Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 29

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 29
5LAUGARDAGUR 8. janúar 2005 Gylltir munir eru tákn um vel- gengni, völd og munað. Mikið er til af gylltum munum sem standast tímans tönn. Gullæði hefur gripið um sig í tísku- heiminum og því spurning hvort það muni ná inn á heimilið. Gull er dýrmætasti málmurinn og í Eg- yptalandi til forna var gull talið vera hold guðanna. Trúabrögð hafa jafnan tengt gull við sólina eins og silfur tengist tunglinu. Þeir sem velja gull eru jafnan taldir vera já- kvæðir, auk þess sem gull á að auka á velgengni og viðhalda heilsu. Augljós merking gulls er auður og völd og hefur það ætíð þótt merki um munað. Gullið hefur ekki átt mikið upp á pallborðið í nýrri hönnun en mik- ið er til af fallegum gömlum gyllt- um munum sem standast tímans tönn og eru alltaf í tísku eins og þessir glóandi fallegu munir sem finnast hjá Fríðu frænku. Gullæði grípur um sig Skemmtilegar veggskreytingar ÞAÐ MÁ SKREYTA VEGGI HEIMILIS- INS MEÐ ÝMSU ÖÐRU EN MYND- UM OG LISTAVERKUM. Hægt er að hengja gamlan, út- saumaðan borðdúk á vegginn eins og veggteppi. Fallegir blúndudúkar koma einkar vel út. Það má skreyta veggina með fatnaði, t.d. gömlum barnakjól. Gömul plötuumslög koma vel út á vegg. Hljóðfæri eru skemmti- legt veggskraut. Ef maður á nokkur má hengja þau upp saman og fylla upp í bilið á milli þeirra með gömlum nótnablöðum. Hengdu diska á vegginn. Safnaðu saman ólíkum diskum í öllum stærðum og gerðum og búðu til fal- lega veggmynd með því að raða þeim saman. Gullbikar í Fríðu frænku. Skyldi vökvinn úr þessum veita manni eilíft líf? Einstaklega glæsilegur kerta- lampi í Fríðu frænku. Kertastjaki í Art deco stíl í Fríðu frænku. Vígaleg og aristókrataleg klukka í Fríðu frænku. Gyllt og glamúrleg ljósakróna prýdd kristölum Í Fríðu frænku. Gaman er að hafa barnaherbergi glaðleg og full af lífi. Margir bregða á það ráð að mála herbergið í skemmtilegum litum en punktinn yfir i-ið er hægt að setja með sniðugum vegglímmiðum. Verslunin Einu sinni var býður upp á fjölbreytt úrval af allavega límmiðum fyrir börn á öllum aldri sem hægt er að skreyta herbergið með. Það skemmtilega við límmiðana er að það er einfalt að setja þá upp og ekkert mál að taka þá af, og þeir skilja ekkert eftir sig á veggnum. Fyrirtæki sem sérhæfa sig í límmmiðagerð ættu að geta útbúið sér- sniðna límmiða fyrir þá sem það kjósa. Vegglímmiðar lífga upp á herbergið og hægt er að skipta límmiðum út eftir því sem barnið stækkar og áhugamál- in breytast. Fjörugir veggir LÍMMIÐAR Í STAÐ VEGGFÓÐURS. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N O R D IC P H O TO /G ET TY Hægt er að láta útbúa fyrir sig doppur til að líma á veggi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.