Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 77

Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 77
MÁNUDAGUR 6. júní 2005 21 Annarrar deildarlið Aftureldingarhefur fengið leikmanninn Jón Orra Ólafsson að láni frá Fram út sumarið. Jón Orri hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Fram í sumar og sló því til og skellti sér í Mosfellsbæinn. Framarar vona að Jón muni snúa til þeirra reynslunni ríkari eftir sumarið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins um helgina. Svíinn Freddie Ljungberg hefurgefið forráðamönnum Arsenal úr- slitakosti varðandi framlengingu á samningi sínum við félagið og seg- ist ekki vilja semja fyrr en liðið sýni fram á að geta styrkt sig almenni- lega fyrir átökin á næstu leiktíð. „Ég mun ekki fram- lengja samning minn ef þeirra metnaður mætir ekki mínum eigin,“ sagði sá sænski dig- urbarkalega í sam- tali við BBC. „Ég get ekki séð að við munum vinna meistaradeildina ef við treystum á átján og nítjan ára gamla krakka til að bera uppi liðið. Þetta snýst ekki um peninga – þetta snýst um metnað,“ sagði Ljungberg. Manchester City hefur skrifaðundir framlengingu á samningi Kiki Musampa við félagið og mun hann verða hjá þeim á lánssamn- ingi út næsta tímabil frá liði sínu At- letico Madrid. Musampa vakti mikla hrifningu hjá City í vetur og liðinu var mikið í mun að fá að njóta krafta hans áfram. „Hann var okkur gríðarlega mikil- vægur þann tíma sem hann var hjá okkur á síðustu leiktíð og ég er mjög sáttur fyrir að halda honum í eitt ár í viðbót. Ef hann spilar jafn vel með okkur á næsta tímabili og hann gerði síðast, erum við í góðum mál- um,“ sagði Stuart Pearce, knatt- spyrnustjóri Manchester City. Spánverjinn Fernando Alonso erbjartsýnn á að geta orðið yngsti heimsmeistari í formúlu eitt frá upp- hafi, en hann er sem kunnugt er með örugga forystu í stigakeppni ökumanna það sem af er tímabili. „Ég held að liðið eigi ágæta möguleika á að halda upptekn- um hætti í keppn- unum sem eftir eru og ef ég held áfram að keyra vel, má vel vera að ég hafi það sem til þarf til að verða meistari,“ sagði Spánverj- inn ungi, sem er að verða að dýr- lingi í heimalandi sínu eftir frábær- an árangur í ár. Hann hefur örygga forystu í heildarstigakeppni ökumanna en á eftir honum kemur hinn finnski Kimi Raikkönen. Finnski markvörðurinn AnttiNiemi hjá Southampton, sem ný- verið féll úr ensku úrvalsdeildinni, er ekki á leið til West Brom eins og til stóð, því Bryan Robson, knatt- spyrnustjóri liðsins, ku vera á höttun- um eftir yngri markverði. Það er engu líkara en að umboðsmaður hans hafi orðið fúll, því hann gaf það út að vissulega gæti West Brom orðið sér úti um yngri markvörð, en bentu á að þeir fengju engan betri en þann finnska. Evrópumeistaramót í knattspyrnukvenna hófst á Englandi í gær með leik heimamanna gegn Finnum á City of Manchester leikvanginum. Lið Englands vann leikinn, 3–2, og kom sigurmarkið ekki fyrr en í upp- bótartíma. Riðill Englands er sann- kallaður Norður- landariðill því ásamt Finnum eru þar einnig Svíar og Dan- ir. Þær þjóðir léku einmitt einnig í gær og skildu liðin jöfn, 1–1. Í hinum riðli keppninnar eru Þýskaland, Frakk- land, Noregur og Ítalía en þær þjóðir hefja leik í kvöld. Tvö efstu liðin í hvorum riðli komast í undanúrslit sem munu fara fram um miðja næstu viku og sjálf úrslitin svo um helgina eftir. ÚR SPORTINU Spænska undrabarni› bar sigur úr b‡tum TENNIS Spænska undrabarnið Raf- ael Nadal bar sigur úr býtum á opna franska meistaramótinu í tennis með sigri á Argentínu- manninum Mariano Puerta í úr- slitum í gær eftir að hafa unnið Roger Federer frá Sviss í undan- úrslitum. Nadal, sem var settur í fjórða sætið á styrkleikalista mótsins, kom til baka eftir að hafa tapað fyrsta settinu, vann næstu þrjú og þar með leikinn. „Tilfinningin er ótrúleg. Þetta er gamall draumur sem er að ræt- ast,“ sagði Nadal í sigurvímu eftir úrslitaleikinn sem stóð yfir í þrjár og hálfa klukkustund. „Þessi viðureign var ótrúleg og ég þurfti að spila minn allra besta leik til að vinna sigur. Ég hélt að ég myndi tapa eftir að ég tapaði fyrsta settinu en sem betur fer náði ég að snúa leiknum mér í vil,“ bætti Nadal við. Þetta var fyrsti sigur Nadals á stórmóti en hann er sagður ein- hver efnilegasti tennisspilari sem komið hefur fram á sjónarsviðið á síðustu árum. Hann verður 19 ára eftir tvo daga en hafði fyrir opna franska mótið sigrað á sex mótum á keppnistímabilinu þrátt fyrir þennan unga aldur. Helstu spek- ingar í íþróttinni segja að Nadal hafi alla burði til að verða sá besti í heimi en sjálfur er hann hinn ró- legasti og kveðst aðeins vilja spila tennis. „Ég mun fagna í dag en á morgun fer ég að undirbúa mig fyrir opna breska meistaramót- ið,“ segir hann. -vig Opna franska meistaramótið í tennis: RAFAEL NADAL Er talinn einn efnilegasti tennisspilari síðustu ára.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.