Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 48
Fjórar ungar listakonur
bjóða upp á tónlistarveislu
Strengjakvartettinn Loki ætlar að
halda lokatónleika sína í Lista-
safni Sigurjóns á Laugarnesinu
klukkan 20 á föstudagskvöld. Tón-
leikarnir eru lokahnykkurinn á
sex vikna starfi Loka fyrir Skap-
andi sumarstarf Hins hússins og
er ókeypis inn. Fjórar ungar lista-
konur skipa Loka, en það eru þær
Auður Agla Óladóttir, Gunnhildur
Daðadóttir, Gróa Margrét Valdi-
marsdóttir og Júlía Mogensen.
Flutt verða tvö verk, annars
vegar Strengjakvartett eftir Beet-
hoven Opus 132 og hins vegar
Strengjakvartett númer þrjú eftir
Béla Bartok.
„Við erum búnar að starfa sam-
an í Listaháskólanum í nokkur ár
og útskrifumst af tónlistardeild-
inni næsta vor. Á tónleikunum spil-
um við kammertónlist en hana höf-
um við lagt stund á hjá Gunnari
Kvaran,“ segir Auður Agla.
Markmið Loka hefur í sumar
verið að kynna klassíska tónlist
fyrir fólki og sýna að hún væri
ekki eingöngu flutt í hátíðlegum
tónlistarsölum. „Við vildum höfða
til breiðari hóps og æfðum upp
mjög fjölbreytta dagskrá, allt frá
sextándu aldar tónsmíðum til
verka sem voru samin í vor. Svo
fórum við á ýmsar stofnanir og
opinbera staði, þar á meðal elli-
heimili, leikskóla, sjúkrahús og
fangelsi.“
Auður segir að þeim þyki
skemmtilegast að spila fyrir fólk
sem sýni áhuga á tónlistinni hvort
sem það kunni að meta hana eða
ekki. „Það er skemmtilegast þeg-
ar fólk leggur við hlustir og
myndar sér skoðun. Fangarnir
eru til dæmis mjög hreinskilinn
hlustendahópur og stundum voru
viðbrögðin allt frá því að vera
„rosalega er þetta falleg tónlist“ í
„þetta er ekki skemmtilegt“. ■
32 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
...hádegis-
tónleikum í
Hallgríms-
kirkju klukkan
12 í dag þar
sem Douglas
A. Brotchie
leikur á Klais-
orgelið.
...kvöldgöngu um slóðir ís-
lenskra glæpasagna í Reykjavík í
bókmenntagöngu Borgarbóka-
safnsins sem hefst klukkan 20
fyrir utan gamla Geysishúsið,
Vesturgötumegin.
...tónleikunum í Stúdentakjall-
aranum klukkan 21 í kvöld með
Skakkamanage, Glasamar
Further Than Far Far og Markúsi
Bjarnasyni.
Tónlistarhópurinn Gestalæti heldur tón-
leika í Dómkirkjunni klukkan 20 í kvöld.
Hópurinn samanstendur af fimm stúlkum
sem allar stunda tónlistarnám í Reykjavík.
Hópinn skipa: Anna Helga Björnsdóttir
píanóleikari, Arnbjörg María Danielsen
sópran, Björg Magnúsdóttir píanóleikari,
Guðbjörg Sandholt mezzósópran og
Guðný Þóra Guðmundsdóttir fiðluleikari.
Á tónleikunum í Dómkirkjunni verða flutt
verk eftir Bach, Vivaldi, Handel, Mozart,
Verdi, Jón Nordal og Bizet.
Hópurinn hefur haldið fjölda tónleika í
Iðnó og Dómkirkjunni í sumar og er hluti
af sumardagskrá Hins Hússins. Tónleik-
arnir í Dómkirkjunni í kvöld eru síðustu
kvöldtónleikarnir en Gestalæti halda
einnig hádegistónleika í Dómkirkjunni
þriðjudaginn 19. júlí kl 12.15.
Aðgangur er ókeypis á alla tónleika
Gestaláta.
Reykholtshátíð verður haldin í níunda
sinn dagana 22. til 24. júlí í Reykholts-
kirkju. Það verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá á hátíðinni sem hefur
að leiðarljósi að flytja sígilda tónlist í
sögulegu umhverfi.
menning@frettabladid.is
Gestalæti í Dómkirkjunni
Lokatónleikar Loka
!
TIL STYRKTAR
UNGUM FORELDRUM
Í SVÖRTUMSKÍTA
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
HÚSIÐ OPNAR KL. 21.00
MIÐAVERÐ AÐEINS
1000 KR.
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
MIÐAVERÐ AÐEINS
1000 KR.
SÁLIN
FRÆBBLARNIR
Á MÓTI SÓL
HEIÐA ÚR IDOLINU
LÍKN
NÁNARI UPPLÝSINGAR
FIMMTUD. 14. JÚLÍ
LAUGARD. 16. JÚLÍ
FÖSTUD. 15. JÚLÍ
GAY
PRIDE
STYRKTARBALL
MÓRALL
STÓRTÓNLEIKAR
KALL INN
AÐEINS
K
Ö
H
Ö
N
N
U
N
/
A
3
FÖNKHLJÓMSVEITIN LLAMA Heldur
tónleika í Norræna húsinu klukkan
12:15 í dag. Danshópurinn Svið-group
spinnur dans í takt við tónlistina.
Llama í Nor-
ræna húsinu
Fönkhljómsveitin Llama heldur
tónleika í Norræna húsinu
klukkan 12:15 í dag. Llama hef-
ur verið nokkuð áberandi á göt-
um borgarinnar í sumar, og
hefur margoft komið fram á
Lækjartorgi, Austurvelli, Ing-
ólfstorgi og Laugavegi. Hljóm-
sveitin einbeitir sér að flutningi
hrynheitrar tónlistar hvaðan-
æva að úr heiminum, hvort sem
um er að ræða fönk, djass eða
latin. Hljómsveitina skipa
Steingrímur Karl Teague á pí-
anó, Snorri Haraldsson á tenór-
saxófón, Magnús Trygvason El-
íasen á trommur, Andri Ólafs-
son á kontrabassa og Finnur
Guðmundsson á trompet.
Á sama tíma spinnur dans-
hópurinn Svið-group dans í takt
við tónlist hljómsveitarinnar.
Svið-group skipa Ásgerður
Gunnarsdóttir, Melkorka S.
Magnúsdóttir, Vigdís Eva Guð-
mundsóttir og Katrín Gunnars-
dóttir.
Aðgangur er ókeypis. ■
GESTALÆTI Tónlistarhópurinn Gestalæti heldur tónleika í
Dómkirkjunni klukkan 20 í kvöld.
STRENGJAKVARTETTINN LOKI heldur ókeypis lokatónleika á föstudagskvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sumartónleikar
í Sigurjónssafni
„Þetta er 17. sumarið sem sum-
artónleikaröðin er haldin í Sig-
urjónssafni. Þegar við byrjuðum
með þetta stíluðum við inn á að
aðgangseyrir væri ekki hærri en
í bíó sem á þeim tíma var 400
krónur en svo höfum við þurft
að hækka verðið og nú kostar
1500 krónur inn á tónleikana,“
segir Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari og listrænn stjórnandi
sumartónleikaraðarinnar í Sig-
urjónssafni.
Fjórðu tónleikarnir í röðinni
voru á þriðjudaginn og þeir síð-
ustu verða haldnir hinn 6. septem-
ber. Hlín segir að almennt hafi um
40 til 60 manns verið að mæta á
tónleikana það sem af er sumri.
„Við auglýsum í janúar eftir
umsækjendum sem vilja koma
fram á tónleikaröðinni. 30 hópar
sóttu um fyrir sumarið en við gát-
um einungis valið 12 af þeim sem
sýnir að þörf er á slíkri tónleika-
röð,“ segir Hlíf og bætir við að
stílað sé inn á mikinn fjölbreyti-
leika við val á flytjendum en að
allir séu þeir klassískt menntaðir í
tónlist.
Næstu tónleikar í sumartón-
leikaröðinni verða í Sigurjóns-
safni á þriðjudaginn 19. júlí
klukkan 20:30 þegar Kristján Orri
Sigurleifsson kontrabassaleikari
og Eva Zöllner harmonikkuleikari
flytja nútímatónlist eftir íslensk,
þýsk og bandarísk tónskáld. ■
KONTRABASSI OG HARMONIKKA Kristjáni Orri Sigurleifsson kontrabassaleikari og
Eva Zöllner harmonikkuleikari leika nútímatónlist eftir íslensk, þýsk og bandarísk tónskáld
á næstu tónleikum í sumartónleikaröð í Sigurjónssafni á þriðjudaginn klukkan 20:30.