Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 28
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Eldföst mót frá BODUM
tvö í pakka, tvær gerðir, tvö verð
3900.- og 4900.-
Bókahillurnar eru
alveg ómissandi
Ólafur Steinn segist aldrei nokkurn tímann henda bók.
Ólafur Steinn Ingunnarson
leikari dvelur löngum stund-
um í stofunni heima hjá sér.
Bæði horfir hann á sjónvarp í
stofunni og les einnig mikið.
„Ég eyði líklegast mestum tíma
á heimilinu inni í stofu, fyrir
utan það þegar ég er í rúminu og
sef,“ segir Ólafur Steinn Ing-
unnarson leikari. „Ég horfi bæði
mikið á sjónvarp og les mikið í
stofunni, það er gott að geta
slökkt á sjónvarpinu og gripið í
bók og lagt hana svo frá sér þeg-
ar það er eitthvað skemmtilegt í
sjónvarpinu,“ segir Ólafur
Steinn en bætir við að bókin
fylgi svo alltaf með upp í rúm.
„Mér finnst bókahillurnar al-
veg ómissandi, ég myndi aldrei
nenna að kafa eftir öllum bókun-
um mínum ef þær væru í köss-
um,“ segir Ólafur Steinn og að-
spurður um hvort hann myndi
nokkurn tímann henda bók, seg-
ir hann: „Nei, aldrei.“
Ólafur Steinn segist vera
mjög heimakær en starfi hans
fylgir oft mikil vinna þar sem
hann þarf að eyða löngum stund-
um frá heimilinu.
„Það slaknar aðeins á álaginu
eftir að sýningar hefjast,“ segir
Ólafur Steinn. Um þessar mund-
ir er hann að leika í verkinu Ör-
lagaeggin sem sýnt er í Borgar-
leikhúsinu, en hann er jafnframt
einn af stofnendum Reykvíska
listaleikhússins sem framleiðir
sýninguna. „Við settum upp
þessa sýningu af tómri leikgleði
en við fáum engin laun fyrir
þetta,“ segir Ólafur Steinn og
lofar að sýningin verði sýnd
eins lengi og fólk hefur áhuga á
henni.
kristineva@frettabladid.is
4 23. júní 2005 FIMMTUDAGUR
ÚTSALAN
Í FULLUM
GANGI!
Íslensk list allerie r g ó ð g j ö f
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Körfur eða stórar töskur eru
hentugar til að geyma hina
ýmsu muni í – svo sem leik-
föng barnanna, hand-
klæði og dagblöðin.
Það er hægara sagt en
gert að halda reiðu á
öllu á heimilinu. Dag-
blöð og póstur koma
inn um lúguna dag-
lega, plastpokar hrúg-
ast upp eftir innkaupa-
ferðir og óhreinu fötin
flæða út um allt. Besta
ráðið er auðvitað að
finna þessum hlutum sem virð-
ast heimilislausir góðan stað til
að vera á. Enn betra er ef þessir
staðir eru heimilinu til prýði.
Fallegum körfum eða stórum
töskum eins og þessum sem eru
á myndunum er hægt að koma
fyrir hér og þar um heimilið.
Þær eru fallegar undir dag-
blöðin í stofunni, auglýsinga-
póstinn við bréfalúguna, leik-
föng barnanna og
upprúlluð handklæði á
baðinu og margt
fleira. Körfurnar er
líka hentugar í inn-
kaupaferðir og falleg-
ar undir nestið og tepp-
ið í lautarferðina.
Þessar fallegu tösk-
ur fást allar í Gluggan-
um í Faxafeni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
Töskur lífga upp á heimilið
Gróf köflótt taska sem
væri fín undir dagblöð og
tímarit, á 2.200 kr.
Þessi væri fín á snaga í and-
dyrið undir vettlinga og húf-
ur, á 1.290 kr.
Tilvalin fyrir upprúlluð
handklæði. Fæst í tveimur
stærðum á 3.100 kr. og
4.300 kr.
Falleg undir grænar og
blómstrandi plöntur á
1.490 kr.
Þessi taska fæst í nokkrum
stærðum og kostar á bilinu
2.300 kr. til 3.900 kr.
Lítil taska sem væri falleg
inni á baðherbergi undir
snyrtivörur á 1.990 kr.
FYLGSTU MEÐ!
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30