í slaginn með tilraunadýrin. Það var létt yfir bæjar-
stjórn Borgarbyggðar í rútunni þó í vændum væri ferð á vígaslóðir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
S
IG
U
RÐ
U
R
GAGA SKORDAL Guðrún
Gerður með eina af húfum
sínum í skransölunni.
ÁSTKÆRA YLHÝRA
Orsakavaldur?
Orðið orsakavaldur er ambaga
sem hefur því miður grafið um
sig í íslenskunni á síðustu
árum. Þegar að er gáð er það
samsett úr orðunum orsakir og
valdur, sem merkja hvort um
sig hér um bil það sem orsaka-
valdur á að merkja í hugum
þeirra sem það orð nota. Orðið
er því dæmi um klifun, tvítekn-
ingu hugtaks sem stendur full-
gilt eitt og sér. Hægt er að
ímynda sér orð eins og
ástæðuástæðu eða grundvall-
argrunn, sem fáum dettur von-
andi í hug að nota, en þau eru
álíka rökrétt og orsakavaldur.
magnus@frettabladid.is
Fimm stjörnu tjaldstæði verður
opnað í landi Fossatúns í Borgar-
fjarðarsveit á morgun. Það er hluti
af starfsemi Steinsnars ehf. sem er
menningar- og ferðatengd ferða-
þjónusta í eigu Steinars Bergs Ís-
leifssonar og eiginkonu hans.
Hugmyndin vaknaði með Stein-
ari fyrir mörgum árum, en hann
langaði að tengja saman lífsstarf
sitt úr tónlistarútgáfu við ferða-
þjónustu.
Hann keypti jörðina Fossatún
fyrir nokkrum árum og hefur síð-
ustu tvö árin byggt svæðið upp.
Stórt veitingahús, Tíminn og vatnið,
er á staðnum þar sem pláss er fyrir
100 manns í sæti, þar verða haldnir
ýmsir tónleikaviðburðir í sumar.
Einnig er boðið upp á ýmsa af-
þreyingu fyrir gesti og gangandi, til
dæmis er stórt útitafl á staðnum, 18
holu „crazy golf“ minigolfvöllur og
stærsti leikkastali á Íslandi að sögn
Steinars.
Hann segir staðinn vera yndis-
fagran en að fáir viti af honum. Fólk
geti setið á veitingastaðnum og
horft yfir fossinn í ánni. Síðan er
hægt að skella sér í heita potta og
gufubað fyrir svefninn. - sgi
TÍMINN OG VATNIÐ Tónlistarviðburðir
verða á veitingahúsinu í allt sumar.
Steinsnar ehf.:
Opnar fimm stjörnu
tjaldstæ›i