Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 8

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 8
1Hversu margir Írakar hafa farist íbardögum eða árásum frá innrásinni í Írak samkvæmt nýrri svissneskri rannsókn? 2Hvaða listmálari ætlar að sýna mál-verk í tveimur stórum tjöldum í hljóm- skálagarðinum í Reykjavík? 3Hvað heitir rauðhærðasti maður Ís-lands? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur: Málverkas‡ningar ekki of fáar LISTIR „Ég er ósammála því að of fáar málverkasýningar séu haldnar hér í listasafninu,“ segir Eiríkur Þorláksson, forstöðu- maður Listasafns Reykjavíkur. Einar Hákonarson listmálari gagnrýndi Listasafnið í Frétta- blaðinu í gær og sagði að þar væri ekki nægileg áhersla lögð á málverkasýningar. Eiríkur segir hlutfall hreinna málverkasýninga í safninu um þrjátíu prósent. „Ég tel það eðli- legt hlutfall en hér eru haldnar fleiri málverkasýningar en högg- myndasýningar, sýningar á byggingarlist og ljósmyndasýn- ingar,“ segir Eiríkur. „Langstærstur hluti sýninga safnsins er hins vegar blandaðar sýningar en í mörgum þeirra er málverkið einnig í lykilhlut- verki.“ Einar Hákonarson hyggst halda málverkasýningu í tveim- ur tjöldum á menningarnótt og segir það koma til vegna þess að honum hafi verið synjað um að halda sýningar í sölum Lista- safns Reykjavíkur. Eiríkur segir beiðni Einars um sýningarhald hafa komið of seint fram. „Drög að sýningaráætlun vetrarins höfðu verið lögð fram og frekar hefur þurft að draga úr umfangi hennar síðan.“ - ht EIRÍKUR ÞORLÁKSSON Forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir um þrjátíu pró- sent sýninga í safninu vera hreinar mál- verkasýningar og telur það mjög eðlilegt hlutfall. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M LÖGREGLUFRÉTTIR REYK LAGÐI FRÁ POTTI Kalla þurfti út slökkvilið á Akureyri í fyrrakvöld eftir að tilkynnt var um að reyk legði frá potti í eld- húsi parhúss í Glerárhverfi. Eng- inn var heima en lögregla fór inn um glugga og fjarlægði pottinn af hellu, sem gleymst hafði að slökkva undir. Engar skemmdir voru sjáanlegar á íbúðinni en þar var mikill reykur. MISSTI FINGUR VIÐ BRÚARSMÍÐI Ungur maður missti þumalfingur eftir vinnuslys við brúarsmíði í Króksfirði í fyrradag. Maðurinn var fyrst í stað fluttur á heilsu- gæslustöðina í Búðardal þar sem gert var að sárum hans en hann var síðan fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem meiðsl hans voru meðhöndluð frekar. PAKISTAN, AP Þrjár járnbrautar- lestar rákust saman í suðurhluta Pakistan í gærmorgun, með þeim afleiðingum að minnst 128 manns fórust og hundruð slösuðust. Svo virðist sem einn lestarstjórinn hafi mislesið umferðarljós og ekið aftan á kyrrstæða lest með fyrrgreindum afleiðingum. Nokkrir lestarvagnar köstuðust yfir á teinana við hliðina sem lest úr gagnstæðri átt lenti á. Slysið er það mannskæðasta sem orðið hefur í landinu í meira en áratug. „Aðkoman var hryllileg,“ sagði Agha Mohammed Tahir, lögreglu- stjóri héraðsins þar sem slysið varð. Hann sagði 128 manns hafa farist, þar á meðal þrjá sem létust af sárum sínum á sjúkrahúsi í borginni Ghotki. Slysið varð snemma morguns í grennd við Ghotki, sem er um 600 km norðaustur af hafnarborginni Karachi. Járnbrautakerfi Pakistans er úr sér gengið og slys eru tíð. Í júní 1991 fórust yfir 100 manns við Ghotki, er yfirfull farþegalest ók á kyrrstæða flutningalest. -aa Þriggja lesta árekstur í suðurhluta Pakistan: Mannskæ›asta slys í meira en áratug FRÁ SLYSSTAÐ Lestarvagnarnir hrúguðust upp við áreksturinn og köstuðust yfir á teinana við hliðina. Að minnsta kosti 128 manns fórust. NEYTENDUR Fyrsta uppskera árs- ins af nýjum íslenskum kartöfl- um úr Þykkvabænum sem komu í verslanir á höfuðborgarsvæð- inu í gærmorgun kláruðust úr hillum verslana á nokkrum klukkustundum. Um lítið magn var að ræða enda þurfa bændur að tjalda ýmsu til að koma vöru sinni þetta snemma á markaðinn. Margir biðu greinilega óþreyju- fullir og voru nýju kartöflurnar horfnar aftur fljótlega eftir há- degi í þeim verslunum sem þær buðu. Neytendur þurfa þó ekki að örvænta. Meira magn mun ber- ast í verslanir í dag og næstu daga og ættu því allir sem vilja að fá nóg og óþarfi að óttast frekari skort. Sigurbjartur Pálsson, kart- öflubóndi að Skarði, segir að uppskeran sé góð miðað við ár- ferði fyrr í vor og segir þess ekki langt að bíða að hægt verði að taka upp mun meira magn en nú er. „Ekki vantar eftirspurn- ina og ekki skemmir fyrir að við bændur fáum mun betra verð fyrir nýja uppskeru og ekki veitir af.“ -aöe Nýjar íslenskar kartöflur komnar í verslanir: Seldust upp á nokkrum klukkustundum NÝ UPPSKERA TIL NEYTENDA Fjölmargir bíða árlega eftir nýjum íslenskum kart- öflum en fyrsta uppskera kartöflubænda kom samdægurs í búðir á höfuðborgar- svæðinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.