Fréttablaðið - 28.06.2005, Qupperneq 32
■ GELGJAN
Sara? Þetta
er ég, Palli.
28. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Mér finnst lífið svo
yndislegt. Ég er ást-
fanginn upp fyrir
haus, ét prósakk og
lýsistvennu, fer reglu-
lega í sund og finnst
hver dagur vera nýtt
ævintýri. Það breytir
því ekki að ég hef skoðanir á hinu og
þessu og finnst margt í þessum
heimi heimskulegt, ranglátt og ljótt.
Stundum misnota ég þennan dálk
til þess að úttala mig um það sem fer
í taugarnar á mér og á það til að vera
kaldhæðinn. Ég hélt satt best að
segja að þetta væri það gegnsætt að
ég þyrfti ekki að gefa út eigið geð-
heilbrigðistvottorð hér. En þegar
einn mesti nöldurseggur íslenskrar
fjölmiðlasögu er farinn að lesa það
út úr skrifum mínum að mér líði illa
er líklega best að hugga hann og
aðra, sem mögulega eru slegnir sér-
stakri lesblindu á allan texta sem
stangast á við eigin músarholusjón-
armið, með því að upplýsa að mér
líður vel á sálinni þótt ég fái ekki út-
rás með því að pukrast við að taka
upp eigin ljúfu gítartóna í kjallaran-
um heima hjá mér.
Föstudagur nýliðinnar viku var
mér einstaklega góður. Ég vaknaði
við fuglasöng, ristaði mér beyglu, át
hana á svölunum, drakk eðalkaffi
með og varð ölvaður af morgunkom-
unni. Dagurinn varð svo enn betri
þegar ég frétti að sjálfur Ólafur
Teitur Guðnason, einn vænisjúkasti,
staglkenndasti og pirraðasti blaða-
maður sem þessi þjóð hefur alið,
sæi ástæðu til að amast við „furðu-
legri neikvæðni“ minni í þrasdálki
sínum í Viðskiptablaðinu. Ég hef
lengi beðið eftir þessu enda fæst
ekki öruggari staðfesting á því að
maður sé á réttri leið í lífinu en diss
frá þessum eðalstílista sem hefur
reynt að gera líf okkar allra fallegra
og betra með því að berjast gegn
„algerlega massívum áróðri gegn
Sjálfstæðisflokknum“ í fjölmiðlum,
fyrst í hræinu af gamla DV og síðar
með reglulegum skrifum sínum í
Viðskiptablaðið. Það blað fjallar að-
allega um viðskipti en á þó alltaf til
smá pláss undir gremju Ólafs Teits
sem hann hefur svo einnig séð
ástæðu til að gefa út á bók. Ég er því
algjör Laddi í samanburðinum við
Ólaf Teit og gef mér bara að hann sé
abbó af því að ég tel mína lesendur í
tugþúsundum á meðan hann slefar
upp í einhver hundruð.
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ER HAMINGJUSAMUR ÞÓTT HANN SÉ EKKI ALLRA.
Þetta er yndislegt líf
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
SMS LEIKUR
MIÐAR FYRIR 2 Á 199 KR.
13. HVER VINNUR
VINNINGAR ERU:
MIÐAR FYRIR 2 Á SNOOP DOGG 17. JÚLÍ
CD’S MEÐ SNOOP DOGG • FULLT AF ÖÐRUM CD’S
KIPPUR AF MOUNTAIN DEW • OG MARGT FLEIRA
SENDU SMS SKEYTIÐ
BTL SRV Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Ég giska á
að Leeds
nái lengra
en Liver-
pool í ár.
Það er eng-
inn sem nær
lengra en
Liverpool í
ár.
Jæja! Eigum við
að veðja. Hvað
eigum við að
leggja undir?
Tíu? Tuttugu?
Þrjátíu þúsund?
Hvað mikið?
Jói. Ég er vin-
ur þinn. Ég
hef ekki sam-
visku í að
þiggja pening
af þér.
Hah! Þegar
maí rennur
upp munt þú
liggja í valnum
en ég mun
telja pening-
ana mína.
Hvað áttu eigin-
lega við maður!
Liverpool er nú-
verandi Evrópu-
meistari en
Leeds spilar í 1.
deildinni.
Common.
Það skiptir
engu. Man. Utd.
á líka eftir að
vinna deildina.
Þú verður að
hugsa áður en
þú talar.
Vissulega
Hæ
Ég er búinn að hugsa
um þig í allan dag og
ég þráði að heyra
rödd þína.
Þessa rödd sem líður
um eyru mín eins og
golan á vorin og færir
mér aftur lífsljósið eina
sanna.
Hvað viltu?
Ekki neitt.
Þetta er vél-
mennahund-
urinn minn.
Gangi þér
vel.