Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 1
Ver›ur bak vi› lás og slá
til mi›nættis á morgun
SJÖTTA BÓKIN UM GALDRASTRÁKINN
ER KOMIN TIL LANDSINS:
▲
BÆKUR
HARRY POTTER
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
NEYTENDAMÁL „Hrefnukjötið rýkur
út eins og heitar lummur og eftir-
spurnin fer ört vaxandi,“ segir
Sólmundur Oddsson, innkaupa-
stjóri Kaupáss sem rekur Nóa-
túnsverslanirnar.
„Um síðustu helgi fóru 350
kíló,“ bætir Sólmundur við en
hann er ekki í nokkrum vafa um
að markaður sé fyrir því hrefnu-
kjöti sem fellur til við veiðarnar
sem nú eru hafnar.
„Við höfum í kjötborðum okkar
hrefnulundir, besta kjötið af
hrefnuni og það hefur komið fólki
á óvart hvað þetta er gott kjöt. Til
dæmis er þetta sérlega gott í
sushi-rétti en þá er kjötið skorið í
örþunnar sneiðar og borðað hrátt
með wasabi-kremi og sojasósu.
Einnig er hvalkjötið gott á grillið
en ber að hafa í huga að best er að
grilla það við mikinn hita í stutta
stund,“ segir innkaupastjórinn.
Einnig er boðið upp á hvalkjöt í
neytendapakkningum og segir
Sólmundur að salan í því sé
nokkuð góð enda er verð á hrefnu-
kjöti afar hagstætt. -jse
Kaupmenn segja markað fyrir hrefnukjöt:
Hrefnukjöti› selst grimmt
BJARTVIÐRI um mest allt land. Hætt við
þokubökkum með norður-ströndinni.
Þykknar upp vestan til i kvöld. Hiti 10-20
stig, hlýjast til landsins en svalast á
annesjum fyrir norðan. VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
14. júlí 2005 - 188. tölublað – 5. árgangur
Endurminningar
Sú var tíð, og það er ekki ýkja langt
síðan, að saga þjóðanna var í fyrsta og
síðasta lagi stjórnmálasaga.
Slíkt var ofríki stjórnmál-
anna í uppvexti þjóð-
ríkjanna á rústum
lénsveldis á 19. öld.
Í DAG 18
Ómetanlegur leikmaður
Steven Gerrard reyndist betri en
enginn fyrir Liverpool í gær þegar
hann skoraði öll mörk liðsins í 3-0
sigri á TNS frá Wales í 1. umferð
forkeppni Meistaradeildar Evrópu í
gær. Án hans er alls ekki
víst að Liverpool hefðu
náð að
skora á
Anfield í
gær.
ÍÞRÓTTIR 42
Rómeó ruddi brautina
Gísli Örn Garðarson hefur fengið
sjálfan Nick Cave til þess að semja
tónlist við Woyzeck eftir George
Buchner. Aðgangur Gísla að Cave var
óvenju greiður og meistarinn vildi
endilega vinna með
honum enda meðvit-
aður um velgengni
uppfærslu Gísla á
Rómeó & Júlíu.
FÓLK 46
Einn kjóll stendur
upp úr
MARÍA SIGRÚN HILMARSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● heimili
▲
Var myrtur flegar hann
kom frá Bandaríkjunum
Ma›urinn sem myrtur var í Su›ur-Afríku fyrir rúmum fimm vikum var a› koma úr heimsókn frá systur
sinni í Bandaríkjunum. fiar hitti hann uppkominn son sinn sem hann bau› flanga› til a› hitta sig. Líki›
ver›ur flutt til Íslands til jar›setningar.
MORÐMÁL „Þetta er allt svo hræði-
legt að maður er enn þá í algjöru
sjokki,“ segir Katla Þorkelsdóttir,
systir mannsins sem fannst myrt-
ur í Suður-Afríku síðasta sunnu-
dag. Hann hét Gísli Þorkelsson og
var 54 ára gamall. Gísli var
ókvæntur en lætur eftir sig 29 ára
gamlan son búsettan á Íslandi.
Gísli hafði búið í Suður-Afríku í 10
ár og var þar með eigin atvinnu-
rekstur.
„Ég hef verið mjög náin Gísla,
sem er litli bróðir minn og við höf-
um alltaf haldið sambandi,“ segir
Katla, sem er næst Gísla í aldri af
fjórum systkinum. Hún segir að
áður en Gísli var myrtur hafi
hann verið í heimsókn hjá henni í
Bandaríkjunum þar sem hún býr
ásamt fjölskyldu sinni. „Hann fór
heim 24. maí og lítur út fyrir að
hann hafi verið myrtur sama dag
og hann kom aftur til Suður-Afr-
íku,“ segir hún. Gísli notaði tæki-
færið og bauð syni sínum út til
Bandaríkjanna á sama tíma og
hann heimsótti systur sína. „Þeir
áttu hér saman innilegan tíma,“
sagði hún og kvað þá feðga hafa
verið í góðu sambandi þótt langt
væri á milli. „Maður verður bara
að þakka fyrir þennan tíma sem
þeir fengu saman.“
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu í Suður-Afríku hafði Gísli
nýverið selt íbúð í Jóhannesar-
borg og parið sem grunað er um
að hafa myrt hann reyndi að kom-
ast yfir peningana sem hann fékk
fyrir íbúðina. Katla segist hafa
heyrt af þessu og áréttaði að í því
fælist engin vísbending um að
Gísli hafi verið á förum frá land-
inu eða eitthvað slíkt. „Ég veit að
hann var nýlega búinn að selja
raðhús og ekki farinn að festa
kaup á öðru húsi. Þess vegna var
hann með allan þennan pening í
banka. Hann starfaði við að kaupa
íbúðir, gera þær upp og selja svo
aftur, þannig að hann var ekki á
förum. Hann fékk bara gott verð
fyrir húsið og seldi það.“ Katla
segir að lík Gísla verði flutt heim
til Íslands til greftrunar jafn-
skjótt og lögregla í Suður-Afríku
heimilar.
-óká
Sjá einnig síðu 6
Nýtt
kortatím
abil
í BT
KJÖTVINNSLUMAÐUR MEÐ HREFNUKJÖT
Þessar hrefnulundir eru kallaðar naut hafs-
ins og rokseljast í Nóatún verslununum.
Þær eru að sögn kjötvinnslumanns hentug-
ar í súsírétti eða bara á pönnuna eða grillið.
40
VEÐRIÐ Í DAG
GÍSLI ÞORKELSSON Gísli, sem búsettur var
í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, var fórnar-
lamb ránsmorðs. Lík hans fannst um
síðustu helgi falið í ruslatunnu sem fyllt
hafði verið með steypu.
Deilan í Garðasókn:
A›för a› prest-
inum mótmælt
GARÐASÓKN Um tvö hundruð sóknar-
börn mættu á fund í gærkvöld til
stuðnings séra Hans Markúss Árna-
syni, sóknarpresti í Garðasókn. Á
fundinum var samþykkt samhljóða
ályktun til stuðnings Hans Markúsi.
„Það voru þrjú efni sem tekin
voru fyrir á fundinum,“ segir
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður.
„Á honum var mótmælt aðför hluta
sóknarnefndar og hluta starfs-
manna að sóknarpresti, enda er
mikil ánægja með hans störf. Þá var
þeim tilmælum beint til dóms- og
kirkjumálaráðherra að hafnað al-
farið öllum tillögum um flutning
hans í starfi. Að lokum var þeirri
áskorun beint til sóknarnefndar að
halda aðalsafnaðarfund sem fyrst
til að lýðræðisleg umræða gæti
farið fram um þetta mál.“ -grs
PRESTUR Í HÓPI STUÐNINGSMANNA SINNA Fjöldi fólks lagði leið sína á fund stuðningsmanna Hans Markúsar Árnasonar, sóknarprests í
Garðasókn, í gærkvöldi. Fundarmenn kröfðust þess að haldinn yrði aðalsafnaðarfundur svo tækifæri gæfist til að ræða málið á vettvangi
sóknarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N