Fréttablaðið - 14.07.2005, Page 2
2 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Breyttur framburður vitnis ekki tekinn til greina:
Eitt og hálft ár fyrir nau›gun
DÓMSTÓLAR Maður var dæmdur í
eins og hálfs árs fangelsi í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í gær fyrir
að nauðga ungri stúlku á heimili
hennar á Ísafirði eftir sam-
kvæmi síðasta sumar. Stúlkan
hafði lagst til svefns með vini
sínum, en maðurinn vakti hann
og vísaði burt áður en hann hóf
samfarir við stúlkuna sem þá
vaknaði. Hún gat ekki spornað
við sökum ölvunar og svefn-
drunga. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða stúlkunni
800 þúsund krónur í bætur.
Vinurinn sem stúlkan hafði
lagst til svefns með breytti
fyrir dómi framburði sínum hjá
lögreglu. Nauðgarinn hélt því
fram að stúlkan hefði vaknað
um leið og vinurinn, þau rætt
saman um stund og síðan hefði
allt gerst með vilja stúlkunnar.
Hjá lögreglu sagði vinurinn
þetta fráleitt, en fyrir dómi, eft-
ir að nauðgarinn hafði rætt við
hann, tók hann undir framburð
hans.
Dóminn kváðu upp héraðs-
dómararnir Hervör Þorvalds-
dóttir og Símon Sigvaldason, en
Erlingur Sigtryggsson dóm-
stjóri skilaði sératkvæði. Hann
vildi sýkna manninn því vafi
léki á hvert raunverulegt ástand
stúlkunnar hefði verið. -óká
Þúsundir öryrkja krafðir um gömul skattframtöl:
Vilja framtöl frá áttunda áratugnum
FÉLAGSMÁL Landssamtök Lífeyris-
sjóða hafa sent um þúsund öryrkj-
um bréf þar sem óskað er eftir
skattframtölum síðustu þriggja
ára fyrir örorkumat þeirra. Í ein-
hverjum tilvikum er beðið um
skattframtöl frá áttunda ára-
tugnum en einstaklingum er að-
eins skylt að geyma skattframtöl í
sex ár.
„Mér finnst sem lífeyrissjóð-
irnir hafi þarna hlaupið á sig og
þeir eigi að draga þetta bréf til
baka,“ segir Arnþór Helgason,
framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalags Íslands. „Þeir ættu
ekki að fara lengra aftur með
kröfu um tekjuupplýsingar en lög
leyfa.“
Öryrkjabandalagið lítur málið
mjög alvarlegum augum og sendi
í gær bréf til Landssamtaka líf-
eyrissjóða þar sem óskað var eft-
ir fundi vegna málsins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru bréfin send vegna
væntanlegs endurreiknings á ör-
orkubótum. Innan ÖBÍ hafa menn
áhyggjur af því að þeir bóta-
lægstu detti í kjölfarið út af
bótum.
Ekki náðist í framkvæmda-
stjóra Landssamtaka lífeyrissjóða
í gærkvöldi. -grs
Hæstiréttur:
Gæsluvar›-
hald sta›fest
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sí-
brotamanni sem farið hafði verið
fram á að yrði fellt niður eða stytt.
Féllst Hæstiréttur ekki á rök
mannsins sem dæmdur var hinn 8.
júlí síðastliðinn í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra en gæsluvarðhaldið
tók mið af stórfelldum brotaferli
mannsins. Var honum gefið að sök
að eiga hlut í fjölmörgum ránum og
innbrotum auk allnokkurra fíkni-
efnabrota. -aöe
SPURNING DAGSINS
Gu›rí›ur, óttastu íslenska
veitingamenn?
Nei, ég hef engar áhyggjur því að spáin
mín klikkar aldrei. Eða þannig.
Rúmenskir veitingamenn ætla að lögsækja þar-
lenda veðurfréttamenn vegna rangra spáa.
Guðríður Arnardóttir er veðurfréttamaður á
Fréttablaðinu og Stöð 2.
ÍSAFJÖRÐUR Ungri stúlku var nauðgað á
heimili hennar á Ísafirði að morgni sunnu-
dagsins 20. júní í fyrra. Hún hafði boðið til
samkvæmis heima hjá sér eftir að hafa
kvöldið áður skemmt sér á dansleik í
Súðavík og síðar um nóttina á skemmti-
staðnum Sjallanum á Ísafirði.
M
YN
D
/V
IL
M
U
N
D
U
R
H
AN
SE
N
DÍSILOLÍA „Verðhækkanir á dísilol-
íu hafa í för með sér gríðarlegan
kostnaðarauka,“ segir Hlynur
Snæland Lárusson, deildarstjóri
bílaútgerðar hjá ferðaskrifstof-
unni Snæland Grímssyni. „Sér-
staklega er um mikla kjaraskerð-
ingu að ræða fyrir þröngan kjarna
manna sem lifa á bílaútgerð.“
Hlynur hefur áhyggjur af því
hvaða áhrif verðhækkanir á
díselolíu um síðustu mánaðamót
hafa á ferðaþjónustu sem byggir á
jeppa- og rútuferðum. „Ferðirnar
eru dýrar og þess vegna er erfitt
að hækka verðið,“ segir Hlynur.
„Verðhækkanir koma í það
minnsta til með að draga mikið úr
jeppaferðunum, jafnvel ganga að
þeim dauðum.“
Hlynur segir einnig fyrirsjáan-
legt að verr gangi að selja erlend-
um fyrirtækjum hvataferðir. „Það
er slæmt þar sem þessar ferðir
eru seldar utan háannatíma og
skilja yfirleitt mjög mikið eftir
sig.“
Engar ákvarðanir hafa enn
verið teknar um framhald jeppa-
og rútuútgerðar hjá fyrirtækinu
að sögn Hlyns. „Það er ljóst að
grundvöllurinn fyrir þessum
ferðum hefur versnað mjög
mikið.“
Skúli H. Skúlason, formaður
Ferðaklúbbsins 4x4, segir dæmi
þess að fólk í þeirra hópi hafi
skipt dísilbílum sínum út fyrir
bensínbíla. „Það er ekki ódýrara
að reka bensínbíl en fólk fær ann-
að í staðinn sem það sækist eftir,
snarpari vélar og léttari bíla til
dæmis,“ segir Skúli. „Ekki síst
slæmt í ljósi þess að þeir sem
mest ferðast hafa hingað til verið
sá hópur almennings sem helst
hefur notað dísilolíu.“
Skúli segir að klúbburinn gæti
sætt sig við breytingar á verði
dísilolíu út frá umhverfissjónar-
miðum ef þær ýttu undir aukna
notkun á dísilbílum. „Þegar lítrinn
af dísilolíu er hins vegar orðinn
jafndýr og jafnvel dýrari en
bensín sjáum við alls ekki að þessi
umhverfissjónarmið náist fram.“
helgat@frettabladid.is
Hækkanirnar gætu gengi›
af jeppafer›um dau›um
Hlynur Snæland Lárusson segir hækkanir á dísilolíu hafa veruleg áhrif á
bílaútger› í fer›afljónustu. Dæmi eru um jeppaeigendur sem skipt hafa
dísilbílum út fyrir bensínbíla eftir ver›hækkanirnar.
JEPPAFERÐIR Erfitt verður að mæta auknum kostnaði sem verðhækkanir á dísilolíu hafa í för með sér fyrir skipuleggjendur jeppaferða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
Gagnrýnandi Pútíns:
Kasíanov í
rannsókn
MOSKVA, AP Saksóknarar í Rúss-
landi hófu á mánudag rannsókn á
meintum fjársvikum Mikhail Ka-
síanov, forsætisráðherra Rúss-
lands árin 2000-2004. Eftir að Pútín
Rússlandsforseti rak hann úr emb-
ætti á síðasta ári gerðist Kasíanov
einn harðasti gagnrýnandi hans og
hafði hann ekki útilokað að bjóða
sig fram í forsetakosningum þar
árið 2008.
Kasíanov hafði einkum beitt sér
fyrir efnahagsumbótum á ferli sín-
um og var síðasti fulltrúinn úr
innsta hring Boris Jeltsín í ríkis-
stjórnum Pútíns og hafði varið
hina umdeildu stétt auðkýfinga í
Rússlandi. ■
Reykjanesbraut:
Tekinn á 164
kílómetra hra›a
LÖGREGLUMÁL Ökumaður á yfir höfði
sér sviptingu ökuréttinda eftir að
bifreið hans mældist á 164 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut við
Bústaðaveg í fyrrakvöld. Hámarks-
hraði þar er 70 kílómetrar á klukku-
stund og keyrði ökumaðurinn því
meira tvöfalt hraðar en lög leyfa.
Lögregla stöðvaði ökumanninn
og fékk hann að halda för sinni
áfram eftir að af honum var tekin
skýrsla að sögn lögreglu. Hann
verður auk ökuréttindamissisins
krafinn um háa sekt. -ht
ARNÞÓR HELGASON Framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands.
Sprengt í Bagdad:
Börn me›al
fórnarlamba
ÍRAK, AP 25 manns létu lífið í sjálfs-
morðs-bílsprengjutilræði í Bagdad í
gær, sem beindist gegn bandarísk-
um hermönnum sem voru að deila
út sælgæti til barna.
Þar af á annan tug barna á aldrinum
fjögurra til þrettán ára. Einn her-
maður dó. Að minnsta kosti 70
manns særðust. Tilræðið átti sér
stað í fátækrahverfi þar sem flestir
íbúanna eru sjía-múslimar.
„Megi Guð fordæma uppreisnar-
mennina,“ hrópaði móðir á sjúkra-
húsi þar sem hlúð var að hinum
særðu, þar á meðal fjögurra daga
gömlu barni. ■
Mál Arons Pálma:
Gó›ar líkur
á heimför
DÓMSMÁL Lögfræðingur stuðnings-
hóps Arons Pálma, Vestur-Íslend-
ingurinn Knut S. Johnsson, átti í
gær ítarlegar viðræður við aðstoð-
armann ríkisstjórans í Texas. Að
fundi loknum var það mat hans að
góðar líkur væru á að orðið yrði við
óskum um að Aron yrði leystur úr
stofufangelsi og honum leyft að
fara til Íslands. Ríkisstjórinn tekur
ákvörðun innan sex vikna.
Aron Pálmi verður 22 ára í dag.
ÓNÝTT GÓLFEFNI Talið er að viðgerð á
húsnæði aldraðra í Neskaupstað taki um
hálfan mánuð og á meðan geta íbúarnir
ekki snúið til síns heima.
Vatnstjón í íbúðum aldraðra:
Níu íbú›ir
r‡mdar
NESKAUPSTAÐUR Milljónatjón varð í
íbúðum aldraðra í Breiðabliki í Nes-
kaupstað aðfaranótt þriðjudags
þegar vatnssía við vatnsinntak í
kjallara gaf sig og kalt vatn flæddi
um 350 fermetra gólfflöt kjallarans.
Húsnæðið er í eigu Fjarðabyggðar
og segir Guðmundur Y. Hraunfjörð,
húsnæðisfulltrúi bæjarins, að um 10
sentímetra djúpt vatn hafi verið á
öllum gólfum í kjallaranum þegar
vatnslekinn uppgötvaðist.
„Slökkvilið Fjarðabyggðar
vatnstæmdi kjallarann en rýma
þurfti allar níu íbúðirnar. Nokkrum
íbúanna var komið fyrir á sjúkra-
húsinu en aðrir fóru til aðstand-
enda,“ segir Guðmundur. - kk