Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 46
14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Ég ákvað að
bregða undir mig
betri fætinum nú
í vikunni og fara í
bíó í góðum fé-
lagsskap. Ég fer
mjög sjaldan í bíó
því það er svo
dýrt (fyrir fá-
tæka námsmenn)
en stefnan var
sett á mjög áhugaverða kvikmynd
og ég var í ljómandi góðu skapi.
Til að vera nú örugg með að
tryggja okkur miða ákváðum við að
vera tímanlega og vorum mætt
hálftíma fyrir sýningu. Við fengum
miðana en þegar við komum inn í
bíóið máttum við gjöra svo vel og
bíða fyrir utan salinn. Smám saman
myndaðist stór hrúga af fólki fyrir
utan og það var ekki opnað inn fyrr
en fimm mínútur voru í sýningu.
Þetta var frekar óskemmtileg bið
og mér fannst þetta sérstaklega
skrýtið í ljósi þess að myndin var
sýnd í tveimur sölum og töluvert
langt síðan sýningin á undan klárað-
ist í þessum sal. Aðstandendum
kvikmyndahússins þykir greinilega
ekki sanngjarnt að þeir sem komi
fyrstir fái bestu sætin, heldur þeir
sem ryðjist mest.
Þegar við vorum svo stödd í
miðjum troðningnum kallar starfs-
maður kvikmyndahússins allt í einu
að hann þurfi að sjá miðana. Nú
vorum við búin að láta rífa af mið-
unum við innganginn og ekkert sér-
staklega að passa upp á afrifurnar
þar sem okkur var ekki sagt að
gera það. Þá upphófst örtvænting-
arfull leit af afrifunum með tilheyr-
andi taugaveiklun og á meðan
streymdi fólk inn í salinn. Þær
fundust svo eftir mikið japl og jaml
og þá gátum við loksins sest. Þá tók
ekkert betra við því nú máttum við
sitja undir auglýsingum í tuttugu
mínútur og sumir kvikmynda-
treilerarnir voru sýndir tvisvar. Að
lokum var svo klikkt út með því að
skella inn hléi á mjög viðkvæmum
stað, í mynd sem er kaflaskipt og
bauð upp á mörg betri tækifæri
fyrir pásu.
Fyrir þessi herlegheit borgaði ég
heilar 800 krónur og fékk staðfest
enn eina ferðina að það að fara í bíó
er sjaldnast peninganna virði. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SÓLEY KALDAL BORGAR FYRIR AÐ HORFA Á AUGLÝSINGAR
Það borgar sig ekki að fara í bíó
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
„Svalasta mynd ársins og besta
mynd þessa sumars.“ Þ.Þ. FBL
AB Blaðið
„Sin City er mynd sem enginn
ætti að láta framhjá sér fara.“
H.L. MBL
T.V. kvikmyndir.is
D.Ö.J kvikmyndir.com
K&F XFM
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT.
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
KOMIN Í BÍÓ
Miðasala í Skífunni,
á event.is og í 575-1522
Nýjasta æðið!
Scooterhjól með
mótor í fyrsta sinn
á Íslandi!
Engin trygging
nauðsynleg - flokkast
sem reiðhjól.
Notist á gangstéttum.
Engin aldurstakmörk.
Munið eftir
hjálmunum!
Vegna mikillar eftir-
spurnar byrjum við
í dag!
Sími: 869 0898
DEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK •JEPPADEKK • FÓLKS
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
...einfaldlega betri!
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
....já, líffræði er
eitt af mínum
uppáhaldsfögum.
Athyglisvert.
Hei, sjáið
mig! Ég er
fyrsta lóa
vorsins!
Ég! Númeró
únó!
Hvað
?
Vorið kemur
ekki fyrr en eft-
ir þrjár vikur!!
Þetta er bara
keppnisskapið í
mér.
Hvað með
þennan?
Nei!
Þennan!
Þessi gæti
verið fínn.
eða þessi...
þú hefur ekki
farið í þennan
lengi...
Nei!
Oj!
Nei! Nei!
Nei!
Allt í lagi! Vertu bara í því
sem þú vilt! Ég hef ekki tíma
til að rífast við þig!
Pabbi hjálpaði
mér að velja
fötin mín í
morgun.
Með lausnum okkar stjórnmála-
flokks munu allir eiga miklu betra
líf, börn sem og eldra fólk. Við höf-
um svörin og allir í hinum flokkun-
um eru fífl! Kjósið okkur!
Ég blessa ykkur í gegnum sím-
ann. Jesús virkar í gegnum mig!
Ég hef gert samning við vorn al-
máttugan! Hallelúja!
Hringið í síma 391857, 99 krón-
ur mínútan.
Ég held að flestir, sérstaklega
fólk sem á smábörn ættu að
borga hærri skatta. Kannski 15
prósent hærri, það væri gott!
Palli! Aldrei treysta
manni með hár eins
og playmokall og
bindi.
Móttekið!