Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 79
MÁNUDAGUR 6. júní 2005 23
Kveður í Kaplakrikanum
Fyrri vináttuleikur handboltalandsli›sins gegn Svífljó› í kvöld ver›ur einnig kve›juleikur fyrir markvör›-
inn Gu›mund Hrafnkelsson sem mun leika 403 landsleik sinn.
HANDBOLTI „Það er mjög gaman að
fá þetta kærkomna tækifæri til að
klára landsliðsferilinn hér heima
fyrir framan íslenska áhorfend-
ur,“ sagði Guðmundur Hrafnkels-
son við Fréttablaðið, ánægður
með að fá kveðjuleik í kvöld þeg-
ar Ísland fær Svíþjóð í heimsókn í
Kaplakrika. Hann hefur varið
mark landsliðsins í tvo áratugi en
þegar Viggó Sigurðsson tók við
landsliðinu ákvað hann að hleypa
nýjum mönnum að.
„Ég er alveg sáttur. Það eru
aðrir teknir við og það hlaut að
koma að því, ég var búinn að skila
mínu þessi 18 ára sem ég var í
þessu. Það eru að koma fullt af
ungum leikmönnum inn í landslið-
ið sem fá að reyna sig og með tím-
anum nær Viggó að binda alla
saman en allt tekur sinn tíma. Í
þessum stórmótum þá þarf allt að
smella saman og heppnin að vera
með líka. Ég hef alveg trú á því að
það gangi upp.“
Guðmundur segir þetta hafa
verið langan en gífurlega
skemmtilegan tíma sem hann hef-
ur verið með landsliðinu.
„Það er ekkert eitt sem stendur
upp úr en margt sem kemur upp í
hugann, t.d. B-keppnin í Frakk-
landi, HM í Japan og Ólympíuleik-
arnir í Barcelona,“ sagði Guð-
mundur en hann hóf landsliðsferil
sinn 1986 í leik gegn Sovétmönn-
um á Friðarleikunum í Moskvu.
„Ég man vel eftir því þegar ég
var að stíga mín fyrstu skref með
landsliðinu. Ég var búinn að fylgj-
ast vel með liðinu og svo skyndi-
lega var maður farinn að spila
með því á móti þessum stórköllum
sem maður var búinn að vera að
horfa á í sjónvarpinu,“ sagði Guð-
mundur.
Meðan hann hefur leikið fyrir
hönd Íslands hefur hann einnig
leikið með Breiðablik, FH, Val,
Nordhorn, Conversano og nú síð-
ast Kronau Östringen. Hann er nú
41 árs en er enn á fullu og mun
leika með Aftureldingu næsta vet-
ur ásamt því að starfa við mark-
mannsþjálfun hjá félaginu.
„Það verður gaman að spila
með þessu unga og upprennandi
liði. Þeir urðu bikarmeistarar í
2.flokki og það verður skemmti-
legt að vinna með þeim. Vonandi
getur maður skilað eitthvað af
sinni reynslu til þessara ungu
leikmanna. Ég hef ekki ákveðið
hvað ég spila lengi til viðbótar og
hugsa bara eitt ár fram í tímann
núna, þegar maður er kominn á
þennan aldur þá spáir maður ekki
lengra fram í tímann,“ sagði Guð-
mundur Hrafnkelsson.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Mánudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
18.00 FH tekur á móti Stjörnunni í
Landsbankadeild kvenna.
19.40 Ísland og Svíþjóð mætast í
vináttulandsleik í handbolta í
Kaplakrika. Leikurinn er einnig
kveðjuleikur Guðmunds
Hrafnkelssonar.
20.00 Breiðablik og KR eigast við í
Landsbankadeild kvenna.
20.00 Valur tekur á móti ÍA í
Landsbankadeild kvenna.
20.00 Keflavík og ÍBV mætast í
Landsbankadeild kvenna.
20.00 Fjölnir og Haukar etja kappi
í 1. deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
16.15 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn. US PGA Memorial
Tournament. (e)
16.35 Helgarsportið á Rúv. (e)
16.50 Samantekt frá
Smáþjóðaleikunum á Rúv.
Lokaþáttur. (e)
19.35 Landsleikur í handbolta,
Ísland-Svíþjóð í beinni útsendingu á
Rúv.
20.00 NBA á Sýn. (e)
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Enska bikarkeppnin á Sýn.
(e)
00.00 Miami Heat og Detroit
Pistons mætast í oddaleik í úrslitum
austurstandarinnar í NBA-deildinni.
Bein útsending.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta:
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handknattleik leikur fyrri leik
sinn gegn Svíum hér á landi í dag
og á miðvikudag í tilefni af undir-
búningi þess við umspilsleikina
við Hvít-Rússa síðar í mánuðin-
um. Fréttablaðið ræddi við Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfara í
gær og spurði hann hvernig und-
irbúningurinn gengi. „Við erum
búnir að vera að æfa mjög vel
undanfarna daga og erum að fá
Ólaf Stefánsson inn í hópinn í
kvöld. Svo erum við búnir að fá
Sigfús Sigurðsson aftur inn auð-
vitað, eftir nokkurt hlé og það er
okkur mjög mikilvægt í varnar-
leiknum. Við ætlum okkur að
keyra þessa leiki af alvöru og
tefla fram okkar sterkasta liði,
rétt eins og Svíarnir,“ sagði Viggó.
„Ég sé ekki fram á að það verði
neinar sérstakar breytingar á
hópnum, nema hvað Birkir Ívar
varðar. Hann gæti allt eins fengið
að spreyta sig meira en verið hef-
ur og okkur finnst vera kominn
tími á að fara að brjóta þessa
Svíagrýlu á bak aftur og vinna þá.
Það yrði ágætis veganesti fyrir
okkur inn í leikina við Hvít-Rúss-
ana,“ bætti hann við. Fyrri leikur
liðanna verður í Kaplakrika
klukkan 19.40 í kvöld, en það verð-
ur einmitt kveðjuleikur Guð-
mundar Hrafnkelssonar, mark-
varðar liðsins til margra ára. Síð-
ari leikurinn verður svo leikinn á
Akureyri á miðvikudagskvöld.
baldur@frettabladid.is
Mætir Svíum í Kaplakrika
LÝKUR LANDSLIÐSFERLINUM FORMLEGA Guðmundur man vel eftir sínum fyrstu skrefum
með landsliðinu en á erfitt með að gera upp á milli einstakra móta. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Forráðamenn Tottenham æfir út í Frank Arnesen:
Ómerkilegur Arnesen
FÓTBOLTI Forráðamenn Totten-
ham Hotspur ráku á laugardag
yfirmann knattspyrnumála hjá
félaginu, Danann Frank
Arnesen, eftir að hann lýsti því
yfir við stjórn félagsins að hann
vildi ganga til liðs við Chelsea,
sem allt bendir til að hafi rætt
við hann án vitundar Tottenham.
Þetta gerist aðeins nokkrum
dögum eftir að Chelsea var
sektað vegna ólöglegra funda
með Ashley Cole, leikmanni
Arsenal og liði Chelsea virðist
einfaldlega ekkert vera heilagt
þegar kemur að því að ná í bestu
fáanlega menn í hverja stöðu
með milljónum sínum.
Forráðamenn Tottenham vilja
lítið tjá sig um málið annað en
það að í yfirlýsingu á heimasíðu
félagsins kemur fram að nálgun
Chelsea við Arnesen hafi verið
með öllu ólögmæt og að þeir ætli
að leita réttar síns í málinu. For-
ráðamenn Chelsea þræta fyrir
þetta og segjast hafa verið í við-
ræðum við þann danska í tvær
vikur með fullu samþykki
grannaliðs síns í London.
David Pleat, fyrrum yfirmað-
ur knattspyrnumála hjá Totten-
ham, var ekki sáttur með fram-
komu Arnesens og kallaði hana
ómerkilega.
„Tottenham gaf honum tæki-
færi til að koma til Englands og
sanna sig í þessari deild. Þeir
voru tilbúinir að bjóða honum
gull og græna skóga fyrir starf
sitt hérna og ég verð að segja að
mér þykir þetta bera vott um
ódrenglyndi hjá honum að stinga
svona af,“ sagði Pleat. -bb
FRANK ARNESEN Var
rekinn frá Tottenham
með skömm.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
GRÝLUBANI Viggó Sigurðsson vill fyrir alla muni ná að brjóta Svíagrýluna svokölluðu á bak
aftur í kvöld. Fréttablaðið/Pjetur
Mainz í Evrópukeppnina:
Tottenham
fékk ekki inn
FÓTBOLTI Þessi helgi hefur verið
ansi viðburðarrík fyrir Tottenham
og áhangendur liðsins. Þeir allra
bjartsýnustu þorðu þó að vona að
liðinu áskotnaðist sæti í
Evrópukeppni félagsliða en tvö lið
voru dregin út í gær um sæti sem
haldið var aftur vegna
háttvísisverðlauna UEFA.
Einungis sex lið voru í pottinum en
Tottenham var ekki dregið út.