Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 4
4 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Skógrækt fer sums staðar seint af stað:
Minna planta› vegna flurrka
SKÓGRÆKT Skógarbændur hafa
sums staðar frestað plöntun
vegna undangenginna þurrka.
Þá er hætt við að ungplöntur
hafi skemmst í næturfrostum
og þurrki, sérstaklega þær sem
bíða gróðursetningar.
Hreinn Óskarsson, skógar-
vörður á Suðurlandi, segir
Skógræktina þó ekki hafa lent í
teljandi vandræðum vegna
þurrka. „Við höfum plantað í
land þar sem raki er nógur,“
sagði hann en á Suðurlandi er
nokkuð um mýrar. Hreinn sagð-
ist þó vita til þess að sums stað-
ar hefðu skógarbændur þurft að
breyta áætlunum sínum, sér-
staklega þar sem ekki er vot-
lent.
Sólveig Pálsdóttir, skógar-
bóndi í Prestsbakkakoti í
Skaftafellssýslu, segist ekkert
vera byrjuð að planta þetta vor-
ið og þá hafa þeir orðið að hætta
sem eitthvað voru byrjaðir að
planta í nágrenninu.
Sólveig segist ekki muna eft-
ir öðrum eins þurrkum þau tíu
ár sem hún hefur stundað skóg-
rækt. „Hins vegar eru vorin öft
þurr hérna, en þó ekki undan-
farin ár. Við erum samt bjart-
sýn. í dag var skúragangur í dag
og spáir rigningu. Hér hefur
heldur ekki skemmst mikið af
plöntum, enda erum við það
austarlega að við sluppum við
mesta næturfrostið.“ - óká
Stu›ningurinn vi›
sáttmálann dvínar enn
EVRÓPUSAMBANDIÐ Þótt Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, og
Jacques Chirac Frakklandsforseti
hafi hvatt til að fullgildingarferli
stjórnarskrársáttmála Evrópusam-
bandsins haldi áfram virðist ljóst að
stuðningurinn við hann er að fjara
út.
Chirac og Schröder hittust í
Berlín um helgina til að ræða næstu
skref í gildistökuferlinu. Þeir lýstu
því sameiginlega yfir í kjölfar fund-
arins að þeir teldu rétt að halda
ferlinu áfram og það væri nauðsyn-
legt að hvert og eitt ríki fengi tæki-
færi til að segja sína skoðun á um-
deildri stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins
Allar líkur eru hins vegar taldar
á að Jack Straw utanríkisráðherra
lýsi því yfir í breska þinginu í dag
að þjóðaratkvæðagreislu um sátt-
málann verði slegið á frest eða jafn-
vel aflýst þar sem franskir og hol-
lenskir kjósendur eru búnir að
hafna plagginu.
Peter Mandelsson, yfirmaður
viðskipta í framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins og fyrrverandi
ráðherra í stjórn Blairs, skrifaði
reyndar í breska blaðið Observer í
gær að óðs manns æði væri að
hafna sáttmálanum og hvatti ríkis-
stjórnina til að fresta ekki þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Hann segir þó aug-
ljóst að ekki hafi tekist sem skyldi
að sannfæra almenning um gagn-
semi skjalsins..
Í Svíþjóð stóð til að þingið stað-
festi stjórnarskrána en nú virðist
komið babb í bátinn í kjölfar úrslit-
anna í síðustu viku. Vinstriflokkur-
inn sem er einn þeirra flokka sem
ver minnihlutastjórn jafnaðar-
manna falli hefur nú hótað því að
hætta stuðningi við hana ef fullgild-
ingarferlinu verður framhaldið.
Hins vegar er talið ólíklegt að flokk-
urinn standi við þær hótanir þar
sem staða hans er mjög veik eftir að
fyrrverandi formaður flokksins,
Gudrun Schyman, stofnaði kvenna-
framboðið Feministisk initiativ.
Í Danmörku þar sem flestir
stjórnmálaflokkarnir hafa verið
hlynntir stjórnarskránni virðist
stuðningurinn einnig fara þverr-
andi. Enginn flokkanna hefur þó
fengist til að segja að blása skuli
fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu
af en á móti kemur að enginn flokk-
anna er heldur tilbúinn að lofa því
að af atkvæðagreiðslunni verði.
oddur@frettabladid.is
Saddam Hussein:
Ákær›ur
fyrir illvirki
BAGDAD, AP Saddam Hussein getur
átt yfir höfði sér að verða ákærð-
ur fyrir allt að 500 atriði þegar
réttað verður í máli hans. Hins
vegar þykir lík-
legt að hann
verði einungis
ákærður fyrir
tólf vel ígrunduð
atriði þar sem
það væri tímasó-
un að ákæra
hann fyrir alla
hans glæpi sagði
talsmaður for-
sætisráðherra Íraks í gær. Á með-
al brotanna sem hann verður sótt-
ur til saka fyrir er efnavopnaárás
gegn Kúrdum í bænum Halabja
sem kostaði fjölda fólks lífið.
Dagsetning réttarhaldsins yfir
Saddam hefur ekki verið ákveðin
endanlega en það mun fara fram á
einhvern tímann á næstu tveimur
mánuðum. ■
Danska konungsfjölskyldan:
Barni› ver›ur
ríkisarfi
DANMÖRK Anders Fogh Rassmus-
sen, forsætisráðherra Danmerk-
ur, hyggst beita sér fyrir því að
lögum verði breytt á þann veg að
tryggt verði að barn Friðriks
krónprins og Mary Donaldsson
verði ríkisarfi hvort sem það
verður piltur eða stúlka.
Þjóðernissinnaði flokkurinn
Dansk Folkeparti hefur beitt sér
mjög fyrir því að ríkisarfi geti
einungis verið piltur en aðrir
flokkar hafa lýst þeirri skoðun að
það eigi ekki að skipta máli.
Sósíaldemókratar, Radikale og
Sósíalíski þjóðarflokkurinn vilja
breyta stjórnarskránni til að
tryggja þetta en því vísar forsæt-
isráðherrann á bug, segir að
venjuleg lagabreyting dugi. ■
DEREK LOVELOCK FORSTJÓRI MOSAIC
Fagfjárfestar voru áhugasamir fyrir því að
kaupa hlutafé í Mosaic Fashions á dögun-
um. Í dag hefst hlutafjárútboð til al-
mennnings.
Reykjavíkur
– býður upp á alþjóðlegan matseðil
úr íslenskum gæðahráefnum
Nýtt viðmið
– nýr bar og veitingastaður
í hjarta
Salt Lounge Bar & Restaurant
Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík, sími 599 1000, fax 599 1001
OP
NU
M
10
. JÚ
NÍ
VEÐRIÐ Í DAG
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,65 65,97
119,32 119,90
80,59 81,05
10,83 10,90
10,19 10,25
8,82 8,88
0,61 0,61
96,69 97,27
GENGI GJALDMIÐLA 03.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
113,05 +1,49%
Bæ›i Frakkar og Hollendingar hafa nú hafna› stjórnarskrá Evrópusambands-
ins. Bretar ætla a› fresta fljó›aatkvæ›agrei›slu og Svíar og Danir eru langt
flví frá jafn einar›ir stu›ningsmenn og á›ur.
FÓSTBRÆÐUR FALLAST Í FAÐMA Leiðtogar Frakklands og Þýskalands hittust til að ræða
næstu skref í fullgildingarferli stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
BANDARÍKIN
VILL LOKA FANGABÚÐUM Öld-
ungadeildarþingmaðurinn Joseph
Biden telur að Bandaríkin þurfi að
loka fangabúðum sínum í Guant-
anamo-flóa á Kúbu og færa fang-
ana á hentugri stað. Nýlega gagn-
rýndu samtökin Amnesty
International búðirnar og sögðu
þær „gúlag“ okkar tíma.
HANDTEKNIR VEGNA STÚLKU-
HVARFS Tveir menn hafa verið
handteknir í tengslum við hvarf 18
ára stúlku frá Alabama í Banda-
ríkjunum sem ekkert hefur spurst
til í eina viku. Stúlkan var í skóla-
ferð í Aruba þegar hún týndist.
Mennirnir, sem eru 28 og 30 ára,
hafa ekki enn verið ákærðir.
Tískuverslunarkeðjan Mosaic:
Útbo›i› hefst
VIÐSKIPTI Almennt hlutafjárútboð
Mosaic Fashions hf. til almennra
fjárfesta hefst í dag. Í boði eru 90
milljónir hluta og selst hver hlutur á
13,6 krónur.
Edda Rós Karlsdóttir, hjá Lands-
bankanum, segir að sér sýnist að
Mosaic Fashions sé verðmetið í takt
við sambærileg fyrirtæki í Bret-
landi. Hún telur vera góðar líkur
fyrir því að allt hlutaféð seljist.
Íslandsbanki ætlar ekki að gefa
út greiningu á Mosaic fyrr en að
skráningu lokinni að sögn Atla B.
Guðmundssonar hjá Íslandsbanka.
Bankinn hefur bent á að lokað hluta-
fjárútboð, sem fram fór til fagfjár-
festa í maí, hafi gengið vel en eftir-
spurn var fjórfalt meira en fram-
boð. - eþa
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Skógarbændur í
Vestur-Skaftafellssýslu hafa þurft að fresta
plöntun nýrra trjáa vegna mikilla þurrka
sem varað hafa í nokkrar vikur. Hætt er við
að eitthvað hafi skemmst af ungum plönt-
um þar sem fóru saman næturfrost og
þurrkar.
HREINN ÓSKARSSON
SADDAM HUSSEIN